Lífið

Hita upp fyrir Óskars­verð­launin

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Samúel Karl, Dóra Júlía og Kristín Ólafs hita upp fyrir Óskarinn með sérstökum þætti sem finna má í pistlinum hér að neðan.
Samúel Karl, Dóra Júlía og Kristín Ólafs hita upp fyrir Óskarinn með sérstökum þætti sem finna má í pistlinum hér að neðan. Vilhelm/Sara Rut

Dóra Júlía Agnarsdóttir og Kristín Ólafsdóttir ætla að fylgja lesendum Vísis í gegnum Óskarinn á sunnudaginn. Þær, ásamt Samúel Karli Ólasyni, þjófstörtuðu gleðinni með stórskemmtilegum upphitunarþætti sem sjá má hér að neðan.

Í upphitunarþættinum fara þau Dóra Júlía, Kristín og Samúel yfir helstu tilnefningarnar í ár. Þá rifja þau upp eftirminnilegar myndir sem hlotið hafa verðlaunin í gegnum tíðina og fara yfir ýmis söguleg augnablik hátíðarinnar.

Dóra Júlía og Kristín Ólafs verða með beina textalýsingu af Óskarnum inn á Vísi á sunnudagskvöld.Vilhelm/Sara Rut

Óskarsverðlaunin verða sýnd í beinni útsendingu á Stöð 2 á sunnudagskvöld. Útsendingin hefst klukkan 23:00 þegar fyrstu stjörnurnar mæta á rauða dregilinn. Verðlaunaafhendingin sjálf hefst svo á miðnætti. Dröfn Ösp Snorradóttir Rozas verður kynnir í útsendingunni en Dóra Júlía og Kristín Ólafsdóttir munu sjá um beina textalýsingu hér á Vísi.

Hér að neðan má horfa á upphitunarþáttinn í heild sinni.


Tengdar fréttir

Sara Gunnarsdóttir til­nefnd til Óskars­verð­launa

Tilnefningar til Óskarsverðlauna voru tilkynntar rétt í þessu og kom skemmtilega á óvart að sjá íslenskt nafn þar á lista. Það er listakonan Sara Gunnarsdóttir sem tilnefnd er fyrir teiknuðu stuttmyndina My Year of Dicks.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.