Skoðun

Hjákátleg tilraun með nafn

Birgir Dýrfjörð skrifar

Einu sinni var í litlu þorpi einstæð móðir með son sinn. Hann hét Haraldur, kallaður Halli.

Af einhverjum ástæðum festist við hann viðurnefnið hrúka. Hann var því kallaður Halli hrúka.

Mæðginin höfðu ama af uppnefninu. Þegar Halli fermdist sá móðir hans sér leik á borði að aftengja uppnefnið, og lét skýra Halla aftur. Hann var þá skýrður Ásgeir.

Eftir það kallaði hún strákinn alltaf Geira sinn, og þorpsbúar kölluðu hann líka Geira.

Þetta var fyrir okkar tíma í Samfylkingunni, og það fannst enginn svo heimskur í þorpinu, að halda, að með nýja nafninu yrði Geiri annar og nýr strákur.

Í þeirra munni var hann því alltaf kallaður, „Geiri - bróðir Halla heitins hrúku“.

Höfundur er rafvirki, sem lærði að tengja rétta víra til að fá ljós á peruna.


Tengdar fréttir

Leggja til breytingu á nafni Sam­fylkingarinnar

Tveir fyrrverandi þingmenn Samfylkingarinnar munu leggja fram tillögu á komandi landsfundi Samfylkingarinnar í næsta mánuði sem felur í sér að nafni flokksins verði breytt í Jafnaðarflokkurinn. Þeir segja að tími sé kominn til að nafn flokksins vísi beint til stefnu hans.




Skoðun

Skoðun

Þorpið

Alina Vilhjálmsdóttir skrifar

Sjá meira


×