Ráðherra svipti fjölda fólks atvinnu með ólögmætri ákvörðun Magnús Jochum Pálsson og Margrét Helga Erlingsdóttir skrifa 21. júní 2023 22:48 Heiðrún Lind Marteinsdóttir telur ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur, matvælaráðherra, vera ólögmæta og hún fari gegn meðalhófsreglu. Stöð 2 Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi segir ákvörðun matvælaráðherra um bann við hvalveiðum vera ólögmæta og hún fari gegn meðalhófsreglu. Samtökin líti ákvörðunina alvarlegum augum og hún vænti þess að málinu sé ekki lokið. „
Fyrir það fyrsta er þetta auðvitað fyrirvara- og fordæmalaus ákvörðun af hálfu ráðherra sem er að svipta fjölda fólks og fyrirtækja atvinnu í einu vetfangi,“ sagði Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS, aðspurð út í það hvernig ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur, matvælaráðherra, blasi við samtökunum. „Bara vegna þess eins lítum við málið alvarlegum augum. Því til viðbótar þá teljum við alveg klárt að ákvörðun ráðherra er ólögmæt,“ sagði hún. „Í fyrsta lagi er ekkert nýtt komið fram í málinu frá því að eftirlitsskýrsla Mast lá fyrir og ráðherra tjáði sig þá með mjög afgerandi hætti um að hún hefði engar heimildir til íhlutunar og mundi ekki gera það, að höfðu samráði við lögfræðinga.“ „Í öðru lagi teljum við líka að það sé alveg klárt í þessu máli að svona ákvörðun fari gegn meðalhófsreglu stjórnskipunar,“ sagði Heiðrún í viðtali við Stöð 2. Væntir þess að málinu sé „svo sannarlega ekki lokið“ Kristján Loftsson hefur að sögn Heiðrúnar verið í sambandi við SFS. Hún vonar að hann hafi svigrúm til að ráða úr sinni stöðu og væntir þess að málinu sé svo sannarlega ekki lokið. „Hvalur hf. er félagsmaður SFS og ég hef heyrt í forsvarsmanni þess félags,“ sagði Heiðrún aðsurð hvort hún hefði verið í sambandi við Kristján Loftsson, eiganda Hvals, í kjölfar ákvörðunar ráðherra. „Ég virði það við Kristján Loftsson á þessum tímapunkti að forgangur hans er að sjálfsögðu að takmarka tjón og huga að þeim starfsmönnum sem voru mættir til vinnu og áttu að mæta til vinnu, í dag og á morgun, 150 manns,“ sagði hún. „Þannig ég vona að hann hafi svigrúm til þess að ráða fram úr þessari stöðu með sínu fólki og með sínum lögfræðilegu ráðgjöfum. Ég vænti þess líka að þessu máli sé svo sannarlega ekki lokið,“ sagði Heiðrún að lokum. Mótmæltu fordæmalausri ákvörðun. Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi birtu einnig yfirlýsingu á vef sínum í gær sem er titluð „Fordæmalausri ákvörðun matvælaráðherra mótmælt“. Samtökin gera þar alvarlegar athugasemdir við þá stjórnsýslu að stöðva veiðar á langreyðum með dagsfyrirvara. Þar segir að rök ráðherrans að þessu sinni lúti að dýravelferð og að þær aðferðir sem beitt sé við veiðarnar standist ekki óskilgreindar kröfur um velferð dýra. „Hvergi kemur fram í lögum hver séu ásættanleg viðmið í þessum efnum þegar kemur að hvalveiðum og álitamál er hvort hvalveiðar falli undir lög um velferð dýra því um þær gilda sérlög,“ segir í yfirlýsingu SFS. „Matvælaráðherra sagði sjálfur fyrir um mánuði síðan að ekki væri lagalegur grundvöllur til að stöðva veiðar á langreyðum og til þyrfti lagabreytingar með aðkomu Alþingis. Nú hefur ráðherranum snúist hugur á grundvelli tveggja blaðsíðna álits fagráðs, sem breytir í engu fyrrgreindum rökum,“ segir einnig. Ráðherra sendi kaldar samfélagslegar kveðjur Í yfirlýsingunni segir að veiðar á langreyðum séu eins og aðrar veiðar á villtum dýrum, þær feli í sér „áhættu og dauðastríð“ en markmið veiða sé alltaf að fella dýrið, „ef frá eru taldar veiðar til skemmtunar á villtum laxi.