„Við erum búnir að leggja mikið á okkur til að komast hingað“ Smári Jökull Jónsson skrifar 4. júlí 2023 22:18 Hlynur bar fyrirliðabandið í leiknum í dag. Vísir/Hulda Margrét Hlynur Freyr Karlsson fyrirliði U19-ára liðs Íslands var nokkuð sáttur með frammistöðu liðsins gegn geysisterku liði Spánar í dag. Ísland mætir næst Noregi á Evrópumótinu.
U19-ára landslið Íslands í knattspyrnu er eitt átta liða sem tekur þátt í úrslitakeppni Evrópumótsins á Möltu. Liðið tapaði fyrsta leik sínum á mótinu gegn Spáni í dag. Hlynur Freyr Karlsson fyrirliði liðsins sagði að tilfinningin hefði verið góð þegar leikurinn fór af stað. „Það var frábært. Við erum búnir að leggja mikið á okkur til að komast hingað og loksins komist að því. Þetta var bara geggjað,“ sagði Hlynur í samtali við Huldu Margréti, fulltrúa Vísis á Möltu. Íslenska liðið sýndi fína frammistöðu í dag en Hlynur sagði svekkjandi að fá á sig mark úr föstu leikatriði en fyrsta mark Spánar kom eftir hornspyrnu. „Mér fannst við ekki fá mörg færi á okkur. Við fengum mark á okkur í föstu leikatriði sem við ætluðum ekki að fá á okkur. Við vorum bara drulluþéttir og flottir held ég.“ Hlynur metur möguleika Íslands í riðlinum sem góða en liðið mætir næst Noregi á föstudag. „Við erum með eitt mark í mínus og þurfum bara að vinna hina tvo leikina, það er bara planið. Við þurfum bara að vinna næsta leik. Við þurfum að verjast betur í föstum leikatriðum. Við gáfum aðeins of mörg færi á okkur. Ég held að Noregsleikurinn verði aðeins öðruvísi, ég held að við verðum ekki eins neðarlega og í þessum leik.“
Landslið karla í fótbolta Mest lesið Uppgjörið: Lúxemborg - Ísland 0-3 | Gott svar við döprum upphafsleik Fótbolti City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Enski boltinn „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ Fótbolti Björk segir öllum þjálfurum upp Sport Uppgjörið: Ísland - Sviss 5-1| Draumurinn um EM lifir Fótbolti Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Handbolti Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Handbolti Átti aldrei að geta hlaupið aftur en vann Bakgarðinn Sport Uppgjörið: Valur - Mors-Thy 39-28 | Þar lágu Danir í þvi Handbolti „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Handbolti Fleiri fréttir Slapp eftir að hafa tekið Brynjólf hálstaki: „Þetta er bara rautt“ „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ „Get ekki beðið um mikið meira“ Meistarataktar í Sevilla frá upphafi til enda „Langt síðan við unnum fótboltaleik“ „Frá morgunmat fram á 90. mínútu“ Tíu tékkar réðu ekki við Englendinga Uppgjörið: Lúxemborg - Ísland 0-3 | Gott svar við döprum upphafsleik Einkunnir Íslands: Lúxus frá Andra Lucasi í Lúxemborg Stressaður Arnar verði að vinna: „Er þetta of flókið?“ „Það er ekkert grín að skora fimm mörk í landsleik“ „Við ætlum bara að klára okkar og gera það sem við mögulega getum“ Uppgjörið: Ísland - Sviss 5-1| Draumurinn um EM lifir „Þýðir ekkert að væla yfir stöðunni“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Þakklátur Gylfi Þór byrjar í kvöld: „Núna er þetta öðruvísi“ Gylfi Þór kemur inn í byrjunarlið Íslands Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane 50 Íslendingar meðal 8.500 áhorfenda Arnar fái silkihanskameðferð: „Um hvað ertu að tala?“ Leikdagur í Lúx: Rodrigues er fífl City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Ætlar að dreifa fé í aðdraganda kosninga Líklegra að Ísland verði í næstneðsta flokki Fluttur á sjúkrahús með alvarlega áverka eftir slys í mötuneyti Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Heimir gaf frí Sjá meira