Lífið

Febrúarspá Siggu Kling er komin á Vísi

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Sigga Kling hefur spáð fyrir öll stjörnumerkin. Hvernig verður febrúar hjá þér? 
Sigga Kling hefur spáð fyrir öll stjörnumerkin. Hvernig verður febrúar hjá þér?  Vísir

Stjörnuspá Siggu Kling fyrir febrúar er lent á Vísi. Sigga Kling birtir stjörnuspá fyrir öll stjörnumerkin fyrsta föstudag hvers mánaðar.

Stjörnuspár Siggu Kling hafa notið gríðarlega vinsælda. Mánaðarlega spáir hún fyrir lesendum Vísis, í formi texta og myndbands, en spár hennar fyrir desember má sjá hér að neðan.

Sigga leggur leggja áherslu á að fólk geri það besta úr því sem það les, nýta sér orkuna, klappa sér á bakið og elska lífið. Spárnar einkennast af gleði, krafti, orku og jákvæðni en það eru skilaboðin sem hún vill senda til samfélagsins.

Nýársspá fyrir hvert stjörnumerki má finna í listanum hér að neðan.


Tengdar fréttir

Febrúarspá Siggu Kling - Vogin

Elsku Vogin mín, það eru ýmiskonar verkefni sem þú hefur þurft að leysa undanfarið. Og eins og þú ert dásamleg þá hefurðu hreint ekki haft þolimæði fyrir öllu og öllum.

Febrúarspá Siggu Kling - Ljónið

Elsku Ljónið mitt, það er eins og þú sért að lifa í lygasögu því að hrynjandinn í lífi þínu eru mjög sérkennilegur og þú átt febrúarmánuð.

Stjörnuspá Siggu Kling - Meyjan

Elsku Meyjan mín, láttu ekki blekkjast af þeim sem ekki tala satt, því að ef einu sinni er logið er manneskjan lygari. Farðu eftir eðlisávísun þinni, því þú veist hvað þú þarft að gera.

Febrúarspá Siggu Kling - Steingeitin

Elsku Steingeitin mín, þú hefur þann einstaka hæfileika eins og Steingeitin sjálf sem merkið heitir eftir að þú getur verið á pínulítilli syllu og einhver ætlar að ná þér eða að rugla þig í ríminu þá stekkurðu bara á minni syllu og skýtur þeim sem vilja gera þér óleik ref fyrir rass.

Febrúarspá Siggu Kling - Fiskarnir

Elsku Fiskurinn minn, þú þráir öryggið en samt sviðsljósið þó að þú viðurkennir það samt ekki fyrir sjálfum þér.

Febrúarspá Siggu Kling - Bogmaðurinn

Elsku Bogmaðurinn minn, síðustu þrír mánuðir hafa verið eins og veðurfarið á Íslandi. Nóvember var heitasti mánuðurinn síðan 1950, desember sá kaldasti síðan mælingar hófust og núna er bara allskonar.

Febrúarspá Siggu Kling - Krabbinn

Elsku Krabbinn minn, þú ert svo litríkur og svo margþættur karakter. Þú ert eins og hljóðfæri með þúsund nótum en þú hefur ekki verið að nýta þér þetta mikla sálarafl sem í þér býr.

Febrúarspá Siggu Kling - Nautið

Elsku Nautið mitt, Alheimurinn og lífið eru að sýna þér svo margt á þessari stundu. Þú átt það til að loka augunum fyrir því sem þú vilt ekki sjá og að ímynda þér að það sé ekki að gerast.

Febrúarspá Siggu Kling - Vatnsberinn

Elsku Vatnsberinn minn, þú ert að þroskast á ógnarhraða og þarft að taka tillit til þeirra sem halda ekki í við þig í augnablikinu. Þú þarft stöðugt að vera að breyta heimili þínu, fatasmekk eða að fara í nýja hópa og að þjálfa hið andlega í þér.

Febrúarspá Siggu Kling - Sporðdrekinn

Elsku Sporðdrekinn minn, nú skaltu bara búa þig undir hástökk í lífinu, því það er mikilvægt að vera tilbúinn í það sem að þér er rétt.

Febrúarspá Siggu Kling - Hrútur

Elsku Hrúturinn minn, lífið hjá þér hefur einkennst af miklum hraða og hindranirnar sem eru í veginum þínum eru að stoppa orkuna þína.

Febrúarspá Siggu Kling - Tvíburi

Elsku Tvíburinn minn, þú hefur verið svolítið eins og í kafsundi undanfarinn mánuð og þú hefur ekki alveg gefið þér tíma til þess að anda og að vera til, en það mikilvægasta sem þú gerir er einmitt að bara að vera. Þegar ég var töluvert yngri en ég er í dag stóð setningin „To be“ á bílnúmerinu mínu og það er akkúrat það sem ég meina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.