Ekkert ferðaveður á morgun og hinn Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 27. maí 2023 13:29 Það er ekkert ferðaveður þó þetta sé mikil ferðahelgi. Vísir/Vilhelm Gular og appelsínugular viðvaranir eru í gildi fram eftir degi. Veðurfræðingur segir enn eina lægðina á leið til landsins en veður eigi að batna eftir helgi.
Appelsínugul viðvörun er í gildi á Austfjörðum vegna norðvestan storms eða roks. Má þar búast við 20 til 28 metrum á sekúndu fram eftir degi og allt að 35 metrum á sekúndu í hviðum. Viðvörunin er í gildi þar til klukkan þrjú síðdegis. Á norðurlandi eystra var gul viðvörun í gildi fram á hádegi og til klukkan þrjú á Austurlandi að Glettingi. Á miðhálendinu og Suðausturlandi er gul viðvörun sömuleiðis í gildi til klukkan þrjú. „Það er lægð sem var fyrir norðaustan land og er á leiðinni austur núna. Henni fylgdi norðvestan strengur sem að var nú á öllu Norðurlandi í nótt en er að færast austur á bóginn og hangir yfir Austurlandinu fram eftir degi,“ segir Eiríkur Örn Jóhannesson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands. Margir eru á ferðalagi um landið vegna Hvítasunnu. „Það er ekkert ferðaveður búið að vera seinnipart gærdagsins, í nótt og í dag. Það verður aðeins betra í kvöld en svo snýst aftur í suðavestanátt á morgun og verður víða á bilinu átta til fimmtán metrar.“ Og það veður verði út mánudaginn. Þegar líði á vikuna ætti veður að batna. „Útlitið fyrir vikuna er nokkuð gott víðast hvar á landinu. Það er útlit fyrir að hæð komi hér yfir landið með hægari vindi og þokkalegum hlýindum en útlit samt fyrir að það verði viðloðandi skýjaflákar eða -breiður við Vesturlandið,“ sagði Eiríkur Örn Jóhannesson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands.
Veður Tengdar fréttir Appelsínugul viðvörun og úrkomusvæði nálgast Appelsínugul viðvörun er nú í gildi á Austfjörðum og gul víðar um landið. Á Austfjörðum er spáð norðvestan 20-28 metrum á sekúndu og gert ráð fyrir að vindhviður geti farið yfir 35 metra á sekúndu. 27. maí 2023 09:38 Illviðri yfir fyrstu ferðahelgina: „Bílar gætu jafnvel fokið“ Lítið sem ekkert ferðaveður verður yfir hvítasunnuhelgina, sem oft er kölluð fyrsta ferðahelgi ársins. Veðurfræðingur segir bálhvasst verða í nótt og í fyrramálið en að bjart og fallegt verði yfir laugardaginn á vestanverðu landinu. 26. maí 2023 19:59 Mest lesið Ökumaður bifhjólsins látinn Innlent Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Innlent Ísland leggur til fólk í finnskar herstöðvar Innlent Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Innlent „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Innlent Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Innlent Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Erlent Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Innlent Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Innlent Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar Innlent Fleiri fréttir Skýjað með skúrum í höfuðborginni Rigning í Reykjavík en hlýtt og gott fyrir austan „Við sáum að veðrið var best fyrir austan þannig við drifum okkur austur“ Hiti nær tuttugu stigum víða á morgun Fínasta veður um land allt Hægviðri, hafgola og hiti að átján stigum Skúrir á víð og dreif Rigning með köflum sunnan- og vestanlands Skúrir víða um land og lægð nálgast Allkröpp lægð á leiðinni til landsins Skýjað og skúrir en ekki of kalt Allt að sautján stiga hiti í dag Búast má við töluverðum dembum Rigning víða í dag Skýjað og væta í flestum landshlutum Áfram hlýjast á Vesturlandi Hlýjast á Vesturlandi Gular viðvaranir í kortunum Hiti gæti náð sautján stigum suðaustantil Bætir í úrkomu í kvöld Rigning eða súld um landið allt Lægðardrag yfir landinu Hiti að sextán stigum Allt að átján stiga hiti fyrir vestan Allt að tuttugu stiga hiti Að átján stigum suðvestanlands Fjögurra daga bongóblíða í vændum Væta víðast hvar og hiti að sautján stigum Rigning og hvassviðri með suðurströndinni Bjart með köflum en blæs úr austri í kvöld Sjá meira
Appelsínugul viðvörun og úrkomusvæði nálgast Appelsínugul viðvörun er nú í gildi á Austfjörðum og gul víðar um landið. Á Austfjörðum er spáð norðvestan 20-28 metrum á sekúndu og gert ráð fyrir að vindhviður geti farið yfir 35 metra á sekúndu. 27. maí 2023 09:38
Illviðri yfir fyrstu ferðahelgina: „Bílar gætu jafnvel fokið“ Lítið sem ekkert ferðaveður verður yfir hvítasunnuhelgina, sem oft er kölluð fyrsta ferðahelgi ársins. Veðurfræðingur segir bálhvasst verða í nótt og í fyrramálið en að bjart og fallegt verði yfir laugardaginn á vestanverðu landinu. 26. maí 2023 19:59