Ungmenni létu öllum illum látum í verslunarmiðstöð Árni Sæberg skrifar 17. ágúst 2022 06:23 Lögreglan lenti í vanda með hóp ungmenna í gær. Vísir/Vilhelm Í gær barst lögreglu tilkynning um hóp ungmenna sem var til vandræða í verslunarmiðstöð á höfuðborgarsvæðinu. Svo fór að einn úr hópnum réðst á lögreglumann.
Óskað var eftir aðstoð lögreglu eftir að ungmennin höfðu haft í hótunum við öryggisverði verslunarmiðstöðvarinnar, sem er í umdæmi lögreglustöðvar þrjú í Kópavogi og Breiðholti, að því er segir í dagbók lögreglu fyrir gærkvöld og nóttina. Lögregla mætti á vettvang og reyndi án árangurs að ræða við hópinn og þegar reynt var að vísa honum á dyr fór hann ekki fet. Þegar færa átti einn úr hópnum út úr verslunarmiðstöðinni réðst hann á lögreglumann. Málið var afgreitt með aðkomu foreldra og barnaverndar. Mikið um þjófnað Óvenju mikið var um að lögregla væri kölluð til vegna þjófnaðar í gær. Tilkynnt var um þjófnað í símafyrirtæki þar sem tveir menn voru sagðir hafa stungið vörum í vasa sína. Mennirnir skiluðu einhverjum varningi en eru grunaðir um að hafa náð einhverjum á brott með sér. Lögregla bíður eftir upptökum úr myndavélakerfi. Þá var tvisvar í viðbót tilkynnt um þjófnað úr verslun og lögregla hafði afskipti af tveimur mönnum vegna gruns um þjófnað. Lögregla haldlagði verkfæri sem mennirnir höfðu í fórum sínum.
Lögreglumál Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Innlent Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Innlent Sundhnúksgígaröðin að verða búin Innlent Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum Erlent Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Innlent Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Innlent Vargöldin á Haítí versnar hratt Erlent Engar sýnilegar breytingar á hraunflæði eða krafti Innlent „Þetta var mjög skrýtin stemning“ Erlent Fleiri fréttir Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Biskup fagnar hækkun sóknargjalda Sundhnúksgígaröðin að verða búin Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Breyting á eldgosinu og stór dagur í Karphúsinu Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Minni virkni í miðgígnum Vextir og kosningar í Sprengisandi Réttindalausir stútar á ferðinni Engar sýnilegar breytingar á hraunflæði eða krafti Ók á ljósastaur við Grensásveg Eldur kviknaði í bíl í Mosfellsbæ Læknar fara þokkalega bjartsýnir inn í morgundaginn Viðreisn stærst samkvæmt nýrri kosningaspá en mjótt á munum Sjálfstæðisflokkurinn hafi lagt til niðurskurð á hverju ári Hefur gefið Landgræðslunni 26 milljónir króna í formi fræja Mikilvægt að Bláa lónið geti opnað sem fyrst Hvetja íbúa Suðurnesja til að spara heita vatnið Varnaraðgerðir í Svartsengi og umdeild yfirhalning hjá Jaguar Ísland virðir handtökuskipan á hendur Netanjahú Fjölmiðlabann í kjaradeilu kennara Hildur hnýtir í Sigurð og sakar hann um ýkjur Straumar valda álagi á varnargarða og staðan viðkvæm Byggt og byggt á Suðurlandi og það þarf að byggja enn meira KÍ segir ummæli Ingu Rúnar „rannsóknarefni“ „Við gerum aldrei neitt nema með fullu samþykki“ Bein útsending: Hvar eru umhverfis- og loftslagsmálin í kosningabaráttunni? Kennarasambandið sýni kennurum „alvarlega lítilsvirðingu“ Sjá meira