Lífið

„Ástin er blind“

Elísabet Hanna skrifar
Karlotta Halldórsdóttir og Skúli Bragi Geirdal.
Karlotta Halldórsdóttir og Skúli Bragi Geirdal. Aðsend.

Parið Karlotta Halldórsdóttir og Skúli Bragi Geirdal fékk hugmynd um að opna hönnunarstúdíó þar sem þau sátu í eldhúsinu heima hjá sér einn daginn. Þeirra fyrsta verkefni er punktaleturs-veggplaköt í samstarfi við Blindrarfélag Íslands en hluti af ágóðanum fer til félagsins. 

Hönnunarstúdíóið R57 leggur áherslu á hönnun með tilgang, sem sameinar fegurð og boðskap. Skúli er grafískur hönnuður og Karlotta sér um að koma röð og reglu á sköpunarkraftinn og hrinda hugmyndunum í framkvæmd.

Fyrsta vörulínan kom út á alþjóðlegumdegi hvíta stafsins, þann 15. Október 2022. Veggplakötin eru rituð í blindraletri og á þeim stendur „ástin er blind“. Markmiðið er að stuðla að vitundarvakningu á málefnum blindra og sjónskertra. Á dögunum voru þau með útgáfupartý sem var haldið í Mengi á Óðinsgötu.

Hér að neðan má sjá myndir frá boðinu:

Aðsend
Aðsend
Aðsend
Aðsend
Aðsend
Aðsend
Aðsend

Tengdar fréttir

Fögnuðu nýrri barnabók með tívolí þema í Nauthólsvík

Út er komin bókin Mía fer í Tívolí. Höfundur bókarinnar er Þórunn Eva G. Pálsdóttir en Bergrún Íris Sævarsdóttir myndskreytti. Jón Sverrir sonur Þórunnar fékk það skemmtilega hlutverk að aðstoða Bergrúnu og litaði teikningarnar í bókinni. 

„Partíplata með sam­visku­biti“

„Oggulítið dóp, eitthvað af kæruleysi, mikið af kynlífi, enn þá meira djamm og heil eilífð af straumum sársauka og hamingju að renna í eitt og sama fljót.“

Sura með spánnýja breiðskífu

Tónlistarkonan Sura hefur sent frá sér sína fyrstu breiðskífu. Hún fór alla leið við vinnslu plötunnar – sagði upp vinnunni og fór beina leið í að semja plötu í fullri lengd. Platan er á Spotify og kemur á vínyl.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.