Innkalla lyf vegna áhættu á sýkingum af völdum sýklalyfjaónæmrar bakteríu Hólmfríður Gísladóttir skrifar 10. febrúar 2023 07:38 Fólk sem er að taka lyfið eða á það til er beðið um að skila því sem fyrst í næsta apótek. Lyfjastofnun hefur stöðvað sölu og ávísanir á sýklalyfið Staklox vegna áhættu á sýkingu af völdum sýklalyfjaónæmra baktería. Stofnunin hefur einnig innkallað lyfið frá þeim sjúklingum sem hafa fengið því ávísað.
Lyfjastofnun Danmerkur greindi frá því á dögunum að nokkrir sjúklingar sem höfðu fengið sýklalyfið Dicillin frá fyrirtækinu Sandoz hefðu fengið sýkingar af völdum sýklalyfjaónæmrar bakteríu. Tiltekin framleiðslulota lyfsins sem seld var í Danmörku reyndist menguð af bakteríunni, Enterobacter hormaechei. Sambærilegt lyf er í notkun hérlendis undir heitinu Staklox en það er í hylkjum frá sama framleiðanda. Ákveðið hefur verið að innkalla það þar sem einn einstaklingur hér á landi sem tók lyfið í júlí 2022 fékk sýkingu af völdum sömu bakteríu og greindist í Danmörku. Frá þessu er greint á vef Landlæknisembættisins og Lyfjastofnunar. Unnið er að því að rannsaka möguleg tengsl sýkingarinnar á Íslandi við sýkingarnar í Danmörku. Þeir sem eru að taka Staklox eru beðnir um að skila lyfin í næsta apótek sem fyrst en samheitalyf frá öðrum framleiðanda, Dicloxacillin Bluefish, verður afhent í staðinn fólki að kostnaðarlausu. Þá eru læknar á Íslandi beðnir um að ávísa á önnur sýklalyf til að viðhalda birgðum af samheitalyfinu, svo sem Keflex. Eftirfarandi leiðbeiningar er að finna á vef Lyfjastofnunar: Ef þú ert núna í Staklox lyfjameðferð, þá skaltu fara með lyfið í apótek. Þú færð í staðinn lyfið Dicloxacillin Bluefish sem er sama lyf og Staklox en frá öðrum framleiðanda. Þú munt fá nægilegt magn til þess að klára sýklalyfjameðferðina samkvæmt leiðbeiningum læknis og þarft ekki að greiða aukalega fyrir það. Þú þarft ekki að hafa samband við lækninn til þess að fá nýja sýklalyfjaávísun til að klára núverandi meðferð. Mögulegt er að búið sé að setja lyfið í aðrar umbúðir í apótekinu til þess að koma í veg fyrir að birgðir lyfsins klárist. Ef svo er, þá færð þú fylgiseðil lyfsins útprentaðan með afhentri pakkningu. Fylgiseðilinn má einnig nálgast í sérlyfjaskrá. Ef Dicloxacillin Bluefish er ekki fáanlegt í apótekinu, þá er mögulegt að þú þurfir að hafa samband við lækni til að fá nýja sýklalyfjaávísun. Ýmis önnur sýklalyf eru fáanleg. Ef þú hefur lokið Staklox meðferð og hefur engin einkenni um sýkingu þarftu ekki að gera neitt. Ef þú hefur fengið einkenni sýkingar, t.d. blöðrubólgu, þá skaltu hafa samband við lækni. Á vef Landlæknisembættisins segir að ekki hafi verið staðfest að Staklox hylki hafi mengast af bakteríunni sem greindist í Danmörku en ef það kemur í ljós vill embættið benda á eftirfarandi: Bakterían getur í einhverjum tilfellum tekið sér bólfestu í meltingarvegi (sýklun) og orðið hluti af sýklaflóru viðkomandi en ekki er vitað hve oft það gerist. Bakterían smitast ekki auðveldlega milli manna við venjuleg samskipti en getur borist á milli manna með náinni snertingu og saur-munn smiti eins og aðrir iðrasýklar. Sýklun leiðir ekki sjálfkrafa til sýkingar þar sem mikið af svipuðum bakteríum eru nú þegar í meltingarvegi. Sýklar í meltingarvegi geta þó valdið sýkingum, ekki síst þvagfærasýkingum. Engar vísbendingar eru um að þessi tiltekna baktería valdi frekar sýkingum en aðrar bakteríur af sömu tegund. Prófanir hafa leitt í ljós að þrátt fyrir greint sýklalyfjaónæmi er þessi baktería næm fyrir mörgum öðrum sýklalyfjum og því eru ýmsir meðferðarkostir í boði. Mikilvægt er að upplýsa ef einstaklingur hefur tekið mengað Staklox því það hjálpar að velja hentugt sýklalyf ef sýkingar koma upp. Mikilvægt er að upplýsa ef einstaklingur hefur tekið mengað Staklox ef hann leggst inn á sjúkrastofnun vegna möguleika á að sýkillinn dreifi sér innan stofnunar.“ Samkvæmt upplýsingum á fylgiseðli er Staklox notað við sýkingum af völdum „penicillínasamyndandi klasasýkla, t.d. við sárasýkingum, ígerðum, beinasýkingum og blóðeitrun.“
Heilbrigðismál Lyf Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Sjá meira