Meistararnir komnir á toppinn Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 30. apríl 2023 15:00 Manchester City er mætt aftur á toppinn. Marc Atkins/Getty Images Það var enginn Kevin de Bruyne í byrjunarliði Man City í dag. Í hans stað var heimsmeistarinn Julián Álvarez með Erling Braut Håland í framlínunni. Sú ákvörðun hjá Pep Guardiola átti eftir að borga sig. Það tók norska undrið ekki langan tíma að koma gestunum yfir en hann skoraði úr vítaspyrnu strax á þriðju mínútu leiksins. Tim Ream, miðvörður Fulham, gerðist brotlegur innan vítateigs og það nýtti Håland sér. Á einhvern undraverðan hátt jöfnuðu heimamenn metin án þess þó varla að hafa skapað sér færi þegar aðeins stundarfjórðungur var liðinn. Harry Wilson skallaði boltann á Carlos Vinícius sem skoraði og staðan orðin 1-1. Þegar 36 mínútur voru á klukkunni kom Álvarez gestunum yfir á nýjan leik. Lét Argentínumaðurinn vaða af löngu færi og söng boltinn í markvinklinum vinstra megin. Staðan 2-1 Man City í vil þegar flautað var til loka fyrri hálfleiks. 61% - Among players with 10+ starts for a Premier League team this season, Erling Haaland (67%) is the only player who has scored in a higher percentage of his starts across all competitions than Julián Álvarez (61% - 11/18). Depth. pic.twitter.com/7RNGDh21wa— OptaJoe (@OptaJoe) April 30, 2023 Ekkert var skorað í síðari hálfleik og fór Man City með sigur af hólmi, lokatölur á Craven Cottage 1-2 meisturunum í vil. Sigurinn lyftir Man City upp fyrir Arsenal og á topp ensku úrvalsdeildarinnar. Meistararnir eru með 76 stig eftir 32 leiki á meðan Arsenal er með 75 stig í 2. sætinu hafandi leikið einum leik meira. Fótbolti Enski boltinn