Innlent

Skipuð ráðu­neytis­stjóri í ráðu­neyti Lilju

Atli Ísleifsson skrifar
Lilja D. Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra og Sigrún Brynja Einarsdóttir, nýr ráðuneytisstjóri.
Lilja D. Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra og Sigrún Brynja Einarsdóttir, nýr ráðuneytisstjóri. Vísir/Vilhelm/Stjr

Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra hefur skipað Sigrúnu Brynju Einarsdóttur í embætti ráðuneytisstjóra í menningar- og viðskiptaráðuneytinu til fimm ára frá og með 1. apríl næstkomandi.

Frá þessu segir á vef ráðuneytisins. Þar kemur fram að Sigrún Brynja sé með Candjur próf í lögfræði og alþjóðlega IMPA D-vottun í verkefnastjórnun. Hún hefur starfað sem skrifstofustjóri á skrifstofu menningar og fjölmiðla hjá menningar- og viðskiptaráðuneytinu frá árinu 2022.

„Áður hafði Sigrún Brynja gegnt embætti skrifstofustjóra í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu frá árinu 2016. Starfaði hún þar á undan sem forstöðumaður nefndarsviðs Alþingis í átta ár.

Alls bárust sjö umsóknir um embættið sem var auglýst þann 27. desember en umsóknarfrestur rann út þann 23. janúar. Hæfnisnefnd var skipuð til að meta hæfi umsækjenda.

Sex umsækjendur voru boðaðir í viðtal og niðurstaðan eftir ráðningarviðtölin var sú að Sigrún Brynja væri hæfust umsækjenda til að taka við starfi ráðuneytisstjóra. Byggist það á sjálfstæðu mati ráðherra, að teknu tilliti til greinargerðar hæfnisnefndar, á starfsreynslu umsækjenda, menntun, forystuhæfileikum, leiðtogahæfni, frammistöðu í ráðningarviðtölum, og almennri stjórnunarreynslu.

Skipað er í starf ráðuneytisstjóra til fimm ára,“ segir í tilkynningunni.

Þau sjö sem sóttu um stöðuna voru:

  • Ásgeir Brynjar Torfason, doktor í fjármálum
  • Daníel Svavarsson, skrifstofustjóri
  • Eyjólfur Vilberg Gunnarsson, fv. sparisjóðsstjóri
  • Gísli Halldór Halldórsson, fv. bæjarstjóri
  • Sigrún Brynja Einarsdóttir, skrifstofustjóri
  • Sigurður Erlingsson, fv. forstjóri
  • Þröstur Óskarsson, sérfræðingur



Fleiri fréttir

Sjá meira


×