“ Samtökin segja að það sé ekki alltaf auðvelt að fella dýr, allra síst á sjó, en leyfishafar hvalveiða hafi „sýnt vilja í verki til þess að leita leiða til að bæta aðferðir við veiðarnar með athugun á nýrri tækni svo draga megi frekar úr þjáningu dýrsins.“ Með ákvörðun sinni skeyti ráðherra engu um „lífsviðurværi þeirra ríflega 150 starfsmanna sem hafa atvinnu af umræddum veiðum, auk allra þeirra sem þjónusta starfsemina, beint og óbeint.“ Hinar samfélagslegu kveðjur séu því kaldar. Heiðrún Lind Marteinsdóttir framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi á Sjávarútvegsdeginum 2023 ásamt Þorstein Má Baldvinssyni, forstjóra Samherja.Vísir/Vilhem Eigi ekki að láta tilfinningar og pólitíska skammtímahagsmuni stjórna Samtökin segja að það hafi verið stefna íslenskra stjórnvalda um langa hríð að nýta beri sjávarauðlindir við Ísland. Sett hafi verið skýr löggjöf „sem tryggi að veiðarnar séu sjálfbærar, byggðar á vísindalegum grunni, lúti eftirliti og séu í samræmi við alþjóðalög.“ Íslendingar hafi lengi dregið fram lífið með því að nýta þessar auðlindir og atvinnuréttindi við veiðar séu tryggð í stjórnarskrá. Þegar stjórnvöld hrófli við þessum stjórnarskrárvörðu réttindum þurfi mikið að koma til og gæta þurfi meðalhófs „svo fótunum sé ekki kippt undan fólki og velsæld þjóðar í skiptum fyrir pólitíska skammtímahagsmuni.“ Loks segir í yfirlýsingunni að deilan um veiðar á langreyðum snúist ekki lengur um hvað sé forsvaranlegt út frá sjálfbærri nýtingu, heldur hvað fólki finnist. „Það getur verið erfitt að takast á um tilfinningar, enda sýnist sitt hverjum, eins og vonlegt er.“ Stjórnvöld verði hins vegar að horfa til vísindalegra og lagalegra forsendna þegar kemur að veigamiklum ákvörðunum um nýtingu auðlinda, veiða við Ísland, og „láta um leið af sínum eigin tilfinningum og pólitísku skammtímahagsmunum.“
Sjávarútvegur Hvalveiðar Hvalir Matvælaframleiðsla Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Tengdar fréttir Tekur upp hanskann fyrir ráðherra og segir bannið óumflýjanlegt Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata og fyrrverandi þingmaður Vinstri grænna tekur upp hanskann fyrir matvælaráðherra vegna ákvörðunar um að leggja á tímabundið bann við hvalveiðum, það hafi verið óumflýjanlegt. 21. júní 2023 21:15 Skyndilegt bann ekki góð stjórnsýsla að sögn bæjarstjórnar Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar segist furða sig á vinnubrögðum matvælaráðherra í tengslum við skyndilegt bann á hvalveiðum út sumarið. Stjórnin segir atvinnu- og tekjumissi fjölda heimila ein afleiðinga þess. 21. júní 2023 20:54 Stjórnin gæti haltrað áfram í ástlausu hjónabandi Stjórnarandstaðan greinir á um hvort að ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra um bann við hvalveiðum hafi verið rétt en tímasetningin kom flestum á óvart. Það blasi við að sambúðin á ástlausu stjórnarheimilinu sé orðin krefjandi. 21. júní 2023 15:00 Svandís með dóma á bakinu fyrir ólögmæta stjórnsýslu Efasemdir hafa vaknað um lögmæti ákvörðunar Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra um að stöðva hvalveiðar. Þannig hefur Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur efast um réttmæti hennar og sagt að hún standist mögulega ekki kröfur um meðalhófsreglu. Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra hefur lýst samskonar efasemdum. 