Kemur í ljós eftir viku hvort hnúturinn raknar Heimir Már Pétursson skrifar 1. mars 2023 19:40 Ástráður Haraldsson settur ríkissáttasemjari greinir frá nýrri miðlunartillögu sinni, sem hann segist aldrei hefði getað lagt fram á fullvissum um að hún færi í atkvæðagreiðslu hjá báðum deiluaðilum. Vísir/Vilhelm Ef miðlunartillaga setts ríkissáttasemjara verður samþykkt heggur hún á hnút hörðustu kjaradeilu í landinu á síðari árum. Tillagan gerir ráð fyrir sömu launahækkunum og aðrir hafa fengið en þernur á hótelum og bílstjórar olíufélaganna og Samskipa fá að auki hækkun um launaflokk og áhættuþóknun.
Samningar Eflingar eins og annarra á almennum vinnumarkaði voru lausir hinn 1. nóvember. Eftir að öll aðildarfélög Starfsgreinasambandsins önnur en Efling ásamt VR og iðnaðar- og tæknifólki náði samningum við Samtök atvinnulífsins í byrjun desember, hefur deila Eflingar og SA farið stöðugt harðnandi. Segja má að deilan hafi síðan færst upp á nýtt stig eftir að Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari lagði fram miðlunartillögu sína hinn 26. janúar. Efling neitaði að veita aðgang að félagatali sínu til að hægt yrði að greiða atkvæði um tillöguna og upphófst mikil rekistefna. Í framhaldinu tóku við mikil átök með fyrstu röð verkfalla Eflingar sem hófust hinn 7. febrúar, dómsmálum fyrir Félagsdómi, héraðsdómi og Landsrétti og nýr sáttasemjari var skipaður í deilunni. Þá héngu yfir hótanir um frekari verkföll og verkbann á alla félagsmenn Eflingar að hálfu Samtaka atvinnulífsins. Í Pallborðinu síðast liðin föstudag var ljóst að möguleikarnir í stöðunni voru ekki margir.Stöð 2/Arnar Þegar forystufólk Eflingar og SA mættust í Pallborðinu á Vísi og Stöð 2-Vísi á föstudag lá fyrir að nánast útilokað var að ná kjarasamningi áður en verkbann skylli á. Aðeins væru tveir möguleikar í stöðunni, ný miðlunartillaga eða lagasetning að hálfu Alþingis. Samstaða um atkvæðagreiðslu algert lykilatriði Ástráði Haraldssyni settum ríkissáttasemjara tókst loks seint í gærkvöldi eða nótt að leiða deiluaðila til sameiginlegrar niðurstöðu. Ástráður Haraldsson settur ríkissáttasemjari tók við deilunni hinn 16. febrúar.Vísir/Vilhelm „Ég hef ákveðið að leggja fram nýja miðlunartillögu í deilu SA og Eflingar,“ sagði Ástráður í upphafi yfirlýsingar sinnar á fréttamannafundinum. Setning sem beðið hafði verið eftir lengi. Hann sagði tillöguna nánast samhljóða fyrri miðlunartillögu og kæmi í stað hennar. Hún fæli í sér sams konar launahækkanir og samið hefði verið um við Starfsgreinasambandið. Á því væru þó undantekningar. Verkföllum og verkbanni væri frestað þar til atkvæðagreiðslu sem hefst á föstudag lyki á miðvikudags morgun. Ástráður segist aldrei hefði getað lagt tillöguna fram án þeirrar vissu að greidd yrðu um hana atkvæði hjá báðum deiluaðilum. „Þetta embætti hefur búið við það upp á síðkastið að þær valdheimildir, þær takmörkuðu valdheimildir, sem það taldi sig hafa, þær hafa ekki reynst það haldreypi sem ég að minnsta tel nauðsynlegt að embættið hafi. Þess vegna var auðvitað tilgangslaust miðað við stöðu mála að ég færi að setja fram einhverja tillögu nema ég hefði einhverja vissu fyrir því að hún yrði raunverulega borin undir atkvæði,“ sagði Ástráður