„Við erum að taka skref fram á við í hverju verkefni“ Andri Már Eggertsson skrifar 2. mars 2023 22:06 Arnar Pétursson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í handbolta. Vísir/Hulda Margrét Íslenska kvennalandsliðið í handbolta vann sex marka sigur á B-liði Noregs 31-26. Arnar Pétursson, þjálfari íslenska liðsins, var ánægður sigurinn. „
Ég bjóst ekki við því að við myndum vinna þetta með sex mörkum. Þrátt fyrir að við vorum að spila við B-lið Noregs þá eru þetta hörku leikmenn og við kláruðum þetta mjög vel,“ sagði Arnar Pétursson aðspurður hvort úrslitin hafi komið honum á óvart. Arnar var þokkalega ánægður með fyrri hálfleik Íslands þar sem Ísland var einu marki yfir í hálfleik 15-14. „Handbolti er leikur áhlaupa og það var ekkert skrítið að þær komu til baka. Ég var mjög ánægður með hvernig við mættum til leiks af því að við erum að mæta sterkri þjóð og það var mikil trú í okkur. Ég var síðan ánægður með hvernig við svöruðum eftir að þær komu til baka sem var karaktereinkenni sem ég var mjög ánægður með.“ Arnar var afar ánægður með hvernig Ísland byrjaði síðari hálfleik og gestunum frá Noregi aldrei tækifæri til að koma til baka. „Við vorum að spila mjög góða vörn. Við höfum verið að reyna nýja hluti líkt og gegn Ísrael þar sem við vildum koma hærra upp. Ég var ekki viss hvernig það myndi virka gegn sterkari þjóð en Ísrael en það gerði það og stelpurnar voru ofboðslega vinnusamar og tóku frumkvæði varnarlega.“ Ísland mætir Ungverjalandi í umspili um sæti á HM í næsta mánuði en Arnar sagði að áherslur kvöldsins voru ekki miðaðar við leikinn gegn Ungverjalandi. „Ég miðaði áherslurnar í kvöld ekki við Ungverjaland. Ég er að horfa á það sem við erum að gera og leggja áherslu á að við séum að bæta okkar leik. Við erum að taka skref fram á við í hverju verkefni. Við gerðum það í kvöld og vonandi gerum við það líka á laugardaginn. Ungverjaland er síðan eftir mánuð og það er eitt af betri landsliðum heims og það verður annað krefjandi og spennandi verkefni,“ sagði Arnar Pétursson að lokum.
Landslið kvenna í handbolta Mest lesið Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Enski boltinn Snýr aftur á æfingar eftir 100 daga í burtu Fótbolti Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram Enski boltinn Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Handbolti Spilar áfram með Messi í Miami Fótbolti Spilaði 13 mínútur en var stigahæstur Körfubolti „Ef við hefðum ekki verið að setja þessi skot þá hefðum við skíttapað“ Körfubolti Ungstirnið skallaði meistarana áfram Enski boltinn Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Geggjaðar Eyjakonur á toppinn Þorsteinn Leó að ná sér „langt á undan áætlun“ Birtu tölvupóst þar sem efast er um heilsu forseta IHF Valdi ekki eigin leikmann í landsliðið Halda Orra og Sporting engin bönd Viktor Gísli stóð vaktina er fullkomið gengi Börsunga hélt áfram Snorri kynnir EM-fara í vikunni Mega handvelja lið utan Evrópu inn í Meistaradeildina EM ekki í hættu Á hækjum á milli leikja og þoldi sífellt verri sársauka Uppgjörið: Haukar - Fram 25-27 | Meistararnir unnu toppliðið í naglbít „Fannst við bara lélegir í kvöld“ Botnliðið hrellti Aftureldingu og KA lék sér að eldinum Flott endurkoma FH og Valur vann í 83 marka leik Elliði framlengir dvölina í Gummersbach Þórir í skýjunum: „Sit með lítið tár í augnkróknum“ Tíu mörk frá Hauki ekki nóg Reistad valin best og Katrine Lunde besti markvörðurinn Ómar Ingi fiskaði vítið sem gaf sigurmarkið í Íslendingaslag Katrine Lunde fékk draumaendinn sinn og þær norsku urðu heimsmeistarar Einar Bragi fór mikinn í mikilvægum sigri Afhentu Akureyringum fimmta tapið í röð Donni markahæstur í dramatískum sigri Frakkar fengu bronsið eftir spennutrylli Eyjakonur gerðu sér góða ferð upp á land Segir Norðmönnum að setja hana í karlalandsliðið sitt Íslendingaliðin unnu öll og skipa sér í þrjú efstu sætin Bjarki Már raðaði inn mörkunum í seinni hálfleik Stelpurnar okkar mættar aftur í Olís deildina Sjá meira