Sendi Arnaldi handritið reglulega Samfélagið 11. febrúar 2023 09:00 Góður tökudagur á jöklinum, Óskar leikstjóri ásamt leikarahópnum: Atli Óskar Fjalarsson, Iain Glen, Óskar leikstjóri, Vivian Ólafsdóttir, Adwsuwa Oni og Jack Fox „Ég man ekki hvort ég fékk bókina gefins eða lánaða um jólin eftir að hún kom út 1999, en ég las hana allavega um það leyti,“ segir Óskar Þór Axelsson, leikstjóri myndarinnar Napóleonsskjölin sem frumsýnd var 3. febrúar síðastliðinn. „
Ég sá strax að hér var um að ræða bók sem í senn var mjög spennandi grunnur fyrir bíómynd ásamt því að vera kvikmyndategund sem við höfum ekki séð áður gerða í íslenskum raunveruleika. Reyndar hafði ég strax þá samband við útgefanda en þá var kvikmyndarétturinn frátekinn,“ segir Óskar. Hann tók að sér að leikstýra myndinni og hans fyrsta verk var að setjast niður með Arnaldi Indriðasyni, höfundi bókarinnar. „Ég byrjaði á að kynna honum sýn mína og fá blessun hans fyrir því hvernig ég sá fyrir mér myndina. Eftir það sendi ég honum reglulega handritið á meðan við vorum að koma því í tökuhæft form og þáði hjá honum góð ráð. Sama var uppi á teningnum þegar myndin var klippt, hans sjónarhorn á verkefnið með sína djúpu þekkingu á sögunni - en samt verandi alveg fyrir utan allt framleiðsluferlið - var gríðarlega mikilvægur brunnur fyrir mig að geta sótt í.“ Farið yfir málin með Wotan Wilke Möhring sem fer með hlutverk Simons Söguþráður myndarinnar hverfist um háleynileg skjöl frá seinni heimstyrjöld sem ákveðin öfl vilja alls ekki að gerð verði opinber. Þegar flugvél nasista sem hvarf í apríl 1945 með skjölin innanborðs, finnst óvænt á Vatnajökli í nútímanum fer af stað æsileg atburðarrás. Myndin gerist að stórum hluta uppi á jöklinum og í nágrenni hans. Eru einhver atriði í uppáhaldi hjá leikstjóranum? „Þetta er erfið spurning. Ætli það sé ekki kaflinn svona upp úr miðbiki myndarinnar þegar leikurinn færist alfarið úr þéttbýlinu og í átt að Vatnajökli. Þegar Carr (Iain Glen) heimsækir Einar bónda (Ólafur Darri) og á sama tíma fer Steve (Jack Fox) með Kristínu (Vivian Ólafs) til föður Kristínar, Jóhannesar (Þröstur Leó). Hérna er spennan tekin að magnast og á sama tíma smám saman að koma í ljós um hvað þetta vafstur á jöklinum snýst,“ útskýrir Óskar. Leikararnir ræða við Óskar á facetime en hann leikstýrði meðan hann var í covid-einangrun Tökur fóru fram meðan covid faraldurinn gekk yfir sem setti mark sitt á vinnuna en allt gekk þó nokkuð snurðulaust fyrir sig. Óskar varð reyndar sjálfur veikur meðan á tökum stóð en var sem betur fer nánast einkennalaus. „Ég var geymdur úti í trailer í einangrun og talaði bara við leikara og crew gegnum facetime,“ rifjar Óskar upp. Hann segir áhorfendur mega búa sig undir bæði spennu og stuð. „Þetta er hressandi, spennandi og á köflum pínu fyndin hasarmynd sem tekur sig bærilega hátíðlega og hefur það eina markmið að vera góð skemmtun fyrir alla fjölskylduna (fyrir 12 ára og eldri). Leikstjórinn segir leikurum til
Bíó og sjónvarp Kvikmyndahús Kvikmyndagerð á Íslandi Mest lesið Krummi kveður pabba sinn Lífið Útför Björgvins opin almenningi Lífið Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Lífið „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Lífið Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Lífið „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Lífið Einvígi aldarinnar endurtekið Lífið Joy Harmon er látin Bíó og sjónvarp „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Lífið Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Lífið Fleiri fréttir Golfvöllurinn í Eyjum tilnefndur sem sá besti í Evrópu Opnir fræðslufundir fyrir almenning um lífeyrismál Situr þú eins og rækja? Góð líkamsstaða byrjar á réttum stól Skóspark og Krakkadagar hjá Icewear: Gengið inn í vorið E.T. sýnd við lifandi undirleik Sinfó í Hörpu Infraklefar og sánur eru heilsutrendið sem allir eru að tala um Hugarafl er staður þar sem karlmenn fella niður grímuna Tryggðu þér sæti í sólinni áður en sumarið fyllist Pungrakvélin hefur slegið í gegn hjá Chad Grooming Hinn goðsagnakenndi óperusöngvari Sir Bryn Terfel kemur til Íslands Íslenskt heiðalamb frá Kjarnafæði í nýjum páskaumbúðum Galdurinn á bak við hinn fullkomna ljóma Frískaðu upp á heimilið með vinsælustu vorlitum Slippfélagsins Skaftfellsk perla fær alþjóðlega viðurkenningu Þessi smávægilega breyting sem kom jafnvægi á líðan Icewear leggur áherslu á strangari gæðakröfur en reglugerðir kveða á um „Ég vildi að ég hefði vitað af ykkur fyrr” ,,Þetta krem bjargaði húðinni á barninu okkar‘‘ Tannheilsa ungmenna veldur áhyggjum Góð tannhirða hefur bein áhrif á almenna heilsu líkamans Fermingarbörn virðast helst langa í raftæki og peninga Apple vörur eru fullkomin fermingargjöf Elvis heimsmeistari snýr aftur til Íslands Íslandsmeistaramót í spili alþýðunnar Ólsen ólsen Íslensk hönnun og vönduð efni skipta máli í upplifun gesta Þurrt hár og hvað er hægt að gera? Nýtt app frá Hreyfli komið í loftið Fjórar evrópskar perlur sem fullkomna vorferðina Langar þig að búa hluta árs í sólinni? Kynntu þér fasteignir á Spáni Unglingabólur eða úfið hár? Beautyklúbburinn er með lausnina Sjá meira