Hugbúnaðarfélagið Men & Mice selt til alþjóðlegs keppinautar
![Magnús Eðvald Björnsson hefur verið forstjóri Men & Mice frá árinu 2016 og fer með rúmlega fimm prósenta hlut í fyrirtækinu.](https://www.visir.is/i/16399D26D3147D63C16DE87B8A7FB3DE40AE0A51A6F015FCCF78D1D44D939BB4_713x0.jpg)
Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Men & Mice, sem er að stærstum hluta óbeint í eigu lífeyrissjóða, hefur verið selt til alþjóðlega félagsins BlueCat Networks. Ekki fást upplýsingar um kaupverðið en félagið var verðmetið á um 3,5 milljarða króna um síðustu áramót og hefur virði þess margfaldast frá því að sjóður í rekstri Stefnis keypti ráðandi hlut í Men & Mice fyrir um fjórum árum.