Hafnar orðrómnum um klásúlu í samningi Haalands Sindri Sverrisson skrifar 6. október 2022 11:31 Erling Haaland og félagar hans fagna marki gegn FC Kaupmannahöfn í Manchester í gærkvöld. EPA-EFE/PETER POWELL Pep Guardiola sagði við blaðamenn eftir sigur Manchester City í gærkvöld að ekkert væri til í þeim sögusögnum að Erling Haaland væri með klásúlu í sínum samningi sem gerði honum kleift að fara frá félaginu til Real Madrid.
Samkvæmt fréttum frá Spáni í aðdraganda leiks City við FC Kaupmannahöfn í Meistaradeildinni í gær þá átti Haaland að vera með klásúlu sem gerði Real Madrid kleift að kaupa hann fyrir 200 milljónir evra eftir tvö ár, eða fyrir 175 milljónir evra árið 2025. Þessa klásúlu átti Norðmaðurinn að hafa sett í samninginn sem hann skrifaði undir hjá City sem gat keypt hann frekar ódýrt (fyrir 60 milljónir evra) frá Dortmund í sumar einmitt vegna klásúlu í samningi hans við þýska félagið. „Þetta er ekki satt,“ sagði Guardiola um fréttirnar frá Spáni. „Hann er ekki með neina klásúlu til að fara til Real Madrid eða nokkurs annars félags. Þetta er ekki satt. Hvað get ég sagt? Ég held að hann sé afskaplega ánægður hérna og við munum reyna að gera hann glaðan. Það er ekki hægt að vera að hafa áhyggjur af orðrómum. Við verðum að hugsa um það sem við höfum stjórn á,“ sagði Guardiola, eftir 5-0 stórsigurinn gegn FCK. Haaland skoraði tvö mörk í leiknum og hefur nú skorað 19 mörk í 12 leikjum fyrir Manchester City. Hann var tekinn af velli í hálfleik enda mikið af krefjandi leikjum fram undan þar til að HM-hléið tekur við eftir sex vikur.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Sindri áfram í sextán liða úrslit Körfubolti Finnur til með Arnari Handbolti Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Enski boltinn Fleiri fréttir Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Sjá meira