Lífið

Mynda­veisla: Lúxus og glamúr á glæsi­legu förðunar­kvöldi á Edition

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Heiður Ósk, förðunarfræðingur og annar eigandi Reykjavík Makeup School, kenndi gestum glæsilega hátíðarförðun á vel heppnuðu Lancome Masterclassi á Reykjavík Edition hótelinu á föstudaginn.
Heiður Ósk, förðunarfræðingur og annar eigandi Reykjavík Makeup School, kenndi gestum glæsilega hátíðarförðun á vel heppnuðu Lancome Masterclassi á Reykjavík Edition hótelinu á föstudaginn. Elísabet Blöndal

Reykjavík Edition hótelið fylltist af fögrum fljóðum á föstudagskvöldið, þegar þar fór fram Masterclass á vegum Reykjavík Makeup School og Lancôme. Þar kenndi förðunarfræðingurinn Heiður Ósk gestum glæsilega hátíðarförðun.

Lúxus og glamúr einkenndu þennan vel heppnaða viðburð sem fór fram í Balroom-salnum á einu glæsilegasta hóteli landsins. Þar voru förðunarfræðingar, áhrifavaldar og aðrir áhugasamir samankomnir til þess að læra af Heiði Ósk, annars eiganda Reykjavík Makeup School.

Heiður er ein sú allra færasta þegar kemur að glamúr förðun. Því var vel við hæfi að hún sýndi gestum létta glamúr förðun sem tilvalin er fyrir hátíðirnar. Útkoman var vægast sagt glæsileg og voru gestir ánægðir með kvöldið.

Heiður Ósk sýndi glæsilega hátíðarförðun á fyrirsætunni Camillu Guðrúnu.Elísabet Blöndal
Þjálfarinn Gerða Jónsdóttir og áhrifavaldurinn og dansarinn Ástrós Traustadóttir létu sig ekki vanta.Elísabet Blöndal
Förðunardrottningin Sigurlaug Dröfn, ásamt Gurrý Jónsdóttur, Línu Birgittu og Önnu Sóleyju.Elísabet Blöndal
LXS-skvísurnar Magnea Björg og Sunneva Einars mættu ásamt áhrifavaldinum Jóhönnu Helgu og Hollywood-spekúlantinum Birtu Líf.Elísabet Blöndal
Áhrifavaldarnir Alexsandra Bernharð og Fanney Dóra.Elísabet Blöndal
Vinkonurnar og smekkskonurnar Thelma Guðmundsen og Kolbrún Anna Vignisdóttir.Elísabet Blöndal
Tískjugyðjan og hönnuðurinn Andrea Magnúsdóttir.Elísabet Blöndal
Förðunarfræðingurinn Ester Mondragon.Elísabet Blöndal
Förðunarfræðingurinn Ugla Snorradóttir.Elísabet Blöndal
Hin fullkomna „soft glam“ hátíðarförðun.Elísabet Blöndal
Leikkonan Kristín Pétursdóttir lét sig ekki vanta.Elísabet Blöndal
Bloggarinn Svana Lovísa, ásamt Andreu Magnúsdóttur og stjörnu kvöldsins, Heiði Ósk.Elísabet Blöndal
Förðunarfræðingarnir Agnes Björgvinsdóttir, Birkir Már Hafberg og Natalie Hamzehpour.Elísabet Blöndal
Áhugasamir gestir fylgdust vel með.Elísabet Blöndal
Gestir skemmtu sér vel.Elísabet Blöndal
Gerða Jónsdóttir og Kolbrún Anna Vignisdóttir.Elísabet Blöndal
Það var fjölmennt á Edition hótelinu á föstudagskvöldið.Elísabet Blöndal
Ástrós Traustadóttir geislaði. Hún á von á sínu fyrsta barni.Elísabet Blöndal
Heiður Ósk brosti sínu breiðasta, enda í skýjunum með kvöldið.Elísabet Blöndal
Heiður Ósk ásamt sínum betri helmingi, Ingunni Sigurðardóttur. Saman eiga þær förðunarskólann Reykjavík Makeup School.Elísabet Blöndal


Tengdar fréttir

Frum­sýndu förðunar­þáttinn Make up

Heiður Ósk og Ingunn Sig í HI beauty, þáttastjórnendur þáttanna Snyrtiborðið sem sýndir eru á Vísi, eru álitsgjafar í nýjum förðunarþáttum sem fara í sýningu í þessari viku hjá Sjónvarpi Símans. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.