Lífið

Nafn sonarins, Harvey Weinstein og 73 spurningar

Elísabet Hanna skrifar
Jennifer Lawrence var eins og opin bók í viðtalinu við Vogue.
Jennifer Lawrence var eins og opin bók í viðtalinu við Vogue. Getty/Pascal Le Segretain

Leikkonan Jennifer Lawrence er í sviðsljósinu hjá Vogue þessa vikuna þar sem hún ræðir móðurhlutverkið, nýju myndina sína og svarar 73 spurningum í mínígolfi. Í viðtalinu deilir hún nafni sonar síns sem kom í heiminn í febrúar á þessu ári. 

Skírður í höfuðið á listmálara

Sonurinn, sem hún á með eiginmanni sínum Cooke Maroney, fékk nafnið Cy. Hún segir hann nefndan í höfuðið á listmálaranum Cy Twombly sem er í uppáhaldi hjá eiginmanni hennar. Jennifer segir að lífið sitt hafi byrjað upp á nýtt þegar hún tók á móti syni sínum og að ástin sé ólýsanleg. 

„Hjartað mitt hefur teygt sig í allar áttir og stækkað að getu sem ég vissi ekki um. Maðurinn minn fær að vera hluti af því,“ segir hún um móðurhlutverkið í viðtalinu við Vogue.

Í myndbandi frá Vogue svarar Jennifer einnig 73 spurningum. „Hvað er það skrítnasta sem þú hefur heyrt um þig?“ Spurði spyrillinn hana og Jennifer svaraði hiklaust: 

„Að ég hafi stundað kynlíf með Harvey Weinstein.“

Robert De Niro lét sig hverfa

Aðspurð um samleikara sinn Robert De Niro deildi hún skemmtilegri sögu af því þegar hún bauð honum í æfingarkvöldverð fyrir brúðkaupið sitt. 

„Ég bjóst ekki við því að hann kæmi,“ segir hún. Þegar hann mætti á svæðið segist hún hafa sagt við hann: „Bob, þú þarft ekki að vera hérna.“ Þá svaraði hann með þökkum og fór heim.

Robert De Niro og Jennifer Lawrence.Getty/Charley Gallay

Tengdar fréttir

Jennifer Lawrence er orðin mamma

Stórleikkonan Jennifer Lawrence er orðin mamma en hún var að eignast sitt fyrsta barn með eiginmanni sínum Cooke Maroney. Þau eru búin að vera saman síðan 2018 og giftu sig við litla athöfn árið 2019. 

Hita upp fyrir Óskarinn

Dóra Júlía og Elísabet Hanna ætla að fylgja þér í gegnum Óskarinn á sunnudaginn og tóku þær forskot á sæluna með sérstökum upphitunarþætti. Þær ætla að vera með ykkur á vaktinni á Vísi frá því að fyrsta stjarnan mætir og þangað til að sú síðasta fer heim.

Kvik­myndin Don’t Look Up slær met

Kvikmyndinni Don’t Look Up, sem frumsýnd var á streymisveitunni Netflix á aðfangadag, hefur farið fram úr björtustu vonum framleiðenda. Leikstjórinn segist orðlaus.

Á von á sínu fyrsta barni

Bandaríska leikkonan Jennifer Lawrence á von á sínu fyrsta barni með eiginmanni sínum safnstjóranum Cooke Maroney.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.