Innlent

Næsta vika gæti orðið fjögurra lægða vika

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Klassískt íslenskt vetrarveður.
Klassískt íslenskt vetrarveður. Vísir/Vilhelm

Mögulegt er að fjórar lægðir skelli á landsmönnum í næstu viku.

Þetta kemur fram á vef Blika, sem haldið er út af Einari Sveinbirnssyni, veðurfræðingu. Þar birtir hann langtímaspá út febrúarmánuð, sem byggð er á langtímaspá Evrópsku reiknimiðstövarinnar frá því í gær.

Bendir Einar á að næsta vika geti reynst lægðasöm.

„Lægðir mun áfram koma úr suðvestri. Mögulega fjórar: á mánudag, þriðjudag (lægðabylgja á skilum), á föstudag og sunnudag. Trúlega munu þær ekki flokkast sem meiriháttar. Leysing lengst af, kólnar heldur undir helgi, en hlýnar síðan aftur. Markvert hlýrra en í meðallagi. Ríkjandi S- og SV-áttir og klárlega spáð úrkomusömu sunnan- og vestanlands,“ skrifar Einar.

Gular viðvaranir eru í gildi fyrir allt landið í nótt og á morgun, vegna hvassviðriðs. Hefur veðurstofan bent á gott geti verið að fylgjast vel með veðri næstu dagana, þar sem áframhaldandi lægðagangur ætli lítið að gefa eftir.

Von er á suðvestan stormi eða rok, 20 til 28 metrum á sekúndu, þar sem hvassast verður í vindstrengjum við fjöll um norðvestanvert landið.

„Skúrir og síðar él, en úrkomulítið norðaustantil, og því víða takmarkað skyggni í skafrenning eða éljum. Samgöngutruflanir eru líklegar og hætt við foktjóni.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×