Lífið

Jimmy Kimmel verður kynnir á Óskarnum

Elísabet Hanna skrifar
Jimmy mun vera kynnir á hátíðinni í sitt þriðja sinn.
Jimmy mun vera kynnir á hátíðinni í sitt þriðja sinn. Getty/Phillip Faraone

Þáttastjórnandinn Jimmy Kimmel verður kynnir á Óskarsverðlaununum þann 12. mars á næsta ári. Þetta er í þriðja sinn sem hann fær hlutverkið en hann hélt einnig utan um hátíðina árin 2017 og 2018. 

Eiginkona hans, Molly McNearney, mun sjá um að framleiða útsendinguna ásamt þeim Glenn Weiss og Richy Kirshner. Hún framleiðir einnig þættina Jimmy Kimmel Live! og kemur að því að skrifa þættina.

Eiginkona hans Molly McNearney verður einn af framleiðendum hátíðarinnar.Getty/Gilbert Flores

Heiður eða gildra

„Að vera boðið að kynna Óskarsverðlaunin í þriðja skipti er annaðhvort mikill heiður eða gildra,“ segir þáttastjórnandinn í tilkynningu. „Hvort sem um er að ræða er ég þakklátur Akademíunni fyrir að spyrja mig svona stuttu eftir að allir góðir sögðu nei.“ Athöfnin mun fara fram í Dolby leikhúsinu í Hollywood.

Regina Hall, Amy Schumer og Wanda Sykes voru kynnar á Óskarsverðlaunahátíðinni í ár.AP

Líkt og áður sagði var hann kynnir á hátíðinni tvö ár í röð en árin 2019,2020 og 2021 var enginn kynnir á hátíðinni. í mars á þessu ári voru það þær Regina Hall, Wanda Sykes og Amy Schumer sem voru kynnar. 

Það virðist þó eiga það til að gleymast þar sem augnablikið þar sem Chris Rock var að kynna atriði og slá á létta strengi, sem endaði með því að Will Smith löðrungaði hann, virðist sitja fastast eftir í manna minnum. 


Tengdar fréttir

Will Smith sló Chris Rock í beinni útsendingu

Will Smith rauk upp á svið og sló Chris Rock í beinni útsendingu á Óskarnum eftir að hann kom með brandara um konuna hans Jada Pinkett Smith. Rock virtist vera í áfalli í kjölfarið.

Kynnar á Óskars­verð­launa­há­tíðinni eftir þriggja ára hlé

Eftir þrjár Óskarsverðlaunahátíðir í röð án kynnis verður nú breyting á. Þrjár konur – þær Regina Hall, Amy Schumer og Wanda Sykes – munu sameiginlega taka að sér hlutverkið á 94. Óskarsverðlaunahátíðinni sem fram fer 27. mars næstkomandi.

Spielberg vill að allir sitji við sama borð á Óskarnum

Leikstjórinn Steven Spielberg er ósammála ákvörðun Óskarsverðlaunanna um að afhenda átta verðlaun áður en beina útsendingin hefst. Honum finnst að allir sem búi til bíómyndir eigi að fá að sitja við sama borð og vera partur af formlegu hátíðinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.