Tók sérstaklega eftir betri líkamstjáningu hjá stórskyttunni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. janúar 2023 17:01 Valskonur réðu ekkert við Hrafnhildi Hönnu Þrastardóttur í leik ÍBV og Vals um síðustu helgi. Vísir/Hulda Margrét Eyjakonan Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir átti sannkallaðan stórleik þegar ÍBV vann topplið Vals á Hlíðarenda í Olís deild kvenna. Hrafnhildur Hanna skoraði fjórtán mörk í leiknum og fékk að sjálfsögðu hrós í Seinni bylgjunni. „
Sigurður Bragason, þjálfari Eyjaliðsins, sagði í viðtalinu að hann hafði áhyggjur af því hvort Hrafnhildur Hanna gæti haldið áfram á því svakalega skriði sem hún var komin á fyrir áramót. Þá er ágætt að mæta bara á Hlíðarenda og skora fjórtán,“ sagði Svava Kristín Gretarsdóttir, umsjónarkona Seinni bylgjunnar. „Hún var bara í ham. Ég held að hún sé bara komin í sitt besta stand. Hvernig hún fagnar, hvernig hún hleypur og hvernig hún kemur í árásirnar. Það er bara allt önnur holning á henni. Hún var frábær,“ sagði Sigurlaug Rúnarsdóttir, sérfræðingur Seinni bylgjunnar. „Ég hef smá áhyggjur. Hún átti líka fjórtán eða fimmtán marka leik fyrir áramót. Svo kom næsti leikur á eftir og algjör skita. Ég vil sjá hana í næsta leik, kannski ekki endilega að skora fjórtán mörk en að ráða ríkjum í þeim leik líka. Þá erum við að tala saman,“ sagði Einar Jónsson, sérfræðingur Seinni bylgjunnar. „Hún var klárlega að taka svona einn og einn leik og detta svo niður inn á milli fyrir áramót. Mér fannst munurinn á henni vera núna vera þessi líkamstjáning þegar hún hleypur til baka og fagnar. Þetta sá ég ekki eins mikið af hjá henni fyrir jól,“ sagði Sigurlaug. Það má sjá umfjöllun um Hrafnhildi Hönnu hér fyrir neðan. Klippa: Seinni bylgjan: Hrafnhildur Hanna með 14 mörk á Hlíðarenda
Seinni bylgjan Olís-deild kvenna ÍBV Mest lesið Botna ekkert í Aþenu: „Margt við þetta lið Hörður minn sem ég átta mig ekki á“ Körfubolti Messi skrópaði í Hvíta húsið Fótbolti Í sárum eftir andlát ungs fótboltamanns Fótbolti Aron spilar ekki fyrr en í milliriðli Handbolti Elon Musk sagður vilja kaupa Liverpool Enski boltinn Slagsmál í æfingaleik hjá mótherjum Íslands á HM Handbolti „Vonandi flyt ég heim til Grindavíkur áður en ég dey“ Körfubolti Mo Salah skýtur á Carragher Enski boltinn Lech Poznan að kaupa Gísla: Mættur í læknisskoðun Fótbolti Segir að Forest fari í titilbaráttu með sigri á Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Meiðslin sett strik í undirbúning Slagsmál í æfingaleik hjá mótherjum Íslands á HM Frábærar fréttir fyrir Frakka Aron spilar ekki fyrr en í milliriðli Júlíus Þórir sannaði sig í starfinu „Get skilið að þetta komi mörgum spánskt fyrir sjónir“ ÍR byrjar nýja árið með besta hætti Alfreð Gísla: „Hljómar kannski hrokafullt en svona er þetta“ Mun aldrei hitta neinn sem byggir upp lið eins og Þórir Tognun í rassi en Elvar telur HM ekki í hættu Díana Dögg öflug í sigri Uppgjörið: Stjarnan - Haukar 29-32 | Hafnfirðingar byrja árið af krafti Nýtt ár en áfram vinna Valskonur „Þetta eru gríðarlegar framfarir“ „Við eigum okkur allir drauma“ Sagt að deyja eftir að Ísland komst ekki í undanúrslit Árásin í Magdeburg: „Snertir djúpt hvað þetta var nálægt manni“ „Svakalega leiðinlegt fyrir bæði hann og okkur“ „Eiginlega bara þið sem hafið pumpað þetta upp“ Elvar og Aron taka ekki fullan þátt Sigurjón fær að læra af titlaóðum Palicka Tvöfalt sjokk fyrir Alfreð Ballið byrjar hjá strákunum okkar Alfreð setur Þýskaland og Ísland í sama flokk fyrir HM Strákarnir þurftu að sætta sig við silfur annað árið í röð Misjafnt gengi Íslendingaliðanna í Þýskalandi Sigvaldi markahæstur er Kolstad varð bikarmeistari Strákarnir komnir í úrslit Hafsteinn fer á HM Íslensku strákarnir komnir í undanúrslit Sjá meira