Staðan í Evrópu helsta ógnin við íslenskan efnahag Heimir Már Pétursson skrifar 28. september 2022 19:22 Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir öfugmæli að aðgerðir bankans gegn verðbólgu komi verst niður á þeim sem minna hafi. Aðgerðirnar væru til að vernda stöðu heimilanna. Stöð 2/Egill Íslensku efnahagslífi stafar helst ógn af mikilli óvissu í alþjóðamálum. Seðlabankastjóri telur að vaxtahækkanir og aðrar aðgerðir Seðlabankans séu farnar að skila árangri. Horft verði til þess við ákvörðun vaxta í næstu viku.
Fjármálastöðugleikanefnd kynnti skýrslu sína um stöðu efnahagsmála í dag. Þar kemur fram að staðan hér á landi sé að mörgu leyti góð. Atvinnuleysi lítið, horfur á ágætum hagvexti, staða viðskiptabankanna traust, gott verð fyrir útfluttar afurðir og ferðaþjónustan hafi vaxið umfram vonir á þessu ári. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir að alþjóðlegar efnahagshorfur hafi versnað þar sem verðbólga í helstu viðskiptalöndum hafi ekki verið meiri í áratugi. „Áhætta tengd fjármálastöðugleika hér á landi hefur því vaxið vegna versnandi ytri aðstæðna og líkur eru á að sú þróun haldi áfram,“ segir í yfirlýsingu nefndarinnar. Haukur Benediktsson framkvæmdastjóri stöðugleika hjá Seðlabankanum, Gunnar Jakobsson staðgengill formanns fjármálastöðugleikanefndar og Ásgeir Jónsson formaður fjármálastöðugeikanefndar kynntu skýrslu nefndarinnar í morgun.Stöð 2/Egill „Það getur leitt til þess að okkar útflutningsvörur lækki í verði. Það gangi ekki jafn vel að selja þær,“ segir Ásgeir. Þá geti samdráttur í helstu viðskiptalöndum leitt til þess að fólk þar ferðist minna. Hins vegar hafi verið byggðar upp mjög sterkar varnir hér á landi á undanförnum árum gagnvart efnahagslegum áföllum. „Íslenska þjóðin er ekki lengur skuldsett í útlöndum eins og hún var. Við erum nú orðin þjóð sem á nettó eignir í útlöndum. Það er mjög jákvætt. En það er alveg sama, þessi áhrif koma fram,“ segir seðlabankastjóri. Verðbólgan virðist áundanhaldi. Mælist nú 9,3 prósent en var mest 9,9 prósent í júlí. Ásgeir segir vaxtahækkanir og aðrar aðgerðir bankans eins og hertar kröfur um eiginfé við íbúðarkaup vera að skila árangri. Þetta verði meðal annars haft til hliðsjónar á næsta vaxtaákvörðunardegi eftir viku. „Þetta er einn af þeim þáttum sem peningastefnunefnd mun skoða. Þetta er mjög jákvæð þróun hvað varðar verðbólgu. Mér sýnist hún hafa náð hámarki,“ segir Ásgeir. Með áframhaldandi lækkun verðbólgu og auknu jafnvægi á húsnæðismarkaði komi til greina að rýmka aftur eiginfjárkröfu vegna fyrstu kaupa en hinn 15. júní var hámarks veðsetning við fyrstu kaup lækkuð úr 90 prósent í 85 prósent. Áhyggjur af þróun efnahagsmála í Bretlandi Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hvatti bresk stjórnvöld í gær til að eldurskoða áform sín um stórfelldar skattalækkanir sem aðallega nýtast hinum efnameiri. Í dag greip breski seðlabankinn síðan til þess óvenjulega úrræðis að kaupa tímabundið mikið magn af langtíma skuldabréfum breska ríkisins eftir að ljóst var að veruleg hætta var á að margir helstu lífeyrissjóðir landsins færu á hausinn vegna verðfalls á bréfunum. Mohamed El-Erian aðalhagfræðingur Allianz segir AGS greinilega hafa áhyggjur af alþjóðlegum afleiðingum þess að breska stjórninn skjóti sig í fótinn með aðgerðum sínum. „Þannig að þetta er ekki einkamál Breta. Þetta eru Bretar að kasta eldsneyti á alþjóðlega þróun sem er að valda miklu tjóni á alþjóðlegum mörkuðum og efnahag," segir El-Erian. Breski Ásgeir hefur trú á að seðlabankar í Evrópu séu að ná árangri í baráttunni við verðbólguna. „Við sjáum til dæmis að olíuverð er byrjað að lækka. Þannig að ég tel að aðgerðirnar úti séu að skila árangri en þær geta mögulega keyrt þessi lönd niður í kreppu,“ segir seðlabankastjóri. Það hefði bein áhrif hér á landi. Margir efnahagssérfræðingar segja skattalækkanir sem ríkisstjórnar Liz Truss kynnti á föstudag auka á efnahagsvandann. Nú hafa stórir veitendur húsnæðislána hætt að lána tímabundið eða þrengt lánamöguleika vegna væntinga um miklar vaxtahækkanir hjá Englandsbanka.AP/Jessica Taylor „Þetta eru lönd sem eru búin að vera með neikvæða vexti eða lága og neikvæða vexti í áratug. Það að ætla síðan að fara snögglega upp í jákvæða vexti er bara erfitt. Það veldur álagi á fjármagnskerfi þar ytra sem á kannski eftir að sjá fram hvernig verður. Þá hefur það þessi áhrif en ég held að við séum að sjá minni innflutta verðbólgu á komandi mánuðum.“ Nýlegar efnahagsaðgerðir breskra stjórnvalda með miklum skattalækkunum sem kalla á aukna og óhagstæðari lántöku en áður hafa valdið usla í bresku efnahagslífi. Mikill samdráttur í Bretlandi, hefur hann bein áhrif hér? „Já, hann hefur það. Bretland er það stakt land sem er helsta viðskiptaland okkar í mörgu tilliti. Þannig að við höfum auðvitað þungar áhyggjur af breskum efnahag. Það hefur áhrif hér,“ segir Ásgeir Jónsson.