Haraldsson. Sólveig Anna segir þernur og bílstjóra fá töluverðar bætur Formaður Eflingar segir miðlunartillöguna fela í sér umtalsverðar kjarabætur fyrir starfsfólk hótela og bílstjóra olíufélaganna og Samskipa. Tillagan væri ásættanleg í ljósi þess að Samtök atvinnulífsins hafi aldrei ætlað sér að semja við félagið. Framkvæmdastjóri SA er ekki sáttur við að félag sem fer í verkfall fái afturvirkar launahækkanir eins og tillagan gerir ráð fyrir. Embætti ríkissáttasemjara hefur sett upplýsingar um miðlunartillöguna á heimasíðu sína en á þeirri síðu hefst atkvæðagreiðsla um tillöguna á hádegi á föstudag og lýkur klukkan tíu á miðvikudagsmorgun. Grafík/Kristján Kauptaxtar aðalkjarasamnings hækka á bilinu 35 til rétt rúmar 52 þúsund á mánuði eða að meðaltali um um 42.000 krónur. Hlutfallsleg hækkun kauptaxta verður á bilinu 9.5% til 13% og meðalhækkun rúmlega 11%. Mánaðarlaun félagsfólks sem tekur ekki laun samkvæmt kauptöxtum kjarasamnings hækka um kr. 33.000 frá 1. nóvember 2022. Sólveig Anna Jónsdóttir segir þetta löglega framkomna miðlunartillögu sem sáttasemjari hafi ráðgast við samninganefnd Eflinar um. Muntu þú mæla með því við þína félagsmenn og konur að þau greiði atkvæði með þessari tillögu? Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir þernur og bílstjóra fá verulegar bætur samkvæmt miðlunartillögunni og samningi við olíufélögin og Samskip.Vísir/Vilhelm „Ég mun auðvitað gera það sem mér sem formanni félagsins og formanni samninganefndar ber að gera. Sem er að skýra frá því sem gerst hefur. Sem er að skýra með greinargóðum hætti frá innihaldi miðlunartillögunnar og öðru því sem fram kom í gær. Svo er það auðvitað félagsfólks sjálfs að taka ákvörðun,“ segir formaður Eflingar. Skoða verði niðurstöðuna í ljósi aðdragandans Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri samtaka atvinnulífsins segir að skoða verði þessa niðurstöðu í samhengi aðdragandans og að deilan hafi verið komin í algeran hnút. Deiluaðilar hefðu báðir gert sér grein fyrir ábyrgð sinni með yfirstandandi verkföllum og yfirvofandi verkbanni. Deilan hefði ekki getað komist í meiri hnút. Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri SA segir að skoða verði miðlunartillöguna í ljósi þess í hvað hnút deilan var komin.Vísir/Vilhelm „Að því leytinu til held ég að við getum ekki annað en verið ágætlega ánægð með þessa framlagningu. Jafnvel þótt við höfum gert athugasemd og barist gegn því að full afturvirkni yrði tryggð í þessari miðlunartillögu. Enda teljum við að það eigi ekki að verðlauna stéttarfélög sem framkvæma verkföll á umbjóðendur samtaka atvinnulífsins. Og við það er ég ósáttur,“segir Halldór Benjamín. Formaður Eflingar segir félagið sjálft standa uppi sem sigurvegari. Það væri sterkara eftir þá miklu samstöðu sem félagsmenn hefðu sýnt. Þá hafi ýmislegt annað áunnist. „Hótelstarfsfólkið, þernurnar, færast upp um einn launaflokk. Það er auðvitað líka ánægjulegt að sjá að þær manneskjur sem eru tilbúnar til að leggja niður störf fá þá betri útkomu. Svo er það auðvitað svo að náðst hefur samkomulag við Skeljung, Olíudreifingu og Samskip þar sem komið er til móts við okkar kröfur þar,“segir Sólveig Anna. Þessi atriði hafi gert