Erlent

Mannréttindaráðið hafnar að ræða brot Kínverja á úígúrum

Kjartan Kjartansson skrifar
Chen Xu, fastafulltrúi Kína hjá Sameinuðu þjóðunum í Genf. Hann varaði aðildarríki mannréttindaráðsins við því að greiða atkvæði með tillögunni.
Chen Xu, fastafulltrúi Kína hjá Sameinuðu þjóðunum í Genf. Hann varaði aðildarríki mannréttindaráðsins við því að greiða atkvæði með tillögunni. Vísir/EPA

Meirihluti mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna hafnaði tillögu vestrænna ríkja um að ræða ætluð mannréttindabrot kínverskra stjórnvalda á úígúrum og öðrum múslimum í Xinjiang-héraði. Þetta er aðeins í annað skiptið í sögu ráðsins sem það hafnar tillögu af þessu tagi.

Bandaríkin, Kanada og Bretland voru á meðal þeirra ríkja sem báru tillöguna upp. Nítján ríki greiddu atkvæði gegn því að ræða málið en sautján með. Ellefu sátu hjá, þar á meðal Úkraína. Ríki eins og Katar, Indónesía, Sameinuðu arabísku furstadæmin og Pakistan greiddu atkvæði gegn tillögunni. 

Fulltrúi Pakistans sagðist síðar ekki hafa viljað styggja Kínverja, að sögn Reuters-fréttastofunnar. Mörg þróunarríki eru sögð hafa verið í þröngri stöðu þar sem þau vilja ekki tefla kínverskri fjárfestingu í tvísýnu. Önnur hafi ekki viljað draga athygli að stöðu mannréttindamála hjá þeim sjálfum.

Fulltrúi Kína hafði hótað því fyrir atkvæðagreiðsluna að tillagan skapaði fordæmi til að skoða mannréttindamál annarra ríkja. Þetta var í fyrsta skipti sem tillaga var uppi um að skoða mannréttindamál í Kína hjá ráðinu.

„Í dag er það Kína sem er skotmarkið. Á morgun gæti það verið hvaða þróunarríki sem er,“ sagði Chen Xu, fulltrúi Kína í ráðinu.

Ráðið hafnaði tillögunni þrátt fyrir að niðurstöður þess eigin skýrslu sem var birt eftir miklar tafir í lok ágúst hafi verið þær að alvarleg mannréttindabrot væru framin í Xinjiang, þar á meðal einhver sem gætu talist glæpir gegn mannkyninu.

Vísbendingar hafa komið fram um að kínversk stjórnvöld neyði úígúra, þjóðarbrot sem er múslimatrúar, í svokallað endurmenntunarbúðir þar sem fólk er látið vinna nauðgunarvinnu og sætir innrætingu.


Tengdar fréttir

SÞ segja Kín­verja mögu­lega seka um glæpi gegn mann­kyninu

Michelle Bachelet, fráfarandi framkvæmdastjóri mannréttindamála hjá Sameinuðu þjóðunum, segir stjórnvöld í Kína hafa brotið gróflega á mannréttindum Úígúra í Xinjiang og að meðferðin á fólkinu kunni að flokkast til glæpa gegn mannkyninu.

Lögregluþjónn lýsti kerfisbundnum pyntingum og ofbeldi í Xinjiang

Fyrrverandi lögregluþjónn sem flúði frá Kína segir úígúra hafa verið beitta kerfisbundnum pyntingum og ofsóknum í Xinjiang-héraði í Kína. Úígúrar og aðrir múslimar hafi verið teknir af heimilum sínum og færði í fangageymslur þar sem þau voru þvinguð með ofbeldi til að játa á sig glæp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×