Frá þessu greindi Hareide í Dagmálum á mbl.is.
„Ég tjáði honum það að persónulega þá væri ég mjög áhugasamur um það að fá hann aftur í landsliðið,“ segir Hareide. „Ég myndi elska að fá hann aftur og það væri bæði gott fyrir hann held ég og líka fyrir leikmannahópinn.“
Gylfi Þór losnaði nýlega úr farbanni á Bretlandseyjum eftir að hafa sætt rannsókn vegna ásakana um kynferðisbrot. Hareide sagði strax á sínum fyrsta fundi sem landsliðsþjálfari í apríl að hann horfði til Gylfa.
„Það er gott fyrir hann að málinu sé lokið. Ég fann virkilega til með honum. Ég hef hitt hann. Hann er fínn gaur og frábær leikmaður en hann hefur ekki spilað í tvö ár þannig ég get ekki talað mikið meira um hann,“ sagði Hareide.
„Hann sjálfur verður að ákveða hvort hann vill spila aftur. Ef hann gerir það verður hann augljóslega í mínum áætlunum. Ef hann heldur sama standard og áður. En ég er mjög ánægður því að hann sé laus allra mála því þetta hljóta að hafa verið tvö ár í helvíti fyrir hann.“
Gylfi hefur leikið 78 landsleiki og skorað 25 mörk. Hann er þriðji markahæsti leikmaður landsliðsins frá upphafi.