Sidekick landar stórum samningi í Sviss og vinnur að frekari fjármögnun
![Tryggvi Þorgeirsson, forstjóri Sidekick Health.](https://www.visir.is/i/C93E3A0197324891F93B5B1954AAA341E576A3EB810176F32D4BECAA3A42F3C7_713x0.jpg)
Heilbrigðistæknifyrirtækið Sidekick Health mun hefja samstarf við svissneska fyrirtækið Ypsomed en í því felst að stafrænar heilbrigðislausnir íslenska fyrirtækisins verða samþættar svokölluðum snjall-llyfjapennum (e. smart auto-injectors). Samkvæmt heimildum Innherja er Sidekick jafnframt nálægt því að klára fjármögnunarlotu sem mun gera innlendum fjárfestum kleift að koma inn í hluthafahópinn.