Snýr aftur úr veikindaleyfi í ágúst Atli Ísleifsson skrifar 11. maí 2023 08:31 Jakob Ellemann-Jensen er formaður Venstre, varnarmálaráðherra Danmerkur og aðstoðarforsætisráðherra. EPA Jakob Ellemann-Jensen, varnarmálaráðherra Danmerkur og formaður Venstre, mun snúa aftur úr veikindaleyfi í byrjun ágústmánaðar. Ráðherrann fór í veikindaleyfi fyrir þremur mánuðum síðan og vísaði þar til í álags.
Í færslu á Facebook segir Ellemann-Jensen að hann hafi, eftir samtöl við lækna og sálfræðinga, ákveðið að snúa aftur 1. ágúst, þegar pólitíkin fer aftur á fullt að loknu sumarfríi. Hann segir ennfremur að hann muni þá aftur sinna öllum verkefnum sem eru á könnu þeirra embætta sem hann gegnir, það er formanns Venstre, varnarmálaráðherra og aðstoðarforsætisráðherra. Þá segir að hann hafi verið hvattur af læknum til að byrja þegar nú að taka sækja einhverja fundi með samstarfsfólki og samkomur til að vera betur búinn undir það að snúa aftur af fullum krafti í ágúst. Ellemann-Jensen greindi frá því í febrúar að hann hafi að læknisráði ákveðið að fara í veikindaleyfi. Hann hafi þá verið undir miklu álagi í lengri tíma og líkami hans hafi verið farinn að sýna þess merki. Í fjarveru Ellemann-Jensen hefur efnahagsmálaráðherrann Troels Lund farið með skyldur varnarmálaráðherra. Venstre myndaði í lok síðasta árs ríkisstjórn með Jafnaðarmannaflokki Mette Frederiksen forsætisráðherra og Moderaterne, flokki Lars Løkke Rasmussen, fyrrverandi forsætisráðherra og formanns Venstre og núverandi utanríkisráðherra.
Danmörk Mest lesið Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Innlent Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Innlent Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Erlent Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Innlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Innlent Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Innlent Fleiri fréttir „Fátækasti forseti heims“ látinn Einn lifði rúmlega hundrað metra fall af og gekk eftir hjálp Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Tugir sagðir liggja í valnum eftir loftárásir Fingrafar leiddi til handtöku hálfri öld eftir morð Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Trump hitti Sýrlandsforseta í Sádi-Arabíu Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Tveir frambjóðendur myrtir á nokkrum dögum Hóta að standa í vegi „fallegs“ frumvarps Mætir ræningjunum í fyrsta sinn Segja ekki hvort Pútín ætli að hitta Selenskí Sakfelldur fyrir að hafa beitt konur kynferðisofbeldi Staðfesta ábyrgð Rússa á því að malasíska þotan var skotin niður Trump með verri ímynd á heimsvísu en Xi og Pútín Sláandi tölur um aflýst flug til Nuuk-flugvallar Málverk af Grænlandi undir stjórn Trumps vekur athygli „Táknrænt sterk“ forysta Grænlands hefst í dag Bandaríkjaforseti vill þiggja lúxusþotu frá Katar að „gjöf“ Sakar Rússa um að hafa brennt stærstu verslunarmiðstöð Póllands Leysa upp samtökin og leggja niður vopn Vopnahlé hélt í nótt og viðræðum fram haldið Láta bandarískan gísl lausan Mun bíða Pútíns í Tyrklandi á fimmtudag Vilja leggja réttarríkið til hliðar „Mikilvæg skref“ en allt velti á því hvort Pútín sé í stuði fyrir frið Vopnahléið heldur en vígahugur ríkir enn Hafnar aftur almennu vopnahléi og leggur til viðræður Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Sjá meira