Ísfélagið kaupir í Ice Fish Farm og verður einn stærsti hluthafinn
![Stærsti hluthafi Ísfélags Vestmannaeyja er Guðbjörg Matthíasdóttir en eigið fé útgerðarfélagsins stóð í nærri 24 milljörðum króna í árslok 2021.](https://www.visir.is/i/4E134BAAD1DBF5455E6476308385656B04D45CAA8B20DD49464C1E4A8299665F_713x0.jpg)
Ísfélag Vestmannaeyja hefur náð samkomulagi við aðaleiganda Ice Fish Farm um kaup á 16 prósenta hlut í laxeldisfyrirtækinu á Austfjörðum. Viðskiptin verðmeta Ice Fish Farm, sem er skráð á Euronext-markaðinum í Osló, á 55 milljarða íslenskra króna sem er 70 prósentum yfir markaðsvirði fyrirtækisins í gær.