Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 7. október 2026 12:00 Tómas Guðbjartsson segir myndina og vinsældir hennar skipta miklu máli fyrir arfleifð John Snorra. Ný bíómynd um keppnina á topp K2 að vetrarlagi og hinstu för Johns Snorra er ein vinsælasta kvikmynd í heimi um þessar mundir á streymisveitunni Apple. Vinur Johns Snorra segir myndina skipta miklu máli fyrir arfleifð fjallgöngugarpsins.
Heimildarmynd um hinstu för íslenska fjallgöngugarpsins Johns Snorra upp á tind fjallsins K2 að vetri til árið 2021 kom út á dögunum á streymisveitu Apple. Þar situr hún í efsta sæti yfir vinsælustu myndir streymisveitunnar í Bandaríkjunum auk þess sem hún er meðal vinsælustu mynda veitunnar í fjölmörgum löndum. Myndin var sýnd fyrir smekkfullu Háskólabíó á sérstakri sýningu RIFF síðustu helgi en þar steig dóttir Johns Snorra, Halla Karen Johnsdóttir á svið og minntist föður síns. Tómas Guðbjartsson vinur Johns Snorra hélt utan um hátíðarsýninguna síðustu helgi. Skipuleggja hafi þurft aukasýningu vegna mikillar aðsóknar, um tvö þúsund manns hafi séð myndina um helgina. Hann segir myndina skipta miklu máli fyrir arfleifð John Snorra. Á Íslandi bar á gagnrýnni umræðu um för hans á fjallið sem ekki dró úr þegar ljóst var að hann hefði látist. „Þetta er mikilvægt fyrir arfleifð Johns Snorra sem íslensks afreksmanns, íslensks afreksmanns en þetta var líka bara góður maður og góð manneskja og það kom svo vel fram í máli Höllu dóttur hans hvernig manneskja hann var og það eru þarna ýmsar ytri aðstæður í fjallinu sem gera það að verkum að þetta gengur ekki upp. Þarna með honum er Ali Sadpara frægasti fjallgöngugarpur Pakistans, þetta eru tveir súpermenn að fara þarna upp en það gengur ekki og það er ýmislegt sem olli því og varð til þess að þetta tókst ekki sem skyldi,“ segir Tómas. Myndin varpi ljósi á það hvernig menn geti gengið á bak orða sinna þegar til kastanna kemur en þar sést hvernig hópur fjallgöngugarpa frá Nepal með einn frægasta fjallgöngugarp heims að nafni Nimsdai í broddi fylkingar varð á undan John Snorra og félögum upp á fjallið í skjóli nætur eftir mánaðar undirbúningsvinnu hinnar síðarnefndu sem höfðu borið upp birgðir og kaðla allan þann tíma. „Ég veit að þessi mynd á eftir að hreyfa við fjallgönguheiminum og einnig Nepal, vegna þess að þessi mynd kemur ekki nógu vel út fyrir þennan hóp Nepala sem fór þarna upp á tindinn með Nimsdai,“ segir Tómas. Hann segir sín kynni af Nepölum vera sú að þarna sé á ferðinni heiðarlegasta fólk sem hann hafi kynnst. „Þeir eru búddatrúar og það að hafa notað svik og pretti til að komast upp og vera fyrstir það á ekki eftir að falla í góðan jarðveg hjá sjerpunum sem búa þarna við rætur Everest en þetta gera menn í hita leiksins.“ Það sé með ólíkindum að kvikmyndagerðarmennirnir hafi náð því myndefni sem er í myndinni af samskiptum manna á milli um málið. Í myndinni eru því auk þess gerð skil hvernig ferðaþjónustufyrirtæki að nafni Seven Summits mætti með fimmtíu manns upp á fjallið, helming þeirra alls óreyndan í slíkum aðstæðum. „Og selja þessa ferð upp á fjallið að vetri til fyrir næstum því tuttugu milljónir á mann án þess að vera með nokkurn stjórnanda á fjallinu. Það náttúrulega leiddi til þess að þarna urðu andlát sem ekki hefðu þurft að vera.“ Myndin um John Snorra er sú vinsælasta á Apple streymisveitunni í Bandaríkjunum og víðar. Viðbrögðin og vinsældirnar sýni hve vel gerð hún sé. Tilfinningarnar séu allsráðandi. „Þessi mynd náttúrulega bara auglýsir sig sjálf, hún er það vel gerð. Það er þarna gríðarlega mikið myndefni sem er til og það er ótrúlegt hvernig leikstjóranum hefur tekist að fá svona mikið myndefni frá svona mörgum vinklum, frá svo mörgum aðilum, bæði úr símum og GoPro myndavélum og síðan er það auðvitað bara þessi söguþráður. Þetta hreyfir við fólki og það voru margir sem áttu erfitt með sig þarna í lok myndarinnar,“ segir Tómas.
Bíó og sjónvarp John Snorri á K2 Fjallamennska Tengdar fréttir Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Tómas Guðbjartsson segir John Snorra og samferðalanga hans í örlagaríkri vetrarferð á K2 hafa verið svikna af hópi Nepala sem hafi fundist nóg komið að vera alltaf varaskeifur hvítra ferðalanga. Þeir hafi komið sér fyrstir á toppinn að vetrarlagi í skjóli nætur. 30. september 2026 10:50 Mest lesið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Hvað veistu um… pitsur? Lífið Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Lífið Hætta við að hætta við að hætta við Tónlist Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Bíó og sjónvarp Sturluð skvísulæti í stórafmæli Tíska og hönnun Hræðilegir dagar í Partylandi Lífið samstarf Sjálfið okkar: Hvers vegna kaupum við nammi við kassann síðdegis? Áskorun Fleiri fréttir Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Sjá meira
Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Tómas Guðbjartsson segir John Snorra og samferðalanga hans í örlagaríkri vetrarferð á K2 hafa verið svikna af hópi Nepala sem hafi fundist nóg komið að vera alltaf varaskeifur hvítra ferðalanga. Þeir hafi komið sér fyrstir á toppinn að vetrarlagi í skjóli nætur. 30. september 2026 10:50