miðlunartillögu mögulega. Þá hafi að lokum verið ráðgast viðsamninganefnd Eflingar áður en tillagan var lögð fram. Settur ríkissáttasemjari segir atkvæðagreiðslu hefjast á hádegi á föstudag og ljúka klukkan tíu á miðvikudagsmorgun.Vísir/Vilhelm „En svo er það auðvitað svo að það var ekki fyrr en nýr sáttasemjari kom í málið að einhver tilraun var gerð til að knýja á um að samtal ætti sér stað á milli deiluaðila. Það hafði aldrei verið gert áður,“segir formaður Eflingar. Framkvæmdastjóri SA segir rétt að halda til haga að launataflan í þessari tillögu væri sú sama og í SGS samningnum. Þetta væru í öllum meginatriðum sömu kjarasamningarnir. „Ég held að það sé alveg óhætt að segja að það hafi margir þurft að gefa einhvern afslátt af sinni nálgun á lífið og tilveruna í þessu. Þannig er raunveruleikinn oft. Hann er hvorki svartur né hvítur. Galdrarnir gerast oft á gráa svæðinu,“segir Halldór Benjamín Þorbergsson.
Kjaraviðræður 2022-23 Efnahagsmál Kjaramál Vinnumarkaður Tengdar fréttir Rétt ákvörðun að greiða atkvæði um tillöguna Formaður Eflingar vill ekki segja hvort hann mæli með því að félagar greiði atkvæði með miðlunartillögu sáttasemjara en það sé rétt ákvörðun að halda atkvæðagreiðslu. Yfirvofandi verkbann og kjarabætur fyrir þernur og bílstjóra voru á meðal ástæðna þess að samninganefnd Eflingar gat sætt sig við að láta greiða atkvæði um tillöguna. 1. mars 2023 11:33 Ósáttur við fulla afturvirkni Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins (SA) segist ætla að hvetja félagsmenn til þess að greiða atkvæði með miðlunartillögu ríkissáttasemjara. Hann væntir þess að forysta Eflingar geri slíkt hið sama en er ósáttur með að afturvirknin sé inni í tillögunni. 1. mars 2023 10:50 Öllum verkföllum og verkbanni frestað Öllum verkföllum og verkbanni verður frestað þar til niðurstaða atkvæðagreiðslu um nýja miðlunartillögu ríkissáttasemjara liggur fyrir. 1. mars 2023 10:06 Bein útsending: Ástráður kynnti nýja miðlunartillögu Ástráður Haraldsson settur ríkissáttasemjari í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins boðaði til fréttamannafundar klukkan tíu í morgun þar sem hann kynnti nýja miðlunartillögu í deilunni. 1. mars 2023 08:33 Gæti ráðist á næsta sólarhring hvort ný miðlunartillaga verði lögð fram Tími setts ríkissáttasemjara til að leggja fram nýja miðlunartillögu í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins fer að renna út vegna yfirvofandi verkbanns á mánudag. Hann er líka í þrengri stöðu en embættið var til að leggja fram slíka tillögu þar sem hann þarf að vera þess fullviss að báðir deiluaðilar muni samþykkja að tillaga hans fari í atkvæðagreiðslu. 28. febrúar 2023 19:30 Mest lesið Setti ofan í við Ingu: „Vert þú ekki með þennan skæting við mig“ Innlent Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Erlent Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Erlent „Þú veist að ég er sú sem að passar best hérna inn“ Innlent „Ég fæ ekki séð hvaða rugl þetta er“ Innlent „Kurr í greininni í dag um að þetta skuli hvort tveggja vera á matseðlinum“ Innlent Fyrsti læknirinn í heilbrigðisráðuneytinu Innlent Segir Helga Magnús óhæfan til að gegna embættinu Innlent „Ég veit að þér mun sömuleiðis líða vel