Setur stefnuna á undanúrslit EM Aron Guðmundsson skrifar 6. júní 2023 23:30 Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari u19 karlaliðs Íslands í fótbolta Vísir/Skjáskot Leikmannahópur undir 19 ára karlalandsliðs Íslands í knattspyrnu, fyrir komandi Evrópumót á Möltu í næsta mánuði, var opinberaður í dag. Tveir af bestu leikmönnum liðsins, þeir Orri Steinn Óskarsson og Kristian Nökkvi Hlynsson, fengu ekki grænt ljós frá sínum félagsliðum á að leika með Íslandi á mótinu.
Íslenska liðið á fyrir höndum ærið verkefni á EM á Möltu í næsta mánuði þar sem að liðið er í riðli með Spánverjum, Grikkjum og Norðmönnum. Ljóst er að Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari liðsins, þarf að finna svör í leik sinna manna í tengslum við fjarveru Orra Steins og Kristians Nökkva, sem komu saman að flestum mörkum Íslands í undankeppni mótsins. Orri Steinn Óskarsson hefur skorað sex af síðustu níu mörkum u19 ára landsliðsinsVísir/Hulda Margrét „Hvorki Orri Steinn né Kristian Nökkvi fengu leyfi til þess að fara með okkur í mótið,“ sagði Ólafur Ingi eftir að hópur liðsins hafði verið opinberaður. „Það er eitthvað sem við vorum búnir að undirbúa. Félögin geta neitað okkur leikmennina og því vissum við að það væri möguleiki á því að þessir tveir leikmenn, sem eru á þessum tíma að fara hefja undirbúningstímabil með aðalliðum sinna félagsliða, fengju ekki að vera með.“ Hann segir stöðuna sem upp er komin aðallega svekkjandi fyrir leikmennina sjálfa. „Leiðinlegt fyrir þá að missa af möguleika á að fara í lokakeppni, það er gríðarleg reynsla sem þeir missa af þar og þeir hafa náttúrulega verið stór þáttur í þessu liði. Maður er því mest svekktur fyrir þeirra hönd.“ Ísland sé hins vegar með hörkulið, gott lið, það komi bara maður í manns stað. „Daníel Tristan Guðjohnsen kemur til að mynda inn í hópinn á ný. Hann var með okkur í nóvember og þar er á ferðinni frábær leikmaður. Svo eigum við leikmann eins og Hilmi Rafn Mikaelsson of fleiri sem geta skorað mörk. Ég hef engar áhyggjur af þessu. Kristian Nökkva er hins vegar að finna í landsliðshópi Íslands, sem er jafnan fyrsti landsliðshópurinn sem Åge Hareide velur. Ólafur Ingi setur sig ekki upp á móti því að Kristian Nökkvi leiki með A-landsliðinu í komandi verkefni. „A-liðið gengur alltaf fyrir og það var í rauninni aldrei neitt vandamál af okkar hálfu. Við vissum að Ajax myndi ekki hleypa honum í verkefnið með u19 liðinu og hann stendur til boða fyrir u21- og A-landslið okkar. Kristian Nökkvi Hlynsson er leikmaður hollenska stórliðsins Ajax og átti stóran þátt í að koma U19-landsliðinu á EM.VÍSIR/HULDA MARGRÉT Kristian Nökkvi er náttúrulega bara frábær leikmaður, framtíðar leikmaður íslenska landsliðsins. Ég fagna því bara að hann sé núna með A-landsliðinu, það er frábært tækifæri fyrir hann.“ Ólafur Ingi segir undirbúning fyrir komandi Evrópumót, sem fer fram í Möltu í næsta mánuði, ganga vel. „Við náum aðeins að hitta þá leikmenn sem eru hérna heima í glugganum. Þar munum við farið náið í ýmsa hluti sem við höfum kannski ekki tíma í að fara yfir í Möltu. Svo verður lagt af stað 30. júní en leikmenn eiga þangað til eftir að spila leiki með sínum félagsliðum. Menn verða því bara fyrst og fremst að halda sér í formi og spila vel með sínum liðum og mæta í góðu formi út til Möltu.“ Þá eru markmiðin skýr fyrir komandi mót. „Markmiðið er klárlega að komast upp úr riðlinum og í undanúrslit. Ég hef sagt það margoft í tengslum við þetta lið að þegar að við hittum á okkar dag, eins og við gerðum úti í Englandi þar sem við unnum Ungverja sem og Englendinga og gerum jafntefli við Tyrki, þá eigum við möguleika gegn öllum liðum. Ef við náum hámarks frammistöðu, þá tel ég okkur alveg geta komist upp úr þessum riðli.“ Klippa: Stefnan sett á undanúrslit á EM
Landslið karla í fótbolta Mest lesið „Hvernig getur þetta gerst á fótboltaleik?“ Fótbolti Ofurhlaupari lést á skoska hálendinu Sport Ægir Þór óttaðist að ferlinum væri lokið Körfubolti Svíar syrgja handboltahetju: „Svo djöfullega ósanngjarnt“ Handbolti Messi keypti spænskt fótboltafélag Fótbolti Tyrkneska hlaupatilraunin mistókst Sport Vignir Vatnar sneri upp á Evrópumeistara Sport Alexander Helgi frá KR í Njarðvík Íslenski boltinn Cristiano Ronaldo ældi inn í klefa Fótbolti Rekinn rétt fyrir HM Fótbolti Fleiri fréttir Valur - ÍBV | Gera fyrrum félagar Hermanns honum skráveifu? Lofsungu Glódísi: „Stolt að geta deilt þessari stund með einstökum leikmanni“ Rekinn rétt fyrir HM Lærisveinar Lampard geta tryggt sér sæti í úrvalsdeildinni Þorsteinn og Glódís sátu fyrir svörum fyrir leik við England Rose sagður taka við af Iraola Villa gæti sent Chelsea í Meistaradeild Evrópu Búningsklefi FC Basel eyðilagðist í bruna Al Hilal ekki lengur í eigu ríkissjóðsins Vonar að Wood sé ekki alvarlega meiddur Cristiano Ronaldo ældi inn í klefa „Hvernig getur þetta gerst á fótboltaleik?“ Messi keypti spænskt fótboltafélag Alexander Helgi frá KR í Njarðvík Mark Alberts ekki nóg og Crystal Palace upplifði sögulegt kvöld Forest sló tíu Porto-menn út og mætir Villa í undanúrslitum NSÍ Runavík heldur áfram góðri byrjun undir stjórn Sigga Ragga Segir stuðningsmönnum Arsenal að njóta, ekki gagnrýna Stuðningsmenn kosta Þór og Víking hundruð þúsunda „Hann mun líklega missa starfið, án þess að eiga það skilið“ Gabríel Snær seldur til Svíþjóðar Launin ekki aðalatriði og bónus að hafa fjölskylduna nálægt Fyrrum markmaður Arsenal og Juventus lést í bílslysi Fagnað titli á 24 leikja fresti en segir nú bless Messi lögsóttur fyrir að spila ekki vináttuleik Gervigreindin gaf Alberti engan séns hjá Bayern Freyr fær fríspil á meðan hörð átök geysa utan vallar hjá Brann Leikmenn Arsenal völdu Rice sem fyrirliða Infantino fullviss um að Íran muni spila á HM Átti Camavinga skilið spjald? „Ekki eins og hann taki boltann og negli honum í burtu“ Sjá meira