Innlent

Svona er göngu­leiðin að gosinu

Árni Sæberg skrifar
Björgunarsveitarmenn í Þorbirni stikuðu leiðina að gosinu í gær. Þeir vilja að fólk fari varlega á leiðinni.
Björgunarsveitarmenn í Þorbirni stikuðu leiðina að gosinu í gær. Þeir vilja að fólk fari varlega á leiðinni. Vísir/Vilhelm

Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík hefur staðið í ströngu síðan eldgos hófst í Meradölum. Björgunarsveitarmenn aðstoða ekki aðeins þá sem lenda í vanda á leiðinni að gosinu heldur hafa þeir ráðist í fyrirbyggjandi aðgerðir með því að stika gönguleið að gosinu.

Félagar í björgunarsveitinni Þorbirni kláruðu að setja upp og stika nýja leið að gosinu seint í gærkvöldi. Leiðin er tæpir sjö kílómetrar og stefnt er að því að gefa hana út fyrir gps-tæki. Leiðina má sjá á kortinu hér að neðan:

Núverandi gönguleið er minnst 14 kílómetrar fram og til baka og krefst göngu upp á Fagradalsfjall í sveig utan um eldri hraunbreiðuna.Vísir/Hjalti

Þorbjörn birti í gær ítarlegar leiðbeiningar til að ganga örugglega að eldgosinu. Þær eru eftirfarandi:

  1. Besta leiðin að gosinu fer eftir vindátt og veðri hverju sinni, fylgist því vel með tilmælum Lögreglu og viðbragðsaðila.
  2. Verið vel útbúin. Mikilvægt að vera vel klædd, með nesti, góða skó, höfuðljós og fullhlaðinn síma.
  3. Skiljið bílinn ykkar eftir á bílastæði en ekki í vegköntum. Það er nóg af stæðum fyrir alla.
  4. Gasmengun er á svæðinu og gæti safnast í lægðum. Nauðsynlegt er að forðast reykinn af gosinu.
  5. Gamla hraunið er ennþá heitt og stórhættulegt yfirferðar. Vinsamlegast gangið ekki á hrauninu.

Gangan er að lágmarki sjö kílómetrar aðra leið og hækkun er þrjú hundruð metrar. „Það þýðir að heildar gönguferðin getur verið rúmir 14 kílómetrar um nokkuð torfært svæði og eru mjög brattar brekkur í nágrenni gígsins. Gera má ráð fyrir að slík ganga taki 5 til 6 klukkustundir hið minnsta,“ segir í færslu Þorbjarnar.

Björgunarsveitin bendir á að ganga að útsýnispalla þaðan sem gýgurinn sést vel sé aðeins styttri, rétt rúmlega fimm kílómetrar aðra leið.

Þorbjörn segir að best sé að leggja bílum á bílastæðinu við gönguleið A og ganga eftir leið A alla leið upp á Fagradalsfjall. Þegar komið er upp á fjallið sé haldið eftir sléttunni til norðausturs þar til gosið sést.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×