Lífið

Fékk flott glerhús eftir krabbameinið

Stefán Árni Pálsson skrifar
Kristín vildi glerhús og fékk glerhús í afmælisgjöf. 
Kristín vildi glerhús og fékk glerhús í afmælisgjöf. 

Kristín Pétursdóttir fékk krabbamein fyrir tveimur og hálfu ári og þá var sjötugsafmælið hennar framundan.

Og það eina sem hún óskaði sér í afmælisgjöf var glerhús í garðinn þannig að hún gæti notið þess að vera í garðinum allt árið. Ekki síst þegar rigndi eða snjóaði á veturna. Og Kristín er einnig með litla tunnu með köldu vatni sem hún notar óspart og segir hafa gert sér einstaklega gott í hennar veikindum og hún notar hana mikið enn þann dag í dag. Vala Matt fór í heimsókn til Kristínar fyrir Ísland í dag á Stöð 2 í gærkvöld og skoðaði fallega skreytt glerhúsið og einnig tunnuna með kalda vatninu.

„Þegar ég greinist fyrir tveimur og hálfu ári var mikil sorg og fólk grátandi í kringum mig. Ég sagði þá bara við fólkið mitt að það skildi róa sig aðeins niður, ég yrði sjötug eftir rúmlega tvö ár og ætlaði svo sannarlega að vera hérna áfram,“ segir Kristín og heldur áfram.

„Svo þegar tíminn leið þá var ég spurð hvað mig langaði í afmælisgjöf og þá svaraði ég að það eina sem mig vantaði væri gróðurhús. Ég kalla þetta reyndar ekki gróðurhús í dag, ég kalla þetta yndishús. Ég nýt þess að vera hérna í kuldanum, í ferska loftinu og að lesa og bara njóta. Ég fæ vinkonur mínar hingað og við fáum okkur kampavín og hlægjum og njótum lífsins. Við hjónin förum alltaf hingað á hverjum morgni og fáum okkur kaffi, byrjum daginn á því.“

Kristín skreytti yndishúsið smekklega fyrir jólin.

„Ég hef voðalega gaman af þessu og að dunda mér hérna að skreyta.“

Hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.