Mbappé dregur í land og segist ekki vilja fara frá PSG Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 17. október 2022 08:30 Kylian Mbappé á ferðinni í leik Paris Saint-Germain og Marseille. getty/Xavier Laine Kylian Mbappé þvertekur fyrir að hafa óskað eftir því að yfirgefa herbúðir Paris Saint-Germain í janúar.
Fyrir leik PSG gegn Benfica í Meistaradeild Evrópu í síðustu viku bárust fréttir af því að Mbappé væri ósáttur hjá Parísarliðinu og hefði beðið um að fara frá því í janúar. Íþróttastjóri PSG sagði ekkert til í því og Mbappé tók í sama streng eftir 1-0 sigur á Marseille í gær. Mbappé lagði mark leiksins upp fyrir Neymar. „Ég er mjög ánægður. Ég hef ekki beðið um að fara í janúar. Ég skil ekki af hverju fréttin kom á leikdegi og mér var jafn mikið brugðið og öllum öðrum,“ sagði Mbappé. Eftir miklar vangaveltur um framtíð hans skrifaði Mbappé undir nýjan þriggja ára samning við PSG í maí. Hann er launahæsti leikmaður PSG og nýi samningurinn færði honum einnig ákveðin völd innan félagsins. Samherjar Mbappés ku þó vera orðnir þreyttir á veseninu í kringum franska landsliðsmanninn. Samkvæmt L'Equpie eru bara fjórir í leikmannahópi PSG á bandi Mbappés. Mbappé skoraði mark PSG í 1-1 jafnteflinu við Benfica á þriðjudaginn og lagði svo sigurmark liðsins gegn Marseille upp fyrir Neymar. PSG er með þriggja stiga forskot á Lorient eftir umferðir í frönsku úrvalsdeildinni.
Franski boltinn Mest lesið Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Enski boltinn „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ Enski boltinn Tímabært að breyta til Handbolti Blóðug hlaupaferð hjá Guðlaugu Eddu Sport Kallaði dómarann tík og rúmlega það Körfubolti Verstappen áfram hjá Red Bull Formúla 1 Atli og Eiður í KR Fótbolti FH-ingar kynntu Birki og Braga Íslenski boltinn Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Fótbolti Fleiri fréttir Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Dagur Dan og félagar í undanúrslit eftir sigur á liðinu sem stoppaði Messi „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ FH-ingar kynntu Birki og Braga „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Atli og Eiður í KR Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Steve Cooper látinn taka pokann sinn hjá Leicester Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Hákon mættur aftur til leiks Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Jafnað í blálokin í uppgjöri Keflvíkinga í Hollandi Amanda lagði upp í dýrmætum sigri og Kolbeinn nær toppnum Framarar sótt fjóra bita í næstu deild „Hefurðu enga sómakennd?“ Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Gamla konan áfram taplaus Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Sjá meira