Tvö íslensk mörk í norska bikarnum Smári Jökull Jónsson skrifar 28. júní 2023 17:59 Brynjar Ingi skoraði fyrir Ham Kam í dag. Vísir/Getty Brynjar Ingi Bjarnason og Jónatan Ingi Jónsson voru báðir á skotskónum þegar lið þeirra léku í 16-liða úrslitum norska bikarsins í knattspyrnu í dag.
Brynjar Ingi skoraði annað mark Ham Kam sem vann góðan sigur á Gjövik-Lyn á útivelli. Mark Brynjars Inga kom á 44. mínútu en Ham Kam vann að lokum 5-0 sigur og tryggði sér þar með sæti í 8-liða úrslitum. Jónatan Ingi Jónsson skoraði fyrir Sogndal sem tapaði 4-3 fyrir Sarpsborg og féll þar með úr leik. Jónatan Ingi jafnaði metin í 1-1 í fyrri hálfleik og lið Sogndal komst síðan í 2-1 forystu fyrir hlé og 3-1 í síðari hálfleik. Sarpsborg skoraði hins vegar þrjú mörk á síðustu sautján mínútunum og tryggði sér 4-3 sigur. Svekkjandi niðurstaða fyrir Jónatan Inga og félaga sem leika í næst efstu deild í Noregi. Ari Leifsson var í byrjunarliði Strömgodset sem tapaði 3-0 fyrir Molde. Molde var komið í 3-0 strax eftir tuttugu og sex mínútur í leiknum og sigur þeirra aldrei í hættu. Birkir Bjarnason var í byrjunarliði Viking sem mætti Raufoss á útivelli. Birkir var tekinn af velli í hálfleik í stöðunni 1-1 en markvörðurinn Patrik Sigurður Gunnarsson situr á varamannabekk Viking. Eftir venjulegan leiktíma var staðan 3-3 og 4-4 að lokinni framlengingu. Því þurfti að grípa til vítaspyrnukeppni og þar var það Raufoss sem hafði betur. Liðið skoraði úr fjórum vítaspyrnum en Viking aðeins úr einni. Raufoss er því komið í 8-liða úrslit en liðið leikur í næst efstu deild í Noregi. Fréttin hefur verið uppfærð
Norski boltinn Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Handbolti Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Fleiri fréttir Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Misjafn árangur Íslendingaliðanna Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum 16 ára gamalt myndskeið af Messi vekur athygli Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Hágrét í bílnum með mömmu Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Mikael látinn bíða eftir fyrsta stiginu Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Sjá meira