Einn sá spilltasti tapaði áfrýjun og verður loks framseldur til Bandaríkjanna Valur Páll Eiríksson skrifar 18. nóvember 2022 12:01 Jack Warner tapaði líklega sinni síðustu áfrýjun og verður líklega framseldur til Bandaríkjanna eftir sjö ára stapp fyrir dómstólum. vísir/gety Trínidadinn Jack Warner, fyrrum varaforseti Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA, tapaði í gær áfrýjun fyrir áfrýjunarrétti breska samveldisins í Lundúnum og má því vera framseldur frá heimalandi sínu til Bandaríkjanna vegna stórfelldra spillingarmála.
Warner var á meðal þeirra sem sat í framkvæmdanefnd FIFA árið 2010 sem kaus um að senda HM í fótbolta til Rússlands 2018 og Katar 2022. Hann tók sæti í nefndinni árið 1983 og sat í henni í 28 ár, til ársins 2011. Hann hafði þá, 2011, nýlega tekið við sem varaforseti FIFA, samhliða því að vera forseti Knattspyrnusambands Norður-Ameríku (CONCACAF), staða sem hann sinnti frá 1990 til 2011. Það ár tilkynnti FIFA að hann yrði neyddur til að stíga til hliðar frá öllum störfum tengdum fótbolta eftir víðtækar ásakanir um spillingu. Kornið sem fyllti mælinn var þegar hann stóð að fundi ásamt Kataranum Mohamed Bin Hammam, með fulltrúum knattspyrnusambanda Mið-Ameríkuríkjanna og þeim boðnir bréfpokar fullir af peningum. Að sögn voru þeir peningar ætlaðir fyrir atkvæði til Bin Hammam sem ætlaði sér fram gegn Sepp Blatter í forsetakosningum FIFA. Hefur barist gegn framsali frá 2015 Warner er talinn hafa dregið til sín milljónir á milljónir dollara ofan á meðan hann sinnti sínum störfum hjá FIFA og CONCACAF og er á meðal þeirra sem var sakaður um fjármálamisferli af Bandarísku alríkislögreglunni, FBI, í víðtækum handtökum hennar árið 2015. Þá voru synir Warners handteknir af FBI þegar þeir voru staddir í Bandaríkjunum það ár sakaðir um peningaþvætti. Þeir áttu að hafa þvegið allar þær mútur og illa fengið fé sem pabbi þeirra aflaði við sín störf. Bandarísk yfirvöld töldu sig þá hafa skiptimynt fyrir samvinnu Warners, en á þeim tíma mátti ekki framselja hann þar sem hann var starfandi þingmaður í heimalandinu. Hann hefur síðan barist gegn framsali á fjölmörgum dómstigum, þar sem dómur hefur fallið gegn honum á hverju einasta og líklegt þykir að hann eigi fáa áfrýjunarkosti eftir í kjölfar dómsins sem féll í Lundúnum í gær. Dómarar í dómsmálaráði ráðgjafanefndar bresku krúnunnar (e. Judicial Committee of the Privy Council) sem er hæsti áfrýjunarréttur fjölmargra ríkja í breska samveldinu, tók einróma ákvörðun um að hafna áfrýjun Warners samkvæmt frétt Reuters. Dró að sér 11 milljarða frá CONCACAF Auk starfseminnar tengd FIFA sem Warner var ákærður fyrir árið 2015 fyrir tilstuðlan FBI var hann í júlí 2019 var Warner dæmdur til að endurgreiða CONCACAF 79 milljónir bandaríkjadala, tæplega 11 og hálfan milljarð króna, sem hann hafði svindlað út úr sambandinu. Í heimildaseríunni FIFA: Uncovered á Netflix segja fyrrum landsliðsmenn Trínídad og Tóbagó frá því hvernig þeir hlutu aðeins 650 dollara á mann frá knattspyrnusambandi landsins fyrir að taka þátt á HM 2006, þrátt fyrir samkomulag við Warner um töluvert hærri fjárhæð. Warner hafði þá fallist á að greiða þeim háa prósentu af tekjum trínidadíska sambandsins af HM en dregið frá allan kostað af uppialdi, ferðalögum og slíku í kringum mótið af greiðslum til leikmanna. Sjálfur á hann svo að hafa dregið til sín 15 milljónir dollara í eigin vasa af gróða trínidadíska sambandsins af mótinu. Þá í apríl 2020 var leynd lyft af skjölum FBI sem sýndu fram á að Warner hefði tekið við fimm milljónum dollara fyrir að kjósa Rússland sem gestgjafa á HM 2018. Þær greiðslur fóru í gegnum fjölmörg mismunandi skúffufyrirtæki í Kýpur, Aguillu og Jómfrúareyjum.
FIFA HM 2022 í Katar Trínidad og Tóbagó Bretland Mest lesið Endurkomusigur í stórskemmtilegum opnunarleik Enski boltinn „Ég hélt að við værum komin lengra“ Enski boltinn „Betra er seint en aldrei“ Enski boltinn „Eiginlega alveg viss“ um að Rashford megi spila á morgun Fótbolti Villareal vann í endurkomu Cazorla og frumraun Partey Fótbolti Tryggvi lét mest til sín taka í tapi gegn Portúgal Körfubolti Opnunarleikurinn var stöðvaður vegna kynþáttaníðs Enski boltinn ÍBV segir tvær hliðar á málinu og óskar Kára velfarnaðar Handbolti Kristall farinn að skora aftur eftir meiðslin Fótbolti Gummi Ben og Hjörvar Hafliða fóru að rífast Enski boltinn Fleiri fréttir „Eiginlega alveg viss“ um að Rashford megi spila á morgun „Ég hélt að við værum komin lengra“ „Betra er seint en aldrei“ Villareal vann í endurkomu Cazorla og frumraun Partey Endurkomusigur í stórskemmtilegum opnunarleik Opnunarleikurinn var stöðvaður vegna kynþáttaníðs Kristall farinn að skora aftur eftir meiðslin Aston Villa sektað og bannað að nota marga bolta „Allt er þegar þrennt er“ Liverpool kaupir ungan ítalskan miðvörð Brentford að slá félagaskiptametið Allar tilfinningarnar í gangi Enska augnablikið: Hamingjureiturinn Stórkostleg tölfræði Salah í fyrsta leik „Tölfræðin er eins og bikiní“ Fjölskylda Jota á Anfield í kvöld Táningi hótað lífláti þrátt fyrir sigurinn á Víkingum „Maður er búinn að vera á nálum“ Hentu ferðatöskum inn á völlinn í miðjum leik Danirnir hjá Norwich fögnuðu óförum Víkinga berir að ofan Spurningar um Isak tóku yfir fundinn Sjáðu þáttinn um fyrsta N1-mót kvenna: Smá stress, snitsel og Sandra María skrifaði á skó Gummi Ben og Hjörvar Hafliða fóru að rífast Sjáðu dramtíkina á Króknum í gær: Aftur fengu Þróttarakonur rautt spjald Karólína Lea valin best í fyrsta leik Enska augnablikið: Eftirminnilegasta lýsing Íslandssögunnar Nýr framherji Man. United treður með miklum tilþrifum í körfuna „Gefa áhorfendum innsýn í það sem sérfræðingarnir gera“ Dagskráin: Fyrsti leikur í enska boltanum „Galið og fáránlegt“ Sjá meira