Vitavegur vinnur hönnunarsamkeppni um Grófarhúsið Margrét Björk Jónsdóttir skrifar 30. nóvember 2022 18:25 Vinningstillaga um umbreytingu Grófarhúss hefur verið tilkynnt og hér má sjá vinningstillöguna. Hönnunarsamkeppni Reykjavíkurborgar um endurhönnun og stækkun á Grófarhúsi, í samstarfi við Arkitektafélag Íslands, er nú lokið. Fimm teymi voru valin til að taka þátt í forvali og sendu inn tillögur að umbreytingu hússins, en teymi frá JVST arkitektum, Inside outside, Hanrath Architect, Kreatíva teiknistofu, VSÓ ráðgjöf og Örugg verkfræðistofu varð hlutskarpast.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri tilkynnti úrslitin við hátíðlega athöfn í Grófarhúsi í dag. Fimm teymi komust í gegnum forval en meirihluti dómnefndarfulltrúa greiddi vinningstillögunni atkvæði sitt. Einn dómnefndarfulltrúi skilaði séráliti en hann gaf engri tillögu atkvæði í fyrsta sæti og valdi vinningstillöguna í 2. sæti. Til viðbótar var dómnefnd sammála um að útnefna tillögu frá Nordic Office of Architecture, Þykjó, Gagarín og Eflu sem áhugaverða tillögu. Þetta kemur fram á heimasíðu Hönnunarmiðstöðvarinnar. Fjölbreyttur ævintýra- og fróðleiksheimur Úr dómnefndaráliti um vinningstillögu: „Tillagan er leikandi og skemmtileg. Ferðalagið um Vitaveg er til þess fallið að veita gestum innblástur og eins og segir í greinargerðinni þá „eykst skynvit, þekkingarvit og menningarvit gesta“. Tillagan svarar í heild sinni skemmtilega og vel væntingum um fjölbreyttan ævintýra- og fróðleiksheim fyrir fólk á öllum aldri. Það er sterkt samhengi og tenging í gegnum bygginguna með Vitaveginum og sjónrænum tengingum sem skapast á milli hæða með opnunum í plötur. Uppröðun starfseminnar er skynsamleg og sannfærandi. Þó mætti þróa betur skipulag opnu rýmanna á 1. og 5. hæð (Vitatorg og Borgaratorg). Ánægjulegt er hvernig endurnýting og vistvæni er hugsuð inn í tillöguna, auk umfjöllunar um hvernig á að svara kröfu um BREEAM-vottun. Tillagan sýnir nútímalegt og sveigjanlegt bókasafnsrými og góðan skilning á starfsemi framtíðarbókasafnsins. Vitavegurinn í gegnum bygginguna er skemmtilegur og notendavænn og hugað er vel að fjölbreyttri þjónustu safnsins og upplifun notenda í rýminu. Tillagan hefur burði til að verða framsækin, leiðandi og vakandi fyrir síbreytilegum þörfum samfélagsins.“ Yfirlitssýning á tillögum allra teymanna fimm stendur nú yfir í Grófarhúsi og eru allir velkomnir að skoða hana í þessu stærsta og mest sótta bókasafni borgarinnar, að því sem fram kemur á heimasíðu Hönnunarmiðstöðvarinnar Sýningin er á bókatorginu á fyrstu hæð, rýminu sem blasir við þegar gengið er inn í safnið. Tillaga nr. 1 - Í flæðarmálinu Höfundar tillögu: Terta*: Ármann Agnarsson, grafískur hönnuður; Brynhildur Pálsdóttir, hönnuður; Magnea Þ. Guðmundsdóttir, arkitekt; Eva Huld Friðriksdóttir, arkitekt. Aðrir höfundar: Atli Bollason, listamaður og bókmenntafræðingur; Kate Dowling, þjónustuhönnuður; Nichole Leigh Mosty, fjölmenningarráðgjafi og Rósa Dögg Þorsteinsdóttir, innanhússarkitekt FHI Tillaga nr. 2 - Vitavegur (Verðlaunatillaga) JVST: Jaakko van 't Spijker, Hildur Gunnlaugsdóttir, Madeleine Mans, Jesse Wijnen, Violeta Sanchez Sanchez, Mina Intihar Michele Maritano, Arianne Fleege, Inside Outside: Petra Blaisse, Aura Luz Melis, Peter Niessen, Elena Beri; Hanrath Architect: Jan David Hanrath, Kreatíva teiknistofa: Hulda Þuríður Aðalsteinsdóttir, VSÓ Ráðgjöf: Jóhann Björn Jóhannsson og Örugg Verkfræðistofa - ráðgjöf vegna brunahönnunar: Davíð Snorrason Tillaga nr. 3 - Leiðarljós Höfundur: VA arkitektar ehf. Samstarf og ráðgjöf: Mannvit verkfræðistofa hf., Marina Candi, Sigurður Árni Sigurðsson, Stefano Magistretti. Tillaga nr. 4 GS teiknistofa í samstarfi við LBE, Louise Bassigny, innanhúsarkitekt FHÍ, Garðar Snæbjörnsson, arkitekt FAÍ, Héloïse Bouju, landslagsarkitekt, Victor Bassigny, þjónustuhönnuður Tillaga nr. 5 - (Áhugaverð tillaga)Nordic Office of Architecture: Barbara Sopolinska, arkitekt; Hallgrímur Sigurðsson, arkitekt; Helgi Mar Hallgrímsson, arkitekt;Hjalti Brynjarsson, arkitekt; Kristín Guðmundsdóttir, B.A. í arkitektúr; Una Mjöll Ásmundsdóttir, B.A. í arkitektúr; Þykjó:Erla Ólafsdóttir, arkitekt; Karítas Möller, arkitekt; Ninja Ómarsdóttir, markaðsfræðingur; Ninna Þórarinsdóttir, barnamenningarhönnuður;Sigríður Sunna Reynisdóttir, listrænn stjórnandi; Sigurbjörg Stefánsdóttir, fatahönnuður og klæðskeri; Gagarín:Atli Hillmarsonn, grafískur hönnuður; Hlín Helga Guðlaugsdóttir, upplifunarhönnuður; Hringur Hafsteinsson, listrænn stjórnandi;Kristín Eva ÓIafsdóttir, hönnunarstjór; Magnús Elvar Jónsson, hönnunarstjóri; Nils Wiberg, gagnvirkni hönnuður; Phoebe Jenkins, þjónustuhönnuður;Sunna Björk Mogensen, hreyfimyndahönnuður; Vanessa Julia Carpenter, gagnvirkni hönnuður; Efla: Árni Árnason, Byggingaverkfræðingur (brunahönnun)
Menning Reykjavík Arkitektúr Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Sjá meira