Giggs sakaður um að skalla systurina og hóta að skalla kærustu sína líka Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 16. ágúst 2022 13:30 Ryan Giggs. Peter Byrne/Getty Images Réttarhöldin yfir Ryan Giggs, fyrrverandi leikmanni Manchester United og landsliðsþjálfara Wales, halda áfram. Hann er ásakaður um að hafa beitt þáverandi kærustu sína, Kate Greville, andlegu og líkamlegu ofbeldi yfir þriggja ára skeið. Í dag bar Emma Greville, systir Kate, vitni.
Emma bað sérstaklega um að dregið yrði fyrir svo hún þyrfti ekki að sjá Giggs á meðan hún bæri vitni. At the request of the judge, everyone in the court was asked to leave for a few minutes. Emma Greville was about to give her evidence and, just like her sister, she requested there was a screen so their alleged attacker could not see her in the witness box. @DTathletic— The Athletic UK (@TheAthleticUK) August 15, 2022 Í vitnisburði hennar kom fram að Giggs hafi sagt að það væri Emmu að kenna að hann hafi skallað systur hennar. Kate hafði reynt að slíta sambandi þeirra og Giggs brást við með því skalla hana í jörðina. „Ég skalla þig næst,“ á Giggs að hafa sagt við Emmu er Kate féll öskrandi til jarðar, haldandi um andlit sitt. Það var þetta kvöld í nóvember 2020 sem lögreglan handtók hinn 48 ára gamla Giggs fyrir að hafa beitt Kate bæði andlegu og líkamlegu ofbeldi á meðan sambandi þeirra stóð. Ryan Giggs er sigursælasti leikmaður í sögu Manchester United. Ferill hans spannaði 23 ár, hann vann ensku úrvalsdeildina 13 sinnum og Meistaradeild Evrópu tvisvar. Lögfræðiteymi Giggs á að hafa reynt að halda því fram að um óviljaverk hafi verið að ræða en Emma tók það ekki í mál. Hann hafi gripið í axlir hennar, skallað hana og sagt Emmu að hún væri næst. „Hann baðst aldrei afsökunar,“ bætti Emma við en hún var stödd á heimi Giggs og systur hennar þar sem hún var að passa hund þeirra á meðan þau voru úti. Emma fékk skilaboð frá systur sinni þar sem hún sagði henni að pakka dótinu hennar niður, þær væru að fara. Ætlaði sér að yfirgefa Giggs Emma vissi að Kate ætlaði sér að yfirgefa Giggs eftir að hún hefði komst að framhjáhaldi hans með átta öðrum konum. Kate var þegar komið með nýja íbúð og þær ætluðu að fara þangað þetta kvöld. Giggs kom heim áður en þær höfðu flúið á brott, hann var mjög drukkinn og fór að rífast við Kate. Emma fór upp í svefnherbergið sem hún var vanalega í er hún var í heimsókn. „Segðu bless við hundinn, þú sérð hann aldrei aftur,“ á Giggs að hafa sagt eftir að hann náði í Emmu og sagði henni að „sjá um systur sína.“ Emma hringdi í lögregluna þar sem henni fannst öryggi sínu ógnað eftir að hafa labbað inn í herbergi þar sem Kate lá á bakinu og Giggs var klofvega yfir henni að reyna taka símann hennar af henni. Þær systur reyndur að ná Giggs af Kate en hann brást við með því að sveifla olnboga sínum í kjálkann á Emmu er hann reyndi að losa tak hennar. Hún flúði í annað herbergi og hringdi í foreldra sína til að segja þeim hvað gerðist. Næsta sem hún sá af parinu fyrrverandi var þau í eldhúsinu og Kate að reyna ná símanum sínum til baka frá Giggs. Emma sagði Giggs að skila símanum svo þær gætu farið, hún hafi séð hann ofan á henni og hún vissi að hann væri með símann. „Helvítis lygarinn þinn,“ á Giggs að hafa hreytt í Emmu í kjölfarið. Hann snöggreiddist, tók utan um axlirnar á Kate og skallaði hana af öllu afli í andlitið. Lögregluskýrslan sem var tekin af Emmu segir að systir hennar hafi „öskrað af sársauka“ og það hafi „verið blóð alls staðar.