Lífið

Svaraði rétt þrátt fyrir að hafa að­eins séð brot af vís­bendingunni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ótrúlega vel gert hjá Halldóri.
Ótrúlega vel gert hjá Halldóri.

Átta liða úrslitin í Kviss héldu áfram á laugardagskvöldið á Stöð 2 en þá tókust á lið Aftureldingar og Selfoss.

Í liði Aftureldingar voru þeir Dóri DNA og Steindi og hjá Selfyssingum mættu þau Ása Ninna og Atli Fannar.

Einstaklega skemmtileg viðureign en ein spurning í þættinum vakti sérstaka athygli en þá átti að sýna fjórar myndir og var einfaldlega spurt hvað þessar myndir ættu sameiginlegt.

Fyrst kom á skjáinn mynd af eyðimörk og því næst mynd af Hvíta húsinu. Þá ýtti Dóri DNA strax á bjölluna og svaraði án þess að hafa séð allar fjórar myndirnar. Og svaraði með miklum tilþrifum eins og sjá má hér að neðan.

Klippa: Svaraði rétt þrátt fyrir að hafa aðeins séð brot af vísbendingunni





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.