Lífið

E­veryt­hing E­verywhere All at Once með flestar til­nefningar

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Myndin Everything Everywhere All at Once er sú mynd sem hlýtur flestar tilnefningar til Óskarsverðlaunanna.
Myndin Everything Everywhere All at Once er sú mynd sem hlýtur flestar tilnefningar til Óskarsverðlaunanna. Getty/Leon Bennett

Tilnefningar til Óskarsverðlaunanna árið 2023 voru tilkynntar í dag. Ár hvert ríkir mikil spenna fyrir tilnefningunum og var árið í ár engin undantekning. 

Það voru leikararnir Riz Ahmed og Allison Williams sem kynntu tilnefningarnar í beinni útsendingu á YouTube síðu Óskarsverðlaunanna. Vísir var að sjálfsögðu með puttann á púlsinum og var hægt að fylgjast með tilnefningunum í beinni útsendingu á Stöð 2 Vísi og hér á Vísi. Hér má finna beina textalýsingu frá útsendingunni fyrr í dag.

Everything Everywhere All at Once hlaut ellefu tilnefningar

Tilnefnt var í tuttugu og þremur flokkum. Sú kvikmynd sem hlaut flestar tilnefningar er kvikmyndin Everything Everywhere All at Once sem hlaut alls ellefu tilnefningar, þar á meðal sem besta myndin. Aðalleikkona myndarinnar Michelle Yeoh er tilnefnd sem besta leikkona í aðalhlutverki. Þá eru leikkonurnar Jamie Lee Curtis og Stephanie Hsu tilnefndar sem bestu leikkonur í aukahlutverki fyrir hlutverk sín í myndinni. Ke Huy Quan sem einnig fer með hlutverk í myndinni er tilnefndur sem besti leikari í aukahlutverki. Þá er myndin einnig tilnefnd fyrir leikstjórn, búninga, klippingu, handrit, tónlist og besta frumsamda lagið.

Leikkonurnar Michelle Yeoh og Jamie Lee Curtis eru á meðal þeirra sem tilnefnd eru fyrir hlutverk sín í myndinni Everything Everywhere All at Once.Getty/Amy Sussman-Frazer Harrison

Tilnefnd fyrir túlkun sína á goðsögnunum Presley og Monroe

Myndirnar All The Quiet on The Western Front og The Banshees of Inisherin hlutu báðar níu tilnefningar, þar á meðal sem bestu myndirnar.

Það kom líklega fáum á óvart að Austin Butler hafi verið tilnefndur fyrir túlkun sína á kónginum sjálfum, Elvis Presley. Myndinni Elvis var spáð góðu gengi á hátíðinni en hún var alls tilnefnd í átta flokkum, þar á meðal sem besta myndin.

Í flokknum besti leikari í aðalhlutverki keppir Butler við leikarana Collin Farrel, Brendan Fraser, Paul Mescal og Bill Nighy.

Það vekur athygli að Ana de Armas sé tilnefnd sem besta leikkona í aðalhlutverki. Hún fær tilnefninguna fyrir túlkun sína á goðsögninni Marilyn Monroe í myndinni Blonde. Myndin fékk misjafna dóma og er til að mynda aðeins með 5,5 í einkunn á kvikmyndavefnum IMDB.

Í flokknum besta leikkona í aðalhlutverki keppir Armas við leikkonurnar Cate Blanchett, Andreu Riseborough, Michelle Williams og Michelle Yeoh.

Austin Butler er tilnefndur fyrir hlutverk sitt sem Elvis Presley og Ana de Armas er tilnefnd fyrir hlutverk sitt sem Marilyn Monroe.IMDB

Íslendingar eiga nýjan fulltrúa á Óskarnum

Hildur Guðnadóttir var ekki tilnefnd að þessu sinni en Íslendingar munu þó eiga annan fulltrúa á hátíðinni þetta árið. Íslenski leikstjórinn Sara Gunnarsdóttir var tilnefnd fyrir stuttu teiknimyndina My Year Of Dicks.

Í samtali við fréttastofu sagði Sara tilnefninguna ekki hafa komið sérstaklega á óvart en hún hafi þó verið afar stressuð.

Óskarsverðlaunahátíðin fer fram þann 12. mars næstkomandi og verður það í 95. skipti sem hátíðin er haldin. Hátíðin verður í beinni útsendingu á Stöð 2 og fyrir afhendinguna verður hægt að fylgjast með stjörnunum mæta á rauða dregilinn á Stöð 2 Vísi.

Hér að neðan má sjá lista yfir allar tilnefningarnar.


