Fullveldisbækur afhentar forseta Alþingis Fanndís Birna Logadóttir skrifar 1. desember 2022 17:06 Jón Sigurðsson, fráfarandi forseti Hins íslenska bókmenntafélags, og Ármann Jakobsson, forseti félagsins, afhentu Birgi Ármannssyni, forseta Alþingis bækurnar. Mynd/Samsett Útgáfu tveggja bóka var fagnað við hátíðlega athöfn í Skála Alþingis í gær en samið var um útgáfu þeirra árið 2018 í tilefni 100 ára afmælis fullveldis Íslands. Um er að ræða samstarfsverkefni Alþingis og Hins íslenska bókmenntafélags.
Annars vegar er um að ræða ritið Þingvellir í íslenskri myndlist en í bókinni er að finna ítarlegt yfirlit um íslenska myndlist tengda Þingvöllum og geymir hún 269 Þingvallamyndir eftir 104 listamenn. Ritstjórar eru Aðalsteinn Ingólfsson og Sverrir Kristinsson. Forseti Alþingis tekur við ritinu Þingvellir í íslenskri myndlist af fráfarandi forseta Hins íslenska bókmenntafélags. Mynd/Aðsend Hins vegar er um að ræða ritið Íslenskar bókmenntir - saga og samhengi, sem er nýtt yfirlitverk um sögu íslenskra bókmennta frá landnámi til tuttugustu og fyrstu aldarinnar. Í tveimur bindum er sagan rakin á knappan hátt í samhengi við strauma og stefnur hvers tíma. Sex bókmenntakennarar við Háskóla Íslands mynduðu ritstjórn undir forystu Ármanns Jakobssonar. „Bókmenntafélagið hefur um langt árabil átt sér þann draum að gefa út veglega listaverkabók með myndum frá Þingvöllum eftir helstu myndlistarmenn þjóðarinnar. Þá hefur félagið lengi haft mikinn hug á því að gefa út nútímalegt yfirlitsrit um sögu og samhengi íslenskra bókmennta frá landnámi til líðandi stundar,“ sagði Jón Sigurðsson við athöfnina í gær. Útgáfunni var fagnað í Skála Alþingis. Mynd/Aðsend „Ég vil ítreka þakkir Bókmenntafélagsins til Alþingis fyrir ómetanlegan stuðning við útgáfu fullveldisbókanna. Við þökkum forseta Alþingis fyrir þetta höfðinglega boð, sem gefur tækifæri til þess að kynna þessum ágæta hópi bækurnar tvær í húsakynnum Alþingis,“ sagði hann enn fremur. Alþingi samþykkti sumarið 2018 einróma tillögu þáverandi forseta Alþingis, Steingríms J. Sigfússonar, um verkefnið og komu bæði ritin út í ár. Birgir Ármannsson, forseti Alþingis, veitti bókunum viðtöku í gær en Jón Sigurðsson, fráfarandi forseti Hins íslenska bókmenntafélags, afhenti honum bókina Þingvellir í íslenskri myndlist og Ármann Jakobsson, forseti félagsins, afhenti honum bókina Íslenskar bókmenntir - saga og samhengi. Forsætisráðherra og viðskipta- og menningarmálaráðherra voru meðal viðstaddra. Mynd/Aðsend
Bókmenntir Alþingi Þingvellir Mest lesið Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Menning Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Lífið Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Lífið Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Lífið Muniz skilinn Lífið Osaka best klædd á Wimbledon Tíska og hönnun Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Lífið Hlaupaslagur ársins í beinu StuðStreymi frá Dyrfjöllum Lífið samstarf Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? Lífið Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Lífið Fleiri fréttir Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Í jólaskapi í júní Sex íslenskir söngvarar ráðnir til Þjóðaróperunnar Myndaveisla: Þær voru fjallkonur um land allt í ár Þrír fulltrúar Íslendinga í hópi topp 20 undir 30 Hilmir Snær stígur einn á svið Arnhildur Pálmadóttir er borgarlistamaður Reykjavíkur Veggjakrotað með kandýfloss á sýningunni „Hæhóogjibbíjei” Myndaveisla: Aldrei of gamall til að skella sér á bak David Hockney er látinn Ný bók frá Kirkegaard 47 árum eftir dauða hans Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Metsöluhöfundur birtist óvænt á Ísafirði og áritaði bækur Marjane Satrapi er látin „úr sorg“ Natasha S. hlýtur Maístjörnuna Deilt um sýningu Bjarkar: „Asnalega uppsett og kostnaðarsamt prump“ Sjá meira