Lífið

Ver­búðin lifandi á Þjóð­há­tíð í Vest­manna­eyjum

Elísabet Hanna og Magnús Jochum Pálsson skrifa
Þorsteinn Þór Traustason hefur endurvakið tíma verbúðarinnar í hvíta tjaldi sínu á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum.
Þorsteinn Þór Traustason hefur endurvakið tíma verbúðarinnar í hvíta tjaldi sínu á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Skjáskot

Þorsteinn Þór Traustason ákvað að endurverkja Verbúðina í hvíta tjaldi sínu á þjóðhátíð í ár. Það má líkja því við að stíga inn í tímavél að heimsækja skrautlegt tjaldið. Þorsteinn segir markmiðið að láta fólki sem heimsæki tjaldið líða eins og það sé komið heim til ömmu sinnar í kleinur.

Þorsteinn Þór Traustason sem er að eigin sögn „borinn og barnfæddur Eyjamaður“ er á sinni 35. þjóðhátíð.

Hann var í „fótabaði“ í skrautlegu tjaldi sínu við Sjómannasund í Vestmannaeyjum þegar fréttamaður náði af honum tali til að forvitnast út í hvíta tjaldið hans.

Hugmyndina kviknaði við áhorf á Verbúðinni

Aðspurður hvaðan Þorsteinn Þór Traustason fékk innblásturinn að tjaldinu sínu sagði hann hugmyndina að tjaldinu hafa kviknað við áhorf á Verbúðinni.

Þorsteinn sagðist hafa átt góðar minningar frá þessum tíma og því hafi Verbúðin kveikt í honum. 

Hann ákvað því að hafa Verbúðarþema í hvíta tjaldinu sínu á þjóðhátíð. 

Í vetur hafi hann því sankað að sér hlutum sem samræmdust tíðarandanum, komið heim með nýja hluti fyrir tjaldið í hverri viku, konu sinni „til mikillar gleði, eða þannig.“

Aðspurður hvernig hann sankaði að sér hlutunum í tjaldinu sagðist Þorsteinn hafa farið reglulega í Nytjamarkaðinn í Kópavogi til að ná sér í hluti. Svo reglulega að starfsmenn Nytjamarkaðarins væru nánast orðnir vinir hans.

Fólk sem kíkir í tjaldið getur gluggað í gömul tölublöð af Æskunni og Húsfreyjunni.Sjáskot

Fólk eigi að líða eins og það sé í heimsókn hjá ömmu

Þorsteinn segist hafa verið með ákveðna mynd af tjaldinu í huganum í upphafi og söfnunin mótast af því. Lokamynd tjaldsins hafi hins vegar ekki komið fyrr en tjaldið fór upp.

Í tjaldinu má sjá ýmiss konar gömul húsgögn sem flytja mann aftur til fortíðar.Skjáskot

„Guðbjörg, konan mín, var alltaf að gera grín að mér. Hvort ég ætlaði að vera með þriggja hæða tjald og hvernig ég ætlaði að koma öllu fyrir, með nýja og nýja hluti á hverjum degi.“

Þorsteinn segir að markmiðið með tjaldinu hafi verið að láta fólki líða eins og það væri komið heim til ömmu sinnar í kleinur og segir að fólk hafi akkúrat brugðist þannig við. 

Þá segir hann að það sé búið að vera troðið í tjaldinu alla hátíðina og fólk í geggjuðum gír.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.