Seðlabankinn Verðlag Efnahagsmál Húsnæðismál Bretland Tengdar fréttir Öfugmæli að aðgerðir Seðlabankans komi heimilunum illa Seðlabankastjóri segir að þeir sem gagnrýnt hafi aðgerðir Seðlabankans til að ná niður verðbólgu fari með öfugmælavísur. Verðbólga sé mesti óvinur þeirra verst settu í þjóðfélaginu og nú bendi margt til að aðgerðir til á ná henni niður séu farnar að virka. 28. september 2022 12:23 Mest lesið Ísland leggur til fólk í finnskar herstöðvar Innlent Bifhjólamaðurinn „mikið slasaður“ Innlent Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Innlent Ók líklega á yfir 120 rétt fyrir slysið Enski boltinn Er Trump að gefast upp á Pútín? Erlent Öllu flugi til og frá næststærstu borg Frakklands aflýst Erlent Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Innlent Fluttur á bráðamóttöku með áverka á höfði eftir líkamsárás Innlent Stór meirihluti þjóðarinnar hlynntur veiðigjaldafrumvarpinu Innlent Eyddu færslum spjallmennisins sem lofuðu Adolf Hitler Erlent Fleiri fréttir Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Inga Sæland með galsa á þingi í nótt „Orðaskiftismetið tikið“ Bifhjólamaðurinn „mikið slasaður“ Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Ungt fólk notar frekar samfélagsmiðla en hefðbundna fréttamiðla Stór meirihluti þjóðarinnar hlynntur veiðigjaldafrumvarpinu „Þú ert mögulega búin að nota gagnaver 400 sinnum síðan í morgun“ Kjarnorkukafbátur í höfn í fyrsta sinn Ísland leggur til fólk í finnskar herstöðvar Fluttur á bráðamóttöku með áverka á höfði eftir líkamsárás Segir stjórnina ekki standa við stóru orðin í orkumálum „Kannski var þetta prakkarastrik“ „Íslandsmet í óvandaðri lagasetningu“ Skýrt að fleiri hafi brotið af sér í máli fötluðu konunnar Engar skýringar frá saksóknara, Íslandsmet í umræðum og óvæntur hvalur Íslandsmet slegið í málþófi Ekið á sjö ára barn í Borgartúni Gufunesmálið: Hringdu um miðja nótt og sögðu hinn látna vera kynferðisafbrotamann Skorið á bönd palestínska og úkraínska fánans Konan er komin í leitirnar Keyptu ónýtt hús og fá ekki áheyrn Rúmlega 200 ökumenn sektaðir og átta sviptir vegna hraðaksturs Eldri borgarar skemmtu sér í múmínkastalanum Menn á sextugs- og sjötugsaldri grunaðir um stórfellt fíkniefnabrot Nýjasta útspil Ísraela á Gasa minni á „lokalausn“ nasistanna Handviss um að Sjálfstæðisflokkurinn fái yfir þrjátíu prósent Kolfelldu tillögu minnihlutans: „Það er meirihlutinn sem stýrir dagskránni“ „Þetta virðast vera einu gjöldin sem ekki má snerta“ Skráningargjöld, fylgistap og gettó á Gasa Sjá meira
Öfugmæli að aðgerðir Seðlabankans komi heimilunum illa Seðlabankastjóri segir að þeir sem gagnrýnt hafi aðgerðir Seðlabankans til að ná niður verðbólgu fari með öfugmælavísur. Verðbólga sé mesti óvinur þeirra verst settu í þjóðfélaginu og nú bendi margt til að aðgerðir til á ná henni niður séu farnar að virka. 28. september 2022 12:23