21. júní 2023 12:00 Mest lesið Hafi verið látinn fljúga þrátt fyrir þekkt andleg veikindi Innlent Vissu ekki að þeir væru að ræna Kim Kardashian Erlent Réðust á tvo menn á göngu Innlent Bogi les sinn síðasta fréttatíma á morgun Innlent Telur að Selenskí geti samþykkt að gefa eftir Krímskaga Erlent Rúmur helmingur óhress með Trump Erlent Hljóðheimur sumarsins í hættu: Mikil fækkun lóu og spóa Innlent „Ég vildi óska að fólk gæti séð drenginn minn eins og hann er“ Innlent Kjördagur framundan í Kanada Erlent Sixtínsku kapellunni lokað vegna páfakjörs Erlent Fleiri fréttir Tekur við sem framkvæmdastjóri Bergsins Headspace Hafi verið látinn fljúga þrátt fyrir þekkt andleg veikindi Alþingi kemur saman á ný eftir páskafrí Réðust á tvo menn á göngu Fjölgun safngripa kallar á stækkun Flugsafnsins Hljóðheimur sumarsins í hættu: Mikil fækkun lóu og spóa Höllu dreymir um að fá gróðurhús á Bessastaði Bogi les sinn síðasta fréttatíma á morgun Hælisleitendur í einangrun: Versta úrræðið sem hægt er að beita Geðheilbrigði í fangelsum og fækkun lóu og spóa Áætlun Trump gangi engan veginn upp Vill selja bílastæðahús borgarinnar og Iðnó Ráðamenn hneykslast á Exit-auglýsingu SFS Mikill viðsnúningur hjá Árborg í fjármálum sveitarfélagsins Amman handleggsbrotin eftir hundsbit með barnabarnið í göngutúr Kvenkyns ökumönnum fækkað: Áhyggjuefni ef almenningur treystir ekki leigubílstjórum Áhyggjur leigubílstjóra og kólnandi hagkerfi Óvissa um heimshagkerfið og úrsögn Sólveigar Önnu „Ég vildi óska að fólk gæti séð drenginn minn eins og hann er“ Töldu Akureyringa ekki reka alvöruflugfélag Hefur áhyggjur af rekstri skólans undir Rafmennt Vita ekki hver áhrif fyrirætlanna Meta verða Jón Ólafsson segir skilið við útvarpið Nýtt og glæsilegt svínabú í Eyjafirði fyrir 400 gyltur Aukið eftirlit til muna eftir brot bílstjórans gegn konunni Útför páfa og afbrot leigubílstjóra Hreindýr í sjónum við Djúpavog Rukkaði konuna fyrir heimferðina eftir að hafa nauðgað henni Réðu niðurlögum sinuelds við Húsafell Bensínverð rjúki upp en fari hægt niður Sjá meira
Tekur upp hanskann fyrir ráðherra og segir bannið óumflýjanlegt Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata og fyrrverandi þingmaður Vinstri grænna tekur upp hanskann fyrir matvælaráðherra vegna ákvörðunar um að leggja á tímabundið bann við hvalveiðum, það hafi verið óumflýjanlegt. 21. júní 2023 21:15
Skyndilegt bann ekki góð stjórnsýsla að sögn bæjarstjórnar Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar segist furða sig á vinnubrögðum matvælaráðherra í tengslum við skyndilegt bann á hvalveiðum út sumarið. Stjórnin segir atvinnu- og tekjumissi fjölda heimila ein afleiðinga þess. 21. júní 2023 20:54
Stjórnin gæti haltrað áfram í ástlausu hjónabandi Stjórnarandstaðan greinir á um hvort að ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra um bann við hvalveiðum hafi verið rétt en tímasetningin kom flestum á óvart. Það blasi við að sambúðin á ástlausu stjórnarheimilinu sé orðin krefjandi. 21. júní 2023 15:00
Svandís með dóma á bakinu fyrir ólögmæta stjórnsýslu Efasemdir hafa vaknað um lögmæti ákvörðunar Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra um að stöðva hvalveiðar. Þannig hefur Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur efast um réttmæti hennar og sagt að hún standist mögulega ekki kröfur um meðalhófsreglu. Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra hefur lýst samskonar efasemdum. 21. júní 2023 12:00