Innlent

Þrjá­tíu ára deilum um Hvamms­virkjun lokið

Árni Sæberg og Kristján Már Unnarsson skrifa
Haraldur Þór Jónsson, oddvita Skeiða- og Gnúpverjahrepps, við Þjórsá, sem verður virkjuð með Hvammsvirkjun.
Haraldur Þór Jónsson, oddvita Skeiða- og Gnúpverjahrepps, við Þjórsá, sem verður virkjuð með Hvammsvirkjun. Stöð 2/Sigurjón

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkti nú undir kvöld framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun. Sveitarstjórn Rangárþings-ytra ákvað í dag að fresta kosningu um málið og Landsvirkjun getur því ekki enn hafist handa við framkvæmdir við virkjunina. 

Þrátt fyrir frestun í Rangárþingi-ytra er fastlega búist við því að framkvæmdaleyfið verði samþykkt þar á föstudaginn í næstu viku. Andstaðan gegn Hvammsvirkjun var fyrst og fremst Skeiða- og Gnúpverjahreppsmegin við Þjórsá en framkvæmdaleyfið var samþykkt með miklum meirihluta atkvæða sveitarstjórnarmanna hreppsins. Fjórir greiddu atkvæði með og einn á móti. Í salnum voru þó staddir mótmælendur.

Ekki ríkir sátt um Hvammsvirkjun í Skeiða- og Gnúverjahreppi.Stöð 2/Sigurjón

Setja á fót eftirlitsnefnd með framkvæmdunum

Kristján Már Unnarsson skellti sér að bökkum Þjórsár og ræddi við Harald Þór Jónsson, oddvita Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Hann segir ekkert hik hafa verið á sveitarstjórn hreppsins líkt og á nágrönnum þeirra hinum megin við ána.

„Það hefur mikil vinna farið í að fara yfir framkvæmdaleyfisumsóknina og fara yfir allt málið og niðurstaðan af þeirri vinnu er ítarleg greinargerð, sem við leggjum fram, sem rammar inn sextán skilyrði gagnvart framkvæmdinni og í fyrsta sinn á Íslandi erum við að stofna eftirlitsnefnd, sem mun fylgjast með framkvæmdinni og tryggja það að öllum fyrirvörum verði uppfyllt,“ segir hann.

Engar stórframkvæmdir alveg á næstunni

Landsvirkjun hefur þegar boðið út fyrstu undirbúningsáfanga framkvæmda við Hvammsvirkjun. Tilboð verða opnuð strax í næstu viku og stefnt er að því að hefja framkvæmdir í næsta mánuði.

Hér mun stíflan rísa.Vísir/Kristján Már

„Þetta er í rauninni allt að fara af stað. En í sjálfu sér framkvæmdir við virkjunina sjálfa, stöðvarhúsið og svo framvegis, það er ekki að hefjast á þessu ári. Það er fyrst og fremst vegagerð og aðstöðusköpun sem mun hefjast á þessu ári. Það er áætlað að það fari níu hundruð ársverk í byggingu virkjunarinnar og hún muni taka um það bil fjögur ár,“ segir Haraldur Þór.

Þrjátíu ára deilum lokið

Haraldur Þór segir það fjarri lagi að fullkomin sátt sé um framkvæmdina í sveitarfélaginu.

„Ég held að engin framkvæmd hafi orsakað jafnmiklar deilur. Þetta er á þriðja áratug sem undirbúningur hefur staðið yfir. Nei, ég get nú ekki sagt að það sé sátt en á einhverjum tímapunkti þarf málið að enda og það er ákveðinn léttir að við séum á þeim tímapunkti í dag og getum farið að horfa fram á veginn.“

Þetta landssvæði í Þjórsárdal fer undir inntakslón Hvammsvirkjunar.Stöð 2/Sigurjón

Tengdar fréttir

Sveitar­stjórn frestar af­greiðslu á fram­kvæmda­leyfi fyrir Hvamms­virkjun

Sveitarstjórn Rangárþings ytra hefur ákveðið að fresta afgreiðslu á umsókn Landsvirkjunar um framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun til næsta aukafundar sveitarstjórnar. Lagt er til að umhverfisnefnd sveitarfélagsins gefist kostur á að fjalla um málið í ljósi þess að nýjar upplýsingar um ákveðna umhverfisþætti hafi borist sveitarstjórn.

Lands­virkjun greiðir 19,5 milljarða í arð

Hagnaður Landsvirkjunar fyrir óinnleysta fjármagnsliði nam 14,8 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi, en var 10,7 milljarðar á sama tímabili í fyrra og hækkar því um 40,6 prósent milli ára. Aðalfundur félagsins samþykkti að greiða eiganda sínum íslenska ríkinu um 19,5 milljarða króna í arð.

Ný Þjórsárbrú við Árnes gæti farið í útboð í haust

Ný brú yfir Þjórsá á móts við þorpið Árnes er núna á lokastigi hönnunar og gæti farið í útboð í haust. Brúin styttir vegalengdir um tugi kílómetra milli efstu byggða í Árnes- og Rangárvallasýslu en brúarsmíðin er hluti af vegagerð Landsvirkjunar vegna fyrirhugaðrar Hvammsvirkjunar.

Landsvirkjun áformar meiri orkuöflun á fjórum stöðum

Ný orkuöflun Landsvirkjunar stefnir í að verða mjög umfangsmikil á næstu árum, að sögn forstjórans. Auk Hvammsvirkjunar áformar fyrirtækið stækkun virkjana á Þeistareykjum og við Sigöldu sem og vindorkulund við Búrfell.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×