CRI að fá inn nýja fjárfesta sem metur félagið á yfir tuttugu milljarða
![Einn stærsti áfangi í sögu CRI náðist í fyrra þegar ný verksmiðja sem keyrir á ETL-tækni félagsins tók til starfa í austurhluta Kína. Framleiðslugeta verksmiðjunnar, sem er um 25 sinnum stærri en sú fyrsta sem var gangsett í Svartsengi, er um 110 þúsund tonn af metanóli á ári.](https://www.visir.is/i/32A1290DCB0ED72FFD9AB724E47880E798F6A3E17B956115C7E154738751DEC9_713x0.jpg)
Íslenska tæknifyrirtækið Carbon Recycling International (CRI), sem framleiðir metanól úr koltvísýringi og vetni, er nú á lokametrunum með að klára liðlega fjögurra milljarða króna hlutafjáraukningu frá alþjóðlegum fjárfestum í því skyni að hraða vexti félagsins. Áætlað er að CRI verði metið á yfir tuttugu milljarða króna í því hlutafjárútboði sem er leitt áfram af hollenska bankanum ING.