Efling færir margra milljarða verðbréfaeign sína alfarið til Landsbankans
![Perla Ösp Ásgeirsdóttir var ráðin framkvæmdastjóri Eflingar en hún hafði áður starfað í ellefu ár sem framkvæmdastjóri áhættustýringar hjá Landsbankanum.](https://www.visir.is/i/54E624151782EE19CB3F20322E3BD9F0578C263812ABB663E81ED4152AF21966_713x0.jpg)
Stéttarfélagið Efling var með samtals nálægt tíu milljarða króna í verðbréfasjóðum og innlánum hjá Landsbankanum um síðustu áramót eftir að hafa ákveðið að losa um allar eignir sínar í öðrum fjármálafyrirtækjum og færa þær alfarið yfir til ríkisbankans. Verðbréfaeign Eflingar lækkaði um 284 milljónir að markaðsvirði á liðnu ári, sem má að stærstum hluta rekja til boðaðra aðgerða fjármálaráðherra um að ÍL-sjóður yrði settur í slitameðferð náist ekki samningar við kröfuhafa um uppgreiðslu skulda hans.