Óhætt er að segja að öllu hafi verið tjaldað til á 1500 manna árshátíð Marel í Fífunni í Kópavogi á laugardagskvöldið. Salurinn var glæsilega skreyttur með svið fyrir miðju þar sem vel skipuð hljómsveit spilaði undir með hverjum listamanninum á fætur öðrum.
Páll Óskar og Selma Björns opnuðu herlegheitin þegar þau óku inn í salinn á glimmerskreyttum golfbíl og sungu Stuð að eilífu. Auk þeirra komu fram þau Emmsjé Gauti, GDRN, Ragga Gísla, Matti Matt og Stefanía Svavars svo einhverjir séu nefndir.
Söngvarinn Júlí Heiðar veit hvað skiptir máli í lífinu, fjölskyldan.
Konur eru konum bestar verkefnið fór í loftið og eru bolirnir seldir til styrktar Ljónshjarta samtakanna í ár.
Tónlistarmaðurinn Högni kom fram í Masonic Lodge í Hollywood.
Söngkonan Birgitta Haukdal kom fram og tók nokkur af sínum bestu lögum.
Tónlistarkonan Eydís Evensen og kvikmyndagerðarmaðurinn Einar Egils birtu af sér fallega paramynd úr brúðkaupsveislu.
Fjölmiðlamaðurinn Gísli Marteinn, sem þekktur er sem talsmaður bíllausa lífsstílsins, birti myndir í tilefni bíllausa dagsins.
Áhrifavaldurinn Fanney Dóra naut þess að kúra með dóttur sinni í óveðrinu.
Söngkonan Bríet skoðar gömul demo.
Förðunarfræðingurinn Erna Hrund skellti sér til Kaupmannahafnar í vinnuferð.
Rappararnir Emmsjé Gauti og Úlfur Úlfur náðu að semja.
„Lögfræðiteymi Jülevenner náði að losa þá undan þungum samningum við Jólahúsið á Sauðárkróki. Samningur sem var ósnyrtilegur og ófagmannlega uppsettur til að sjúga krónur úr listamönnunum. Úlfur úlfur loksins frjálsir.“
Trendnet tískugyðjan Elísabet Gunnars er á síðustu metrum meðgöngunnar.
Söngkonan Svala Björgvinsdóttir kom fram á The Greatest Showman.
Athafnakonan Tanja Ýr hefur verið að skoða sig um og fara á fyrirlestra í New York.
Raunveruleikastjarnan Ástrós Traustadóttir bíður spennt eftir dóttur sinni.
Íslenski förðunarsnillingurinn Sunna Björk Erlingsdóttir birti flotta mynd af förðun sem hún gerði fyrir tónlistarkonuna Björk Guðmundsdóttur. Sunna Björk var að bætast við kennarateymið í íslenska förðunarskólanum Reykjavík Makeup School.
Leikkonan Unnur Eggertsdóttir nýtur lífsins á Ítalíu með fjölskyldunni sinni.
Áhrifavaldurinn Fanney Ingvarsdóttir er alsæl með þann stað sem hún er á í lífinu. Hún er komin með fastráðningu í drauma starfinu sínu hjá Bioeffect, á dásamlega fjölskyldu og er orðin 31 árs.
Listamaðurinn Steiney Skúladóttir var á flakki um helgina og kom meðal annars við í Stokkhólmi og Amsterdam.
Söngkonan Dísa Jakobs kom fram í Auditorio Blackberry í Mexíkó.
Fótboltakonan Karólína Lea Vilhjálmsdóttir gerir gott úr endurhæfingunni.
Áhrifavaldurinn Lilja Gísladóttir fékk sér fimmta húðflúrið sitt.