“ Yfirmaður Kate bar vitni Elsa Roodt, yfirmaður Kate hjá Q Communications, bar einnig vitni. Hún sagði að fyrirtækið hefði þurft að blokka tölvupósta frá Giggs þar sem þeir voru að hafa áhrif á vinnuna hjá Kate. Þá sagði Roodt að Kate hefði hafið störf hjá fyrirtækinu hamingjusöm og með opinn persónuleika en mikið hefði breyst frá 2018 til 2020. Kate hafi orðið stressuð, á nálum og taugaveikluð. Roodt staðfesti einnig að Kate hefði sagt henni að Giggs hefði lagt hendur á sig. Roodt sá einnig smáskilaboð frá Giggs sem voru annað hvort á þá leið að hann vildi hana aftur eða hversu ömurleg hún væri og að hann ætlaði að gera ákveðna hluti við hana. „Þetta voru eins og skilaboð frá tveimur gjörólíkum einstaklingum.“ Bað nágranna að hringja á lögregluna Þá bar Linda Cheung, nágranni Giggs, vitni eftir að hann hafði bankað upp á hjá henni þetta örlagaríka kvöld í nóvember 2020. Hann virtist vera í áfalli og bað Lindu um aðstoð þar sem Kate væri með símann hans. Giggs bað Lindu um að hringja á lögregluna. Hún neitaði en bauð honum símann sinn til að hringja á lögregluna. Ryan Giggs ' I did not consciously try to hurt Kate or her sister.' He said 'in the tussle I was cut & both sisters were hurt.' 'I regret this argument got so out of hand.' He said 'the relationship wasn't perfect but it was mainly one of love & affection.' pic.twitter.com/qwIuwe6ssY— Elaine Willcox (@ElaineWITV) August 16, 2022 Giggs neitar alfarið sök í málinu og segir ásakanir Kate og Emmu vera bæði ýkjur og lygar.
Heimilisofbeldi Fótbolti Enski boltinn Mál Ryan Giggs Tengdar fréttir Greville laug varðandi krabbameinsfrumurnar en ætlaði sér aldrei að verða ólétt eftir Giggs Fjórði dagur réttarhaldanna yfir Ryan Giggs fór fram í gær. Giggs, sem gerði garði frægan með Manchester United, er ásakaður um að beita fyrrverandi kærustu sína, Kate Greville, heimilisofbeldi yfir þriggja ára tímabil. Þá á hann að hafa ráðist á Emmu Greville, yngri systur Kate. 12. ágúst 2022 07:31 Ryan Giggs sagður vera með ljóta og illkvittna hlið Mál gegn Ryan Giggs, einum dáðasta leikmanni í sögu Manchester United, hófst í gær í Manchester Minshull Street Crown dómstólnum og var þessi fyrrum leikmaður og landsliðsþjálfari Wales mættur til að heyra framsögu saksóknara. 9. ágúst 2022 07:30 Ryan Giggs mætir aftur í réttarsalinn í dag Í dag hófust málaferli gegn leikjahæsta og sigursælasta leikmanninum í sögu Manchester United því Ryan Giggs er þar sóttur til saka fyrir heimilisofbeldi gegn fyrrverandi kærustu sinni. 8. ágúst 2022 07:31 Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Sjá meira
Greville laug varðandi krabbameinsfrumurnar en ætlaði sér aldrei að verða ólétt eftir Giggs Fjórði dagur réttarhaldanna yfir Ryan Giggs fór fram í gær. Giggs, sem gerði garði frægan með Manchester United, er ásakaður um að beita fyrrverandi kærustu sína, Kate Greville, heimilisofbeldi yfir þriggja ára tímabil. Þá á hann að hafa ráðist á Emmu Greville, yngri systur Kate. 12. ágúst 2022 07:31
Ryan Giggs sagður vera með ljóta og illkvittna hlið Mál gegn Ryan Giggs, einum dáðasta leikmanni í sögu Manchester United, hófst í gær í Manchester Minshull Street Crown dómstólnum og var þessi fyrrum leikmaður og landsliðsþjálfari Wales mættur til að heyra framsögu saksóknara. 9. ágúst 2022 07:30
Ryan Giggs mætir aftur í réttarsalinn í dag Í dag hófust málaferli gegn leikjahæsta og sigursælasta leikmanninum í sögu Manchester United því Ryan Giggs er þar sóttur til saka fyrir heimilisofbeldi gegn fyrrverandi kærustu sinni. 8. ágúst 2022 07:31