Það er The Guardian sem greinir frá vendingunum en margir ráku upp stór augu þegar að Die Aktuelle kom út á dögunum og á forsíðunni var stór mynd af Michael Schumacher og gefið í skyn að hægt væri að lesa fyrsta viðtalið við hann, eftir að hann lenti í skelfilegu skíðaslysi árið 2013, í umræddu blaði.
Michael Schumacher er á nokkurs vafa þekktasta nafn Formúlu 1 mótaraðarinnar. Á sínum tíma sem ökumaður varð Schumacher sjöfaldur heimsmeistari og sá ökumaður sem hefur, ásamt Bretanum Sir Lewis Hamilton, unnið felsta heimsmeistaratitla.
Eftir Formúlu 1 ferilinn sneri hann sér að öðrum áhugamálum en í desember árið 2013 bárust af því fréttir að Schumacher hefði slasast alvarlega í skíðaslysi í frönsku Ölpunum.
Síðan þá hefur lítið frést af líðan Schumachers. Fjölskylda hans hefur virt þá ósk hans, sem var einnig ríkjandi á meðan á Formúlu 1 ferli hans stóð, að einkalífi hans og fjölskyldunnar skuli haldið fjarri kastljósi fjölmiðla.
Ákvörðun Die Aktuelle um að láta eins og að Schumacher hefði veitt þeim viðtal og að setja það á forsíðu tímaritsins hefur skiljanlega valdið mikilli hneykslan. Í nýlegri tilkynningu frá stjórnendum tímaritsins segir að ritstjóra þess hafi verið sagt upp störfum.
„Þessi smekklausa og villandi grein hefði aldrei átt að birtast,“ segir meðal annars í yfirlýsingu frá Die Aktuelle. „Hún er engan vegin í samræmi við þær kröfur sem gerðar eru til fjölmiðla og blaðamanna.“
Með það til hliðsjónar hafi ritstjóranum, Anne Hoffmann, sem gegnt hefur starfinu síðan árið 2009 verið sagt upp störfum.
Þá hafa stjórnendur tímaritsins beðið Schumacher fjölskylduna afsökunar.