Lífið

Upp­­­ljóstraði leyndar­­málunum á bak við hina full­komnu dívu­­förðun

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Rakel María galdraði fram þessa stórkostlegu förðun á söngkonuna Siggu Ózk á glæsilegu förðunarkvöldi Rakelar og Reykjavík Makeup School nú á dögunum.
Rakel María galdraði fram þessa stórkostlegu förðun á söngkonuna Siggu Ózk á glæsilegu förðunarkvöldi Rakelar og Reykjavík Makeup School nú á dögunum. Elísabet Blöndal

Það var mikið um dýrðir í Sykursalnum í Grósku nú á dögunum þegar förðunarfræðingurinn Rakel María Hjaltadóttir hélt þar förðunarkvöld, eða svokallað masterclass, í samstarfi við Reykjavík Makeup School.

Rakel María hefur á síðustu árum skapað sér stórt nafn í bransanum og er óhætt að segja að hún sé orðin einn af eftirsóttustu förðunarfræðingum landsins. Hún lærði einnig hárgreiðslu og starfaði lengi sem hárgreiðslukona í Borgarleikhúsinu. Í dag stýrir hún förðunardeild Stöðvar 2.

Rakel er ein sú allra færasta þegar kemur að svokallaðri dívuförðun enda hefur hún farðað og greitt mörgum af helstu dívum landsins fyrir hin ýmsu tilefni. Það var því mikil aðsókn á námskeiðið þar sem Rakel uppljóstraði sínum helstu leyndarmálum á bak við hina fullkomnu glamúrförðun og stórt dívuhár.

Það lá beinast við að fá eina alvöru dívu til þess að vera módel fyrir förðunina og fékk Rakel því enga aðra en tónlistarkonuna Siggu Ózk til að sitja fyrir. Sigga tók svo að sjálfsögðu lagið í lok kvöldsins og skemmtu gestir sér konunglega.

Hér fyrir neðan má sjá myndir sem ljósmyndarinn Elísabet Blöndal tók á þessu vel heppnaða kvöldi.

Stjarna kvöldsins, Rakel María.Elísabet Blöndal
Viðburðurinn fór fram í hinum glæsilega Sykursal í Grósku.Elísabet Blöndal
Rakel María ásamt eigendum Reykjavík Makeup School, þeim Ingunni Sig og Heiði Ósk.Elísabet Blöndal
Vigdís, Guðný Björg, Ingunn, Rakel, Heiður og Elva Björk.Elísabet Blöndal
Rakel byrjaði á því að krulla hárið á Siggu.Elísabet Blöndal
Þegar verið er að gera mikla augnförðun finnst Rakel gott að byrja á augunum áður en hún gerir húðina.Elísabet Blöndal
Beauty Blender er algjört töfratól þegar kemur að förðun.Elísabet Blöndal
Rakel er mikill gleðigjafi og nutu gestir þess að hlusta á hana lýsa hverju skrefi.Elísabet Blöndal
Hin stórglæsilega Heiður Ósk, annar eigandi Reykjavík Makeup School.Elísabet Blöndal
Ingunn Sig, annar eigandi Reykjavík Makeup School, geislar á meðgöngunni. Hún á von á sínu fyrsta barni.Elísabet Blöndal
Dökk skygging og glimmer voru í aðalhlutverki í þessari glæsilegu förðun.Elísabet Blöndal
Meistaraverkið farið að taka á sig góða mynd.Elísabet Blöndal
Rakel byrjaði á því að krulla hárið. Svo leyfði hún krullunum að bíða á meðan hún farðaði Siggu. Að förðuninni lokinni kláraði hún svo hárið.Elísabet Blöndal
Lokaútkoman var sannkallað listaverk!Elísabet Blöndal
Vá, vá, vá!Elísabet Blöndal
Stjarna kvöldsins.Elísabet Blöndal
Sigga Ózk tók svo að sjálfsögðu lagið.Elísabet Blöndal

Hér fyrir neðan má sjá fleiri myndir frá kvöldinu.

Elísabet Blöndal
Elísabet Blöndal
Elísabet Blöndal
Elísabet Blöndal
Elísabet Blöndal
Elísabet Blöndal
Elísabet Blöndal
Elísabet Blöndal
Elísabet Blöndal
Elísabet Blöndal
Elísabet Blöndal
Elísabet Blöndal
Elísabet Blöndal
Elísabet Blöndal
Elísabet Blöndal
Elísabet Blöndal
Elísabet Blöndal
Elísabet Blöndal
Elísabet Blöndal
Elísabet Blöndal
Elísabet Blöndal
Elísabet Blöndal
Elísabet Blöndal
Elísabet Blöndal
Elísabet Blöndal
Elísabet Blöndal
Elísabet Blöndal


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.