Í verslunum Eirbergs fæst allt milli himins og jarðar og þá sérstaklega þegar velja skal góða jólagjöf. Til að minnka stressið í jólainnkaupunum tókum við saman nokkrar hugmyndir úr jólahandbók Eirbergs sem allar ættu að slá í gegn undir jólatréinu.
Gjafir fyrir hana

Tufte Robin ullarpeysur
Þykkar ullarpeysur úr blöndu af sérstaklega fínni ull, merino-ull og bambus. Við kraga og við ermar liggur mjúkur bambus að húðinni.

Approach snyrtispegill
Vandaður snyrtispegill með innbyggðum hreyfiskynjara sem kveikir á björtu LED ljósi um leið og þú kemur að honum.

Warmbat inniskór með merino-ull
Hlýir og fallegir skór. Fóðrið úr 100% merino-ull og ytra byrði úr vönduðu rúskinni og leðri.

Tufte bambus náttföt
Silkimjúk og þægileg náttföt úr Oeko-Tex® umhverfisvottuðum bambus og lífrænni bómull.
Gjafir fyrir hann

Withings ScanWatch snjallúr
Klínískt vottað snjallúr með ECG mæli, púlsmæli, súrefnismettunarmæli, hreyfi- og svefnmæli. Endurhlaðanleg rafhlaða dugar í allt að 30 daga.

Tufte Bambull® útivistarfatnaður
Einstök blanda af bambus og merino ull. Innra lagið sem liggur við húðina er úr umhverfisvottuðum bambus sem er ótrúlega mjúkur, dregur í sig raka, andar vel og hamlar bakteríuvexti sem veldur ólykt í fatnaði. Ytra lagið er úr mjúkri merino ull sem heldur vel hita. Í öllum saumum, kraga og við ermar liggur mjúkur bambusinn að húðinni. Bambull® heldur jöfnum hita á líkamanum í hvaða veðri sem er.

Theragun nuddbyssa
Áhrifaríkt djúpvefjanudd hvar og hvenær sem er. Losar vöðvaspennu, hraðar endurheimt, eykur blóðflæði og liðleika.
Gjafir fyrir ömmu og afa

Radiant Health infrarauð djúphitadýna
Áhrifarík djúphitameðferð með infrarauðum geislum sem fara allt að 8 cm inn í líkamann. Infrarauður hiti getur dregið úr verkjum í liðum og vöðvum, minnkað vöðvaspennu og bólgur í líkamanum. Infrarauður hiti eykur auk þess djúpslökun og bætir svefngæði, eykur blóðflæði og hjálpar til að afeitra líkamann.

Comfytemp hitapúði
Heitur og mjúkur púði til hafa upp í sófa eða í rúminu.

A&D blóðþrýstingsmælir
Klínískt vottaður og áreiðanlegur mælir
Gjafir fyrir börnin

Tufte Bambull® útivistarfatnaður
Einstök blanda af bambus og merino ull.

Tufte bambus náttföt
Silkimjúk og þægileg náttföt úr Oeko-Tex® umhverfisvottuðum bambus og lífrænni bómull.

Lumie vekjaraklukkur með dagljósi
Lumie vekjaraklukkurnar líkja eftir náttúrulegri sólarupprás, stuðla að betri svefnvenjum og styðja við eðlilega dægursveiflu. Lumie vekjaraklukkurnar auka ljósmagn smátt og smátt líkt og við sólarupprás. Ljósið gefur líkamanum merki um að draga úr framleiðslu svefnhormóna (melatónín) og auka framleiðslu hormóna (cortisol) sem hjálpa þér að vakna.
Gjafir fyrir alla fjölskylduna til að deila

Shiatsu þráðlaust háls- og herðanudd
Tveir stórir nuddhausar með þreföldum þrýstipunktum og infrarauðum hita ráðast á alla bólguhnúta, vöðvaspennu og eymsli. Skilur eftir mjúkar og afslappaðar herðar og axlir. Endurhlaðanleg rafhlaða dugar í allt að 50 mín.

Radiant Health infrarauð sauna
Öflugur infrarauður klefi. FIR infrarauðir panelar í hliðum, baki og í gólfi gefa mögnuð áhrif. Frábær viðbót við verkjameðferð, slökun eða endurheimt.

Lumie Vitamin L dagsbirtuljós
Stílhreinn og fyrirferðarlítill lampi sem gefur frá sér mikla birtu. Dregur úr þreytu, orkuleysi og vanlíðan í skammdeginu.
Gjafir fyrir útivistargarpa

Vivo Barefoot skór
Náttúrulega hannaðir í kringum fótinn með nóg pláss fyrir tær til að auka grip, jafnvægi og bæta niðurstig. Skórnir hjálpa við að virkja vöðva í fætinum á náttúrulegan máta.

Tufte Polar Merino
Tæknilegasta og hlýjasta fyrsta lag frá Tufte. Tvöfalt lag af einstaklega fíngerðri 100% merino-ull. Innra lagið er úr teygjanlegu og mjúku merino-neti sem myndar lítil lofthólf sem heldur hita á líkamanum, bætir öndun, rakadreifingu og hitastýringu. Ytra lagið er úr þéttri en teygjanlegri merino-ull.

Tufte Softshell útivistarbuxur
Mjúkt en slitsterkt bluesign® vottað efni með C0 WR vind- og vatnsvörn. Góð teygja er í efninu sem gerir alla hreyfingu einstaklega þægilega.

Altra Olympus utanvegaskór
Góðir alhliða göngu- og hlaupaskór. Frábærir í utanvegahlaupin með hámarks dempun og grófum Vibram® Megagrip™ sóla.