Sverrir Ingi og félagar slógu Panathinaikos út í bikarnum Smári Jökull Jónsson skrifar 26. janúar 2023 19:32 Sverrir Ingi var í liði PAOK í kvöld. PAOK Sverrir Ingi Ingason og samherjar hans í PAOK tryggðu sér í kvöld sæti í undanúrslitum gríska bikarsins eftir 1-1 jafntefli við Panathinaikos í kvöld. PAOK vann 3-1 samanlagt í tveimur leikjum.
Sverrir Ingi Ingason var í byrjunarliði PAOK í leiknum en Hörður Björgvin Magnússon var ekki í leikmannahópi Panathinaikos. Um var að ræða seinni leik liðanna í gríska bikarnum. PAOK vann 2-0 sigur á heimavelli í fyrri leiknum og því undir Panathinaikos að koma til baka ætluðu þeir sér áfram. Heimamenn í Panathinaikos byrjuðu leikinn í kvöld betur. Þeir komust í 1-0 á 18.mínútu leiksins þegar miðjumaðurinn Adam Cerin skoraði. Þannig var staðan í hálfleik en töluverð harka var í leiknum og alls voru gefin fimm gul spjöld í fyrri hálfleiknum. Í seinni hálfleik voru það hins vegar leikmenn PAOK sem náðu að skora. Það gerði Nelson Oliveira á 78.mínútu og PAOK því komið í 3-1 samanlagt. Spænski framherjinn Brandon í liði PAOK kom inn á á 88.mínútu en tókst samt sem áður að láta reka sig útaf með tvö gul spjöld þremur mínútum síðar. Allt kom þó fyrir ekki, Panathinaikos náði ekki að skora og lokatölur í leiknum í kvöld voru 1-1. PAOK er því komið áfram í undanúrslit gríska bikarsins.
Gríski boltinn Mest lesið Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? Fótbolti „Ég verð að spila“ Enski boltinn Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Íslenski boltinn Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Fótbolti Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Körfubolti Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Enski boltinn Fleiri fréttir Messi á bekknum í sigri Argentínu HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? „Ég verð að spila“ Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Englendingar ósannfærandi í sigri Havertz aðalmaðurinn í sigri á Bandaríkjunum Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Vestri valtaði yfir Völsung Vonar að völlurinn verði ekki til vandræða Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Rauði djöfullinn Doku gerir varnarmenn gráhærða Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Landsliðsmenn Íran komnir með ferðaleyfi til Bandaríkjanna Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada HM-minning: „Leyfið þeim að kyssast“ Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan „Við nutum þess í botn að vera þarna“ Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Hefur ekki áhyggjur af slæmum velli Myndasyrpa: Sara Björk snýr heim Verður hjá Celtic eitt ár í viðbót Markaveisla í Lengjudeildinni Heimsmeistararnir lögðu Evrópumeistarana Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar „Markmiðinu er náð“ Sjá meira