Besti hópurinn sem Arnar hefur verið með Valur Páll Eiríksson skrifar 22. mars 2023 22:31 Arnar Þór segir hópinn ekki hafa verið betri í hans stjórnartíð. Vísir/Diego Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari Íslands, kveðst aldrei hafa verið með betri leikmannahóp í höndunum heldur en í yfirstandandi verkefni þar sem Ísland spilar fyrstu tvo leiki sína í undankeppni EM 2024.
Fjölmargir leikmenn hafa verið fjarverandi í stjórnartíð Arnars með landsliðið. Meiðsli hafa haft sitt að segja en einnig bönn frá Knattspyrnusambandi Íslands eftir að skandall skók sambandið haustið 2021 þegar þónokkrum leikmanna var gert að víkja vegna rannsóknar á meintum brotum þeirra gegn konum. Margir þeirra sem fóru með Íslandi á EM 2016 og HM 2018 hafa nú snúið aftur í hópinn eftir ýmist meiðsli eða bönn og kveðst Arnar ekki hafa haft betri hóp áður. „Ég get alveg verið sammála því. Ég sagði það líka í síðustu viku að það var erfiðast fyrir mig og okkur að velja þennan hóp. Það eru leikmenn sem eru ekki í hópnum sem eiga það fyllilega skilið líka,“ sagði Arnar á blaðamannfundi fyrir komandi leik Íslands við Bosníu annað kvöld. „Það er eitthvað sem er mjög jákvætt og eitthvað sem við getum tengt við það sem við byrjuðum á 2022, þá lögðum við upp í það að byggja upp sterkari hóp og yrðum betur undir þessa keppni búnir,“ sagði Arnar enn fremur. Ísland mætir Bosníu klukkan 19:45 annað kvöld í Bosníu. Vísir fylgir liðinu eftir og mun lýsa leiknum beint á vefnum auk þess að gera allt saman upp í leikslok.
Landslið karla í fótbolta EM 2024 í Þýskalandi Mest lesið City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Enski boltinn Björk segir öllum þjálfurum upp Sport Lúxemborg - Ísland | Hvernig svara menn fyrir sig? Fótbolti Uppgjörið: Ísland - Sviss 5-1| Draumurinn um EM lifir Fótbolti Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Handbolti Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Handbolti Átti aldrei að geta hlaupið aftur en vann Bakgarðinn Sport Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Íslenski boltinn Leikdagur í Lúx: Rodrigues er fífl Fótbolti Arnar fái silkihanskameðferð: „Um hvað ertu að tala?“ Fótbolti Fleiri fréttir Stressaður Arnar verði að vinna: „Er þetta of flókið?“ Tékkland - England | Hvað gerir Kane í Prag? Uppgjörið: Ísland - Sviss 5-1| Draumurinn um EM lifir „Þýðir ekkert að væla yfir stöðunni“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Þakklátur Gylfi Þór byrjar í kvöld: „Núna er þetta öðruvísi“ Gylfi Þór kemur inn í byrjunarlið Íslands Lúxemborg - Ísland | Hvernig svara menn fyrir sig? Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane 50 Íslendingar meðal 8.500 áhorfenda Arnar fái silkihanskameðferð: „Um hvað ertu að tala?“ Leikdagur í Lúx: Rodrigues er fífl City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Ætlar að dreifa fé í aðdraganda kosninga Líklegra að Ísland verði í næstneðsta flokki Fluttur á sjúkrahús með alvarlega áverka eftir slys í mötuneyti Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Heimir gaf frí Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Kristall fékk tveggja leikja bann Ítalir völtuðu yfir Tyrki í Tyrklandi Olise reyndist hetja Frakka í Belgíu Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ „Eins og það væri verið að loka mig inni á heimavist“ Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins „Það hefur enginn áhuga á að hlusta á það“ Sjáðu fundinn: Arnar og Hákon sátu fyrir svörum í Lúxemborg Sjá meira