Innlán fyrirtækja tóku yfir 40 milljarða króna stökk í einum mánuði
![Hagfræðingar hafa bent að mikill innlánavöxtur fyrirtækja á síðustu misserum geti verið til marks um að stór hluti fyrirtækja virðist hafa komið út úr faraldrinum með afar sterka lausafjárstöðu.](https://www.visir.is/i/95A56A7CEA2C3E7A1CAB975982C4853B12F9453F5728B5A2630D5E6F76B6E065_713x0.jpg)
Umfang innlána atvinnufyrirtækja í viðskiptabönkunum jókst um rúmlega 40 milljarða króna í september, eða um heil sex prósent á milli mánaða. Líklegt má telja að þar muni mikið um stóra greiðslu til Símans vegna sölunnar á Mílu á síðasta degi septembermánaðar en verulegur vöxtur hefur verið í innlánum fyrirtækja allt frá vormánuðum síðasta árs.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/B2AE30674992C76E9C09690B02BEF4C5919929832D47352AF26FD61E6F93760D_308x200.jpg)
Bankastjóri Landsbankans segir samkeppni um innlán vera að aukast
Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, segir að ekki hægt sé að skoða innlánavexti banka í tómarúmi heldur þurfi að setja þá í samhengi við útlánavexti sem eru almennt lægri hjá Landsbankanum en öðrum íslenskum fjármálastofnunum. Samkeppnin um innlán sé hins vegar að aukast og bankinn muni taka kjör á bankareikningum til skoðunar.
![](https://www.visir.is/i/6B2A11CF459ABD877AE5B77F02CA41A1B69106E764CF6DF29A15644AC641D7A9_308x200.jpg)
Bankarnir hafa fimmfaldað útlán sín til fyrirtækja milli ára
Eftir vísbendingar um að það væri farið að hægja á miklum útlánavexti viðskiptabankanna til atvinnufyrirtækja í ágúst þá sýna nýjar tölur Seðlabankans að hann tók við sér kröftuglega á ný í liðnum mánuði. Á fyrstu þremur fjórðungum þessa árs þá nema ný útlán bankanna til fyrirtækja samtals um 213 milljörðum króna borið saman við aðeins 44 milljarða á sama tímabili fyrir ári.
![](https://www.visir.is/i/CFD62AC06BCE1B830D93252C7AD8BD0693E9A1E42198F34A8D075482DC404E53_308x200.jpg)
Með „töluvert bolmagn til fjárfestinga“ eftir að innlánin ruku upp í faraldrinum
Stór hluti fyrirtækja virðist hafa komið út úr faraldrinum með afar sterka lausafjárstöðu eftir að hafa haldið að sér höndum í lántökum og fjárfestingu vegna óvissu í hagkerfinu á sama tíma og það varð mikil aukning í veltu í nær öllum atvinnugreinum.