Besta myndin

  • All Quiet on the Western Front
  • Avatar: The Way of Water
  • The Banshees of Inisherin
  • Elvis
  • Everything Everywhere All at Once
  • The Fabelmans
  • Tár
  • Top Gun: Maverick
  • Triangle of Sadness
  • Women Talking

Leikari í aðalhlutverki

  • Austin Butler (Elvis)
  • Colin Farrell (The Banshees of Inisherin)
  • Brendan Fraser (The Whale)
  • Paul Mescal (Aftersun)
  • Bill Nighy (Living)

Leikkona í aðalhlutverki

  • Cate Blanchett (Tár)
  • Ana de Armas (Blonde)
  • Andrea Riseborough (To Leslie)
  • Michelle Williams (The Fabelmans)
  • Michelle Yeoh (Everything Everywhere All at Once)

Leikari í aukahlutverki

  • Brendan Gleeson (The Banshees of Inisherin)
  • Brian Tyree Henry (Causeway)
  • Judd Hirsch (The Fabelmans)
  • Barry Keoghan (The Banshees of Inisherin)
  • Ke Huy Quan (Everything Everywhere All at Once)

Leikkona í aukahlutverki

  • Angela Bassett (Black Panther: Wakanda Forever)
  • Hong Chau (The Whale)
  • Kerry Condon (The Banshees of Inisherin)
  • Jamie Lee Curtis (Everything Everywhere All at Once)
  • Stephanie Hsu (Everything Everywhere All at Once)

Teiknimynd

  • Guillermo del Toro’s Pinocchio
  • Marcel the Shell With Shoes On
  • Puss in Boots: The Last Wish
  • The Sea Beast
  • Turning Red

Teiknuð stuttmynd

  • The Boy, the Mole, the Fox and the Horse
  • The Flying Sailor
  • Ice Merchants
  • My Year of Dicks
  • An Ostrich Told Me the World Is Fake and I Think I Believe It

Kvikmyndataka

  • All Quiet on the Western Front
  • Bardo, False Chronicle of a Handful of Truths
  • Elvis
  • Empire of Light
  • Tár

Búningar

  • Babylon
  • Black Panther: Wakanda Forever
  • Elvis
  • Everything Everywhere All at Once
  • Mrs. Harris Goes to Paris

Leikstjórn

  • Todd Field (Tár)
  • Daniel Kwan and Daniel Scheinert (Everything Everywhere All at Once)
  • Martin McDonagh (The Banshees of Inisherin)
  • Ruben Ostlund (Triangle of Sadness)
  • Steven Spielberg (The Fabelmans)

Heimildarmynd

  • All That Breathes
  • All the Beauty and the Bloodshed
  • Fire of Love
  • A House Made of Splinters
  • Navalny

Stutt heimildarmynd

  • The Elephant Whisperers
  • Haulout
  • How Do You Measure a Year?
  • The Martha Mitchell Effect
  • Stranger at the Gate

Klipping

  • The Banshees of Inisherin
  • Elvis
  • Everything Everywhere All at Once
  • Tár
  • Top Gun: Maverick

Alþjóðleg mynd

  • Þýskaland - All Quiet on the Western FrontArgentina
  • Argentina - 1985
  • Belgía - Close
  • Pólland - EO
  • Írland - The Quiet Girl

Leikin stuttmynd

  • An Irish Goodbye
  • Ivalu
  • Le Pupille
  • Night Ride
  • The Red Suitcase

Hár og förðun

  • All Quiet on the Western Front
  • The Batman
  • Black Panther: Wakanda Forever
  • Elvis
  • The Whale

Besta frumsamda lagið

  • Applause úr Tell It like a Woman
  • Hold My Hand úr Top Gun: Maverick
  • Lift Me Up úr Black Panther: Wakanda Forever
  • Naatu Naatu úr RRR
  • This Is a Life úr Everything Everywhere All at Once

Besta frumsamda kvikmyndatónlistin

  • All Quiet on the Western Front
  • Babylon
  • The Banshees of Inisherin
  • Everything Everywhere All at Once
  • The Fabelmans

Leikmynd

  • All Quiet on the Western Front
  • Avatar: The Way of Water
  • Babylon
  • Elvis
  • The Fabelmans

Hljóð

  • All Quiet on the Western Front
  • Avatar: The Way of Water
  • The Batman
  • Elvis
  • Top Gun: Maverick

Handrit byggt á áður útgefnu efni

  • All Quiet on the Western Front
  • Glass Onion: A Knives Out Mystery
  • Living
  • Top Gun: Maverick
  • Women Talking

Frumsamið handrit

  • The Banshees of Inisherin
  • Everything Everywhere All at Once
  • The Fabelmans
  • Tár
  • Triangle of Sadness

Tæknibrellur

  • All Quiet on the Western Front
  • Avatar: The Way of Water
  • The Batman
  • Black Panther: Wakanda Forever
  • Top Gun: Maverick

Tengdar fréttir

Sara Gunnarsdóttir til­nefnd til Óskars­verð­launa

Tilnefningar til Óskarsverðlauna voru tilkynntar rétt í þessu og kom skemmtilega á óvart að sjá íslenskt nafn þar á lista. Það er listakonan Sara Gunnarsdóttir sem tilnefnd er fyrir teiknuðu stuttmyndina My Year of Dicks.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.