hér“ Innlent Yfirgaf jólatónleika í sjúkrabíl Innlent Fleiri fréttir „Heimsins furðulegasti fiskur“ afhentur í fjármálaráðuneytinu 107 ára gömul og dansar eins og unglamb Kirkjutröppurnar opnaðar að nýju og hiti í hverju þrepi Setti ofan í við Ingu: „Vert þú ekki með þennan skæting við mig“ Umferðartafir vegna bílveltu á Mýrum Lyklaskipti og afmæli elsta Íslendingsins Segir Helga Magnús óhæfan til að gegna embættinu „Þannig að jólin komu snemma hjá mér“ „Ég fæ ekki séð hvaða rugl þetta er“ Fyrsti læknirinn í heilbrigðisráðuneytinu Það bráðvantar börn á leikskólann á Hvanneyri „Þú veist að ég er sú sem að passar best hérna inn“ „Ein allra besta jólagjöfin“ „Ég veit að þér mun sömuleiðis líða vel hér“ Skortur á sjúkragæslu á viðburðum hafi áhrif á neyðarþjónustu Eftirliti á viðburðum ábótavant og skynsemi í orkumálum Vegir víða hálir á morgun og blint á fjallvegum Stjórnarleiðtogar sitja fyrir svörum á Sprengisandi „Afskaplega róleg“ nótt hjá lögreglumönnum Þakklæti, auðmýkt, rok og söngur ríkisstjórnarinnar „Kurr í greininni í dag um að þetta skuli hvort tveggja vera á matseðlinum“ Breytingar á ráðuneytum taka ekki gildi fyrr en í mars Mest skreytta jólahúsið í Hveragerði Yfirgaf jólatónleika í sjúkrabíl Ný ríkisstjórn Íslands: „Við erum orðnar vinkonur“ Allt um nýja ríkisstjórn Íslands í kvöldfréttum Krónan muni veikjast og allir halda að sér höndum Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB eigi síðar en 2027 „Mjög þunn súpa, lítið í henni“ Ætla að fjölga lögreglumönnum verulega Sjá meira
Rétt ákvörðun að greiða atkvæði um tillöguna Formaður Eflingar vill ekki segja hvort hann mæli með því að félagar greiði atkvæði með miðlunartillögu sáttasemjara en það sé rétt ákvörðun að halda atkvæðagreiðslu. Yfirvofandi verkbann og kjarabætur fyrir þernur og bílstjóra voru á meðal ástæðna þess að samninganefnd Eflingar gat sætt sig við að láta greiða atkvæði um tillöguna. 1. mars 2023 11:33
Ósáttur við fulla afturvirkni Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins (SA) segist ætla að hvetja félagsmenn til þess að greiða atkvæði með miðlunartillögu ríkissáttasemjara. Hann væntir þess að forysta Eflingar geri slíkt hið sama en er ósáttur með að afturvirknin sé inni í tillögunni. 1. mars 2023 10:50
Öllum verkföllum og verkbanni frestað Öllum verkföllum og verkbanni verður frestað þar til niðurstaða atkvæðagreiðslu um nýja miðlunartillögu ríkissáttasemjara liggur fyrir. 1. mars 2023 10:06
Bein útsending: Ástráður kynnti nýja miðlunartillögu Ástráður Haraldsson settur ríkissáttasemjari í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins boðaði til fréttamannafundar klukkan tíu í morgun þar sem hann kynnti nýja miðlunartillögu í deilunni. 1. mars 2023 08:33
Gæti ráðist á næsta sólarhring hvort ný miðlunartillaga verði lögð fram Tími setts ríkissáttasemjara til að leggja fram nýja miðlunartillögu í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins fer að renna út vegna yfirvofandi verkbanns á mánudag. Hann er líka í þrengri stöðu en embættið var til að leggja fram slíka tillögu þar sem hann þarf að vera þess fullviss að báðir deiluaðilar muni samþykkja að tillaga hans fari í atkvæðagreiðslu. 28. febrúar